Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 11

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 11
VERKFALL á togurunum \ . ★ Tólf stunda hvíld á sólarhring á öllum veiðum. ★ Full verðlagsuppbót á kaup samkvœmt vísitölu. ★ Bœtt kjör á fiskveiðum í salt, einkum á fjarlœgum miðum. VERKFALL hófst á togurunum 21. febrúar eftir miklar en árangurslausar samningatilraunir. Hlut eiga að verkfallinu hásetar, kyndarar, mat- sveinar, bræðslumenn og bátsmenn á nær öllum togaraflotanum, eða 35 skipum af 42, og með þeim standa að því 7 verkalýðs- og sjómannafélög af 12, er annast samninga fyrir togarasjómenn. Félögin eru þessi: Sjómannafélag Reykjavíkur, Sjómannafélag Hafnarfjarðar, Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur, Verkalýðsfélag Patreks- fjarðar, Sjómannafélag Isfirðinga, Verkamanna- félagið Þróttur Siglufirði og Sjómannafélag Akur- eyrar. Félög þessi hafa bundizt samtökum í deilunni og heitið því hvert öðru að ganga sameinuð að samningaborðinu. Þau hafa kosið sér sameigin- lega samninganefnd, er einnig fer með verkfalls- stjórn. Skipa nefndina einn maður frá hverju félagi auk eins fulltrúa frá miðstjórn Alþýðu- sambandsins, og er hann formaður hennar. Þessir menn eru í nefndinni: Jón Sigurðssoá, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, formaður, Sigfús Bjarnason frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, Borgþór Sigfússon frá Sjómannafélagi Hafnar- fjarðar, Ólafur Björnsson frá Verkalýðs- og Sjó- mannafélagi Keflavíkur, Gunnlaugur Kristófers- son frá Verkalýðsfélagi Patreksfjarðar, Marías Þ. Guðmundsson frá Sjómannafélagi Isfirðinga, Gunnar Jóhannsson frá Verkamannafélaginu Þrótti á Siglufirði og Lorenz Halldórsson frá Sjómannafélagi Akureyrar. Kröfur sjómannanna eru í meginatriðum þrjár: 1) Tólf klukkustunda hvíld á sólarhring á öllum veiðum. 2) Full verðlagsuppbót á allt kaup samkvæmt vísitölu. 3) Bætt kjör á fiskveiðum í salt, einkum þegar veitt er á fjarlægum miðum. Þeim skipum, sem voru í veiðiför, þegar verk- fallið hófst verður leyft að ljúka henni. En hvert það skip, sem búa á til veiða, nú eftir að það er hafið, verður stöðvað. Og þó svo fari, að einhverju útgerðarfyrirtæki, sem hlut á í deilunni, takist að brjóta verkfallið og senda skip á veiðar, mun verða séð um það, að það fái ekki afgreiðslu í erlendum höfnum, með því að leitað hefur verið aðstoðar Alþjóðasambands frjálsra verkalýðs- félaga, ICFTU, og Alþjóðasambands flutninga- verkamanna, ITF í því skyni. Þannig hyggjast sjómenn beita mætti sam- takanna til að fá framgengt kröfum sínum, úr því að togaraeigendur hafa ekki borið gæfu til að skilja réttmæti þeirra og semja um þær án þess að til vinnustöðvunar þyrfti að koma. Sjómenn sækja fast að fá tólf stunda hvíld á sólarhring á öllum veiðum samningsbundna. Og fyrir því liggja góð og gild rök. Togaravinna er áhlaupa erfiðisvinna, og heilsu og lífi sjómanna er misboðið, njóti þeir ekki hæfilegrar hvíldar á hverjum sólarhring. Þeir eiga auðvitað ekki að vera ofurseldir vinnuþrælkun fremur en aðrir menn. Krafan um tólf stunda hvíld togarasjó- manna er því einvörðungu mannúðar- og rétt- lætismál, sem ríkisvaldinu ber í rauninni að leiða til farsælla lykta og samþykkja. En úr því að það lætur það undir höfuð leggjast, er sjómönn- um nauðugur einn kostur að knýja hana fram í samningum. Hvíldartíminn er í rauninni veigamesta ágrein- ingsatriðið í þeirri deilu, sem nú stendur yfir við útgerðarvaldið, og gegnir mikilli furðu, að það skuli sjá sér hag í að láta koma til vinnu- stöðvunar um það. Það væri ekki óeðlilegt, að útgerðarmönnum snerist hugur í þessu efni, áður en langt líður. En málstað sjómannanna styðja verkalýðssam- tökin og allir réttsýnir menn, hvar í stétt sem þeir standa. VINNAN T 1

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.