Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 7

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 7
á komist stjórnarhættir, sem miða starf sitt fyrst og fremst við menningu og hagsmunaþörf hins vinnandi fólks, og hún er fólgin í því, að takast megi að senda út á sextugt djúp sundurlyndis- fjandann. Ef allir sannir verkalýðssinnar settu það ofar öllum þröngum flokkshagsmunum að styðja þá ríkisstjórn eina, sem sjá vildi öllum vinnufúsum höndum fyrir atvinnu, sem setti sér það mark og mið að efla svo framleiðsluna, að þjóðin geti lifað af eigin aflafé, en ekki gjöfum annarra þjóða, seni beitti öllu afli ríkisvaldsins í þjónustu sjávar- útvegs, landbúnaðar og iðnaðar, en ekki kaup- höndlunar og brasks, og veitti fólkinu fullt frjáls- ræði til að velja milli samvinnuverzlunar og einkaverzlunar — þá yrðu fljótlega stjórnarskipti og stjórnmálatímamót á Islandi. En hvenær verður það, að flokkaskilrúmin innan verkalýðssamtaka, bændasamtaka og iðn- aðarsamtaka verða lækkuð eða brotin niður að svo miklu leyti, að þetta verði hægt? „Það yrði dýrlegur dagur.“ Öll umbótabarátta verkalýðssamtakanna er lýð- ræðisleg í innsta eðli sínu. Öll félagsmálastarf- semi — og þeir eru, sem betur fer, ekki margir á þrautseigri og þróunarvissri umbótaumþokun. Af því leiðir það, að slík stjórnmálasameining, sem hér um ræðir, yrði í einu og öilu að byggja á lýðræðislegum markmiðum. Þeir einir í röðum alþýðustéttanna, sem öðlazt hafa blinda trú á vinnubrögð og úrræði einræðis og byltingarstarf- semi — og þeir eru, sem betur fer, ekki margir á íslandi — yrðu óhæfir í slíkri sameinaðri alþýðu- stjórnarstefnu, sem hér hefur verið rædd. En þó að þeir dragist frá, og eins hinir, sem með líku móti dýrka skurðgoð auðsöfnunarinnar á jafnöfgafullan hátt og þjóna þeim við kjör- borðið sem annars staðar gegn eigin hagsmunum og vinnandi stéttanna í heild, þá yrði fylking al- þýðufólksins samt svo fjölmenn og sterk, að ekk- ert stæðist fyrir. Hin fámenna auðstétt stórút- gerðar- og kaupsýsluvaldsins, sem hingað til hefur aðallega hreiðrað um sig í stærsta stjórnmála- flokki landsins og lagt undir sig öll þýðingar- mestu embætti og stofnanir þjóðfélagsins yrði gegn slíku sameinuðu lýðræðisafli vinnandi fólks til sjávar og sveita vegin og léttvæg fundin. Slíka lýðræðislega byltingu væri hægt að fram- kvæma hávaðalaust og sársaukalaust. Hún gæti komið eins og vorleysing eftir kaldan og strangan Framhald á 27. síðu. Forsetinn látinn SÚ harmafregn barst íslenzku þjóðinni hinn 25. f.m., að fyrsti forseti Islands, herra Sveinn Björnsson, hefði andazt þá um nóttina. Við sorgarfregn þessa setti landsmenn hljóða, og forsetans er minnzt af þjóðinni allri með virð- ingu og þökk. í forseta sínum átti ísland mikilhæfan og góð- viljaðan son, sem af alúð, samvizkusemi og göf- ugmennsku vann þjóð sinni allt það gagn, er hann mátti, og var henni jafnframt glæsilegt sameiningartákn, er hin sundurlynda þjóð þarfn- aðist mjög. Árið 1941, er kjósa skyldi ríkisstjóra íslands, var Sveinn Björnsson kjörinn einróma. 1944 var hann af alþingi kjörinn forseti hins nýja lýð- veldis, er stofnað var hér ó landi, þá er form- lega var slitið sambandinu við Danmörku. 1945 fór fram fyrsta þjóðkjör forsetans, og varð Sveinn Björnsson þá sjálfkjörinn. 1949 fór á sömu lund. Þjóðin var samhuga um að óska ekki eftir að skipta um mann í forsetastóli, meðan kostur væri á að njóta Syeins Björnssonar, stjómvizku hans og mannvits. Islenzk verkalýðshreyfing minnist hins fyrsta forseta með einlægri þökk. Hann sýndi málstað hennar skilning og velvilja. Við fráfall herra Sveins Björnssonar forseta sendir Alþýðusamband Islands forsetafrúnni, hörnum hennar og ástvinum dýpstu samúðar- kveðjur. íslenzka þjóðin drýpur höfði við missi síns fyrsta forseta. — Helgi Hannesson. VINNAN 7

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.