Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 10
Stjórn Hlífar á 45 ára afmælinu: Frá vinstri, aftari röð: Jens Runólfsson, Þorsteinn Auðunsson
og Bjarni Erlendsson; fremri röð: Sigurður Þórðarson, Olafur Jónsson, Hermann Guðmundsson
formaður og Pétur Kristbergsson.
Hlíf í Hafnarfirði 45 óra
VERKAMANNAFÉLAGIÐ HLÍF í Hafnarfirði
er nú orðið fjörutíu og fimm ára. Það var stofnað
á öndverðu ári 1907, en sakir þess að elztu gjörða-
bækur þess eru glataðar með öllu, er stofndagur-
inn fallinn í gleymsku, mun þó, eftir því sem
naest verður komizt, hafa verið í janúarlok eða
febrúarbyrjun.
Tildrög að stofnun verkamannafélags voru
hin sömu í Hafnarfirði og annars staðar. Laun
verkafólksins voru bágborin, sömuleiðis allur að-
búnaður á vinnustað, réttur þess vettugi virtur
og afkoman nokkurn veginn svo ótrygg sem verða
mátti.
Stofnun félagsins mun hafa borið að með þeim
hætti, eftir umtal og undirbúning, að þrír menn
úr Hafnarfirði, þeir Jóhann Tómasson, Jón Þórð-
arson og Gunnlaugur Hildibrandsson, skrifuðu
Verkamannafélaginu Dagsbrún í Reykjavík og
fóru þess á leit, að það hefði forgöngu um stofnun
verkamannafélags í Hafnarfirði. Sendi Dagsbrún
síðan menn suður í Hafnarfjörð til aðstoðar við
félagsstofnunina. A stofnfundinum var því gefið
það nafn, sem það ber enn, í það gengu þá þegar
40 verkamenn og konur, og Isak Bjarnason frá
Oseyri var kjörinn formaður. Félagatalan óx ört
fyrstu mánuðina.
Heldur fengu verkamenn kaldar kveðjur frá at-
vinnurekendum fyrir að stofna með sér stéttar-
félag. En þrátt fyrir andstöðu þeirra auðnaðist fé-
laginu að fá framgengt allmiklum kjarabótum
þegar vorið 1907. Liðu svo fram stundir, að fé-
laginu óx jafnan fiskur um hrygg og hlutverk
þess í kjara- og réttindabaráttu hafnfirzkrar al-
þýðu varð stærra og stærra. Má með sanni segja,
að Hlíf hafi ekki einasta verið bezta vörn verka-
lýðsins í launabaráttunni, heldur og sú félags-
heild, er fylkti liði hafnfirzkrar alþýðu til sóknar
í stjórnmálum almennt. Hlífarmönnum var ljóst,
að kjör verkalýðsins yrðu ekki tryggð með kaup-
gjaldsbaráttunni einni, heldur yrði hann að koma
fulltrúum sínum inn í sveitarstjórnir og alþingi.
Árið 1926 fékk Alþýðuflokkurinn meirihluta í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar, og um leið urðu þátta-
Framhald á 28. síðu.
10 VINNAN