Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 20

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 20
Aðalfundur Víkings í Vík í Mýrdal. Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Víkings í Vík í Mýrdal var haldinn í janúar. I stjórn voru kjörnir þessir menn: Helgi Helgason formaður, Páll Tómasson varaformaður, Þórður Stefánsson ritari, Einar Bárðarson gjaldkeri og Haraldur Einarsson meðstjórnandi. Stjórnarkjör í Hreyfli. Stjórnarkjör í Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli fór fram 12.—13. febrúar. Kjörnir voru þessir: Bergsteinn Guðjóns- son formaður, Gestur Sigurjónsson, Haukur Bogason, Ingimundur Gestsson, Jens Pálsson, Olafur Jónsson og Birgir Helgason. Stjómarkjör í Félagi jámiðnaðarmanna. Stjórnarkjör fór fram í Félagi járniðnaðarmanna 16.—17. febrúar. Kjörnir voru þessir: Snorri Jónsson formaður, Kristinn Ag. Eiríksson varaformaður, Hafsteinn Guð- mundsson ritari, Tryggvi Benediktsson vararitari, Bjarni Þórarinsson fjármálaritari og Loftur Asmundsson gjald- keri (utan stjórnar). Stjórnarkjör í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar. Stjórnarkjör fór fram nýlega í Sjómannafélagi Hafnar- fjarðar. Stjórnina skipa: Borgþór Sigfússon formaður, Sigfús Magnússon varaformaður, Kristján Eyfjörð ritari, Pétur Oskarsson gjaldkeri og Pálmi Jónsson varagjaldkeri. Aðalfundur Verkamannafélags Reyðarfjarðar. Aðalfundur Verkamannafélags Reyðarfjarðar var hald- inn fyrir nokkru. í stjórn voru kjörnir: Ferdínand Magnús- son formaður, Guðlaugur Sigfússon varaformaður, Arn- þór Þórólfsson ritari og Sigurjón Ólafsson gjaldkeri. Aðalfundur Sveinafélags pípulagningarmanna. Aðalfundur Sveinafélags pípulagningarmanna í Reykja- vik var haldinn sunnudaginn 17. febrúar. I stjórn voru kjörnir: Gunnar Gestsson formaður, Steinþór Ingvarsson varaformaður og Bergur Haraldsson gjaldkeri. Aðalfundur Sveinafélags skipasmiða. Aðalfundur Sveinafélags skipasmiða í Reykjavík var haldinn 17. febrúar. I stjórn voru kjörnir: Helgi Arnlaugs- son formaður, Arni Ogmundsson, Björn Emil Björnsson, Sverrir Gunnarsson og Friðrik H. Guðjónsson. Aðalfundur Málarasveinafélags Reykjavíkur. Aðalfundur Málarasveinafélags Reykjavíkur var hald- inn 17. febrúar. I stjórn voru kjörnir: Kristján Guðlaugs- son formaður, Haukur Sigurjónsson varaformaður, Jens Jónsson ritari, Grímur Guðmundsson gjaldkeri og Hjálm- ar Jónsson vararitari. Aðalfundur A. S. B. Aðalfundur A. S. B., félags afgreiðslustúlkna í mjólkur- og brauðsölubúðum í Reykjavík, var haldinn 18. febrúar. í stjórn voru kjörnar: Guðrún Finnsdóttir formaður, Hólm- fríður Helgadóttir varaformaður, Birgitta Guðmundsdóttir ritari, Anna Gestsdóttir gjaldkeri og Hulda Jónsdóttir meðstjórnandi. Aðalfundur Iðju í Hafnarfirði. Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks, í Hafnarfirði var haldinn 30. janúar. I stjórn voru kjörnir: Magnús Guðjónsson formaður, Gunnar Jónsson ritari og Þóroddur Gissurarson gjaldkeri. Ný sambandsfélög. A fundi 5. nóv. s.l. veitti miðstjórn Alþýðusambandsins Verkalýðs- og bílstjórafélagi Lónsmanna viðtöku í Al- þýðusambandið. Félagsmenn eru 21. Stjórn félagsins skipa: Karl Guðmundsson formaður, Gunnlaugur Sigurðsson rit- ari og Jón Stefánsson féhirðir. Á sama fundi ákvað miðstjórnin að veita Verkalýðs- 3g bílstjórafélagi Egilsstaðahrepps S.-Múl. viðtöku í Al- þýðusambandið. Félagsmenn eru 17. Stjórn félagsins skipa þessir menn: Ari Björnsson formaður, Sigurður Gunnars- son varaformaður, Björgvin Hrólfsson ritari og Steinþór Erlendsson gjaldkeri. Á sama fundi samþykkti miðstjórnin að veita verka- lýðsfélagi Hvítársíðu og Hálsasveitar í Borgarfirði við- töku í Alþýðusambandið. Stofnendur ’félagsins voru 15. Stjórn hins nýja félags skipa þessir: Gunnlaugur Torfa- son formaður, Magnús Kolbeinsson gjaldkeri, Sigurður Jóhannesson ritari og Kristleifur Þorsteinsson og Magnús Andrésson meðstjórnendur. Enn fremur ákvað miðstjórnin á sama fundi að veita Verka^ýðsfélagi BeruneShrepps viðtöku í Alþýðusam- bandið. Stofnendur félagsins voru 20, og stjórn þess skipa þessir menn: Guðmundur Hjálmarsson formaður, Snorri Þorvaldsson varaformaður, Hermann Guðmundsson rit- ari og Sigurður Þorleifsson gjaldkeri. Miðstjórnin ákvað á fundi 10. jan. s.l. að veita Verka- lýðsfélaginu íra í Árnessýslu viðtöku í Alþýðusambandið. Starfssvæði félagsins nær yfir Grafning, Grímsnes og Þingvallasveit. Stofnendur voru 19, og stjórn félagsins skipa: Björn Guðmundsson formaður, Oskar Ögmundsson ritari og Ragnar Ögmundsson gjaldkeri. Miðstjórnin ákvað á fundi 21. jan. s. 1. að veita Bílstjóra- félaginu Fylki í Keflavík viðtöku í Alþýðusambandið. Fylkir er félag bílstjóra á fólksflutningabifreiðum. Félags- menn eru 32. Stjórn þess skipa: Ingólfur Magnússon for- maður, frá sjálfseignardeild: Sigurður Guðmundsson og Björgvin Magnússon, frá vinnuþegadeild: Jón Stígsson og Sigurður Hilmarsson. 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Kosið var í 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna í Reykja- vík á fundi fulltrúaráðsins 4. febrúar. Þessir hlutu kosn- ingu: Sæmundur Ólafsson, formaður fulltrúaráðsins, Kristín Ólafsdóttir frá Verkakvennafélaginu Framsókn, Stefán Hannesson frá Vörubílstjóráfélaginu Þrótti, Sophus Bender frá Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli, Sigurjón Jóns- son frá Félagi járniðnaðarmanna, Kristján Guðlaugsson frá Málarasveinafélagi Reykjavíkur, Eðvarð Sigurðsson frá Verkamannafélaginu Dagsbrún, Sigfús Bjarnason frá Sjómannafélagi Reykjavíkur og Hólmfríður Einarsdóttir frá ASB. f stjórn styrktarsjóðs verkalýðs- og sjómannafélaganna voru kjörin Sigurjón Á. Ólafsson til þriggja ára og Jóna Guðjónsdóttir til eins árs í stað Guðmundu Ólafsdóttur, sem er á Iðju og misst hefur réttindi með félagi sínu. Endurskoðandi sjóðsins var kjörinn Magnús Ástmarsson. 20 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.