Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 8

Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 8
HAFNARVERKAMENN I REYKJAVIK RÆTT VIÐ EINN AF ÞEIM UM KJÖR ÞEIRRA OG MÁLEFNI TIL ER í flestum löndum hópur manna, sem einvörðungu stundar vinnu við fermingu og af- fermingu skipa og önnur þess konar störf, — hafnarverkamenn. Slíkur hópur er einnig til hér, þótt harla fágætt sé að heyra hann nefndan sér- staka atvinnustétt. Þó eru hafnarverkamenn hér tiltölulega fjölmennir sakir mikilla flutninga á sjó og kjör þeirra og störf óneitanlega með þeim hætti, að þeir greinast ljóslega frá öðrum verka- mönnum. Allmargir stunda að vísu hafnarvinnu aðeins í ígripum, en mikill fjöldi gegnir ekki öðrum störfum árum og áratugum saman — mega teljast fastir starfsmenn, eftir því sem um slíkt er að ræða í daglaunavinnu. En þegar atvinnu skortir eins og nú, leita fleiri og fleiri eftir vinnu við höfnina, þótt nógir séu fyrir. Erlendis tíðkast, að hafnarverkamenn myndi verkalýðsfélag út af fyrir sig. En sú er ekki orðin raunin á hér. Þeir eiga hér ekki einu sinni sér- deild í verkamannafélagi. Hljótt hefur verið um starfsviðhorf þeirra og kjaramál um skeið og mál- efni þeirra láta sig fáir varða, enda eru þeir í vitund flestra ekki annað en sérstakur hópur verkamanna, sem býr við sömu eða svipuð launa- kjör og aðrir stéttarbræður þeirra og álíka stop- ula atvinnu. En þótt svo sé, skal hitt viðurkennt, að hinn fjölmenni flokkur þjóðfélagsins, sem einu nafni er nefndur verkamenn, greinist eftir eðli vinnunnar í margar stéttir — er í rauninni samsafn atvinnustétta. En hverjar fregnir er að segja af hafnarverka- mönnum í höfuðstað landsins? Hversu fjölmennir eru þeir, hvernig eru vinnuskilyrði þeirra og kjör, og hverra endurbóta vænta þeir af fram- tíðinni? Skal það nú rakið í fáum dráttum eftir viðtali við einn af þeim, Albert Imsland, sem vinnur hjá Skipaútgerð ríkisins hér við höfnina. Fjöldi þeirra, sem vinna við höfnina er nokkuð misjafn, en líklega munu um 200 menn hafa þar jafnaðarlega fasta vinnu. Þar til viðbótar kemur svo annar álíka hópur, sem enga aðra vinnu hefur, eins og nú er ástatt, og vinnur þar alltaf, þegar einhverja vinnu er að fá. Þegar mest var að gera hér fyrr á árum, komst verkamannafjöldinn í hafnarvinnunni stundum upp í 600. En telja verður sennilegt, að um 400 manns byggi afkomu sína nú því sem næst einvörðungu á vinnu við höfnina. Kaup hafnarverkamanna er hið sama og ann- arra verkamanna í Reykjavík. Þeir eru í tveimur kaupflokkum, eftir því hvaða störf þeir stunda. Á hærri launum eru þeir, sem stjórna vinnuvél- um, svo sem dráttarvögnum og lyfturum, en aðrir verkamenn á hinu almenna kaupi. Þá eru sér- taxtar fyrir ýmsa vinnu, svo sem sements- og kolavinnu. Uppskipunarvinna í Reykjavíkurhöfn. — Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson. 8 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.