Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 15

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 15
25 ARA Samhand matreiðslu- og framreiðslumanna SAMTÖK matreiðslu- og framreiðslumanna eru aldarfjórðungs gömul 12. febrúar þetta ár. Þann dag 1927 komu fimm framreiðslumenn og tveir matreiðslumenn saman til fundar að Hótel Borg og ákváðu að stofna félag til að efla stétt sína og hagsmuni. 4. marz sama ár var haldinn framhalds- stofnfundur, og bættust þá átta í hópinn, svo að stofnfélagar töldust 15 alls. Félagið nefndist Matsveina- og veitingaþjónafélag Islands. Frumherji þessarar félagsstofnunar var Ólafur Jónsson framreiðslumaður. Hann hafði víða farið og kynnzt samtökum stéttarbræðra sinna erlendis, enda sá hann ljósast, hvert er gildi samtakanna fyrir fámenna og lítt viðurkennda stétt. Ólafur var formaður félagsins fyrstu árin, en hann and- aðist árið 1934. Félagið gekk árið 1931 í Alþýðusamband ís- lands, og árið 1937 gerðist það aðili að fulltrúa- ráði sjómannadagsins. Það klofnaði árið 1941. — Bar annar hlutinn sama nafn og áður og var áfram í Alþýðusambandinu, en hinn nefndist Fé- lag framreiðslumanna og gekk í Landssamband iðnaðarmanna. Félög þessi voru síðan sameinuð á ný á öndverðu ári 1950 og þá tekið upp nafnið Samband matreiðslu- og framreiðslumanna. Aðalverkefni félagsins hefur frá upphafi verið að hlynna að kjörum og menntun stéttarinnar. Það gerði fyrsta kaup- og kjarasamninginn árið 1933 við Eimskipafélag íslands, en síðan hefur það átt í vinnudeilum þrisvar við skipafélögin, árið 1938, 1948 og 1950. Það hlaut að verða eitt mesta kappsmál félags- ins að koma því til leiðar, að störf matreiðslu- og framreiðslumanna yrðu viðurkenndar iðngrein- ar, og fyrir atbeina þess náðist slík viðurkenning yfirvaldanna árið 1941. En í því sambandi hlaut félagið og að láta til sín taka menntun stéttar- Stjórn og varastjórn S. M. F. Talið frá vinstri: fremri röð: Marbjörn Björnsson, Janus Halldórsson ritari, Böðvar Steinþórsson formaður, Guðmundur H. Jónsson varafor- maður; aftari röð: Ingimar Sigurðsson gjaldkeri, Páll Arnljótsson, Friðrik Gíslason, Theódór Olafsson og Sveinn Símonarson Osterö. innar. Stuðlaði það því að stofnun sérskóla fyrir hana, en honum, matsveina- og veitingaþjóna- skólanum, er ætlað rúm í sjómannaskólahúsinu. Samband matreiðslu- og framreiðslumanna gefur út tímaritið „Gestinn“, sem fjallar um veit- ingamál. Ritnefnd þess skipa nú: Sigurður B. Gröndal formaður, Böðvar Steinþórsson, Ingimar Sigurðsson, Friðrik Gíslason og Ragnar S. Gröndal. Lengst hafa setið í stjórn samtakanna Stein- grímur Jóhannesson og Sigurður B. Gröndal, 9 ár hvor, þar næst Janus Halldórsson 8 ár. For- maður hefur verið lengst Böðvar Steinþórsson, í 6 ár, en Ólafur Jónsson og Sigurður B. Gröndal í 5 ár hvor. Merkisctfmœli félaga ÞAÐ ER vel viðeigandi og raunar öldungis sjálfsagt, að Vinnan, tímarit Alþýðusambandsins, geti þess, eftir því sem rúm leyfir, er verkalýðsfélög eiga merkisafmæli. En hætt er við, að nokkur misbrestur verði á slíkum frétta- flutningi, ef ekkert sérstakt er gert í því skyrn, og hend- ing ráði vali, með því að oft er hljótt um slíka viðburði úti á landi og örðugt suður í Reykjavík að fylgjast með öllum, hvar sem er á landinu, svo að vel sé. Fyrir því eru það eindregin tilmæli Vinnunnar, að for- ustumenn verkalýðsfélaganna láti hana vita, ef merkis- afmæli fer í hönd, og væri nauðsynlegt að senda henni glöggar en stuttorðar upplýsingar um hlutaðeigandi félög í tíma. Rúm ritsins er að vísu lítið, en reynt mun verða að sjá af dálitlu horni fyrir hvert félag. VINNAN 15

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.