Bæjarins besta - 22.08.2001, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
Stakkur skrifar
Foreldrar og börn! Netspurningin
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls
ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Aðeins er tekið við
einu svari frá hverri tölvu.
Niðurstöðurnar eru síðan
birtar hér.
Spurt var:
Verður þú
mikið var
við mjög
gróft klám-
efni á Net-
inu?
Alls svöruðu 233.
Já sögðu 48 eða 20,60%
Nei sögðu 185 eða 79,40%
Alf Magnus Øverby
Hlíðarvegi 51, Ísafirði
Gunnar, Guðbjörg, Óttar, Bernharð og Ásgeir Øverby
Sendum innilegar kveðjur og þakkir þeim sem
sýndu okkur hjálpsemi, samúð og vináttu við
andlát og útför föður okkar
Mikil umræða varð um útihátíðir og afleiðingar þeirra að lokinni verslunar-
mannahelgi, einkum Eldborgarmessuna ógurlegu. Engan skyldi undra. Að því
er best er vitað voru nauðganir taldar 11 þar. Munu þó ekki öll kurl komin til
grafar. Tvær voru hópnauðganir. Þá tekur sig saman hópur drengja eða pilta og
nauðga allir sömu stúlkunni! Eymdarleg andmæli Einars Bárðarsonar um
árásir á sig og Eldborgarhátíðina lýsa litlum manndómi. Hið eina viðeigandi
var að biðjast afsökunar á því að tæla börn til þess að koma á hátíðina. Vonandi
sluppu flestir lítt skaddaðir frá hátíðinni. Nokkur börn og ung-
menni hafa þó komið fram og lýst því, að þrátt fyrir að
skemmtiatriði hafi verið góð hafi umgengni verið svo hræðileg
að þeim líði það tæpast úr minni. En Einari Bárðarsyni er það
ekki að þakka að ekki fór verr. Klósett vantaði, hin voru illa hirt og þegar vika
var liðin frá „veislulokum“ kvartaði heilbrigðisfulltrúi Vesturlands enn undan
því að hreinsun svæðisins væri hreint ekki lokið.
Sýslumaðurinn á Ísafirði kom í dægurmálaútvarp Rásar 2 fimmtudaginn eftir
verslunarmannahelgina ásamt fleirum, þar á meðal hjúkrunarfræðingi, sem
fengist hefur við unglingsstúlkur sem lent hafa í nauðgunum. Hún var að sjálf-
sögðu ekki hrifin enda séð eftirfarandi skelfingu ungra stúlkna er sumar jafna
sig aldrei á hryllilegri lífsreynslu í stað þess er átti að vera ógleymanleg
skemmtun. Aðspurður taldi sýslumaðurinn ekki rétt að banna útihátíðirnar, en
minnti rækilega á það, að frá ársbyrjun 1998 hafa börn fædd 1982 og síðar verið
ósjálfráða börn til fullnaðs 18 ára aldurs og á ábyrgð foreldra sinna. Hann kall-
aði eftir ábyrgð foreldra og sagði að alls ekki ætti að hleypa börnum inn á útihá-
tíðir nema í fylgd með foreldrum eða löglegum forsjármönnum barnanna. Tók
hann dæmi af ballferð sinni og þá barnungrar dóttur sinnar, sem vildi fara eins
og allir jafnaldrarnir. Lyktir urðu að barnið þáði ekki að fara inn á skemmtistaðinn
í fylgd föður síns. En henni var ekki bannað heldur boðin hin lögmæta fylgd
foreldris. Einnig gat hann þess að víða erlendis hefði hann
séð börn í fylgd með foreldrum á tónlistarhátíðum.
Að auki benti sýslumaður á að Íslendingar kynnu ekki
mannasiði og væri það hluti vandans. Einhverjum kann að
hafa brugðið við þessi orð. Hinir sömu ættu að lesa viðtal Sigrúnar Davíðsdóttur
í Mbl. á sunnudaginn. Íslendingar í Lúxemborg virðast deila skoðunum sýslu-
manns um skort landa sinna á mannasiðum. En hvar læra börn mannasiði?
Væntanlega fyrst og fremst af foreldrum sínum. Það kann að vera að bera í
bakkafullan lækinn að nefna bílprófsaldurinn. Ósjálfráða börn eiga lítið, ef
nokkuð, erindi í umferðinni án fylgdar foreldra. Útlendingar spyrja stundum að
því hvort Íslendingum þyki ekki vænt um börnin sín. Og þeir, og við öll, feng-
um ástæðu til spyrja sömu spurningar eftir menningarnóttina í Reykjavík. Börn
á aldrinum 12 til 16 ára má ekki að skilja eftir þegar pabbi og mamma fara heim!
Bræðurnir Hrafn og Hermann Þór Snorrasynir á hjólunum við húsarústirnar á Straumnesfjalli.
Sérstæð sumarferð norður yfir Ísafjarðardjúp
Á reiðhjólum á Straumnesfjall
Hornstrandir ehf. á Ísafirði
buðu upp á reiðhjólaferð á
Straumnesfjall norðan Aðal-
víkur á sunnudaginn í sam-
vinnu við Gamla apótekið á
Ísafirði. Að sögn Henrýs Bær-
ingssonar hjá Hornströndum
heppnaðist ferðin mjög vel og
voru tólf reiðhjól með í för.
Lagt var úr höfn á Ísafirði
snemma um morguninn og
komið aftur um kvöldið.
„Þetta gekk alveg prýði-
lega. Þeir fljótustu voru eina
klukkustund og fimmtíu mín-
útur upp að húsunum á fjallinu
en þetta var auðvitað engin
keppni og þeir hefðu eflaust
Hjólreiðamennirnir á leið eftir gamla veginum upp á Straumnesfjall.
getað verið fljótari. Við feng-
um mjög gott veður sem hent-
aði mjög vel til hjólreiða, 16-
17°C hita og sólarlaust. Það
var mjög gott að hjóla. Að
vísu þurfti að leiða hjólin á
kafla en annars gekk þetta
mjög vel. Kristján Rafn Guð-
mundsson var aldursforseti í
ferðinni en sá yngsti var fimm-
tán ára. Við fórum þetta bara í
rólegheitunum enda höfðum
við allan daginn fyrir okkur“,
sagði Henrý.
Húsin sem Henrý nefndi eru
leifar af herstöð Bandaríkja-
manna frá því snemma á dög-
um kalda stríðsins. Þá var
lagður vegur upp á fjallið sem
notaður var til að hjóla eftir.
Vegurinn er nú orðinn mjög
skriðurunninn og þurfti því
að leiða hjólin utan hans á
köflum.
Myndirnar sem hér fylgja
tók einn af ferðalöngunum,
Úlfur Þór Úlfarsson á Ísafirði.
Hvíld eftir stranga ferð. Fv. Salmar Jóhannsson, Auðunn
Bragi Salmarsson, Stefán Dan Óskarsson, Kristján Rafn
Guðmundsson og Eggert Jónsson.
34.PM5 19.4.2017, 09:408