Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Side 20

Vinnan - 01.09.1992, Side 20
20 Jóhann Jónsson framkvæmdastjóri HraSfrystistöðvar Þórshafnar: „Vinnslan hafi sama rétt og veiðarnar" Mikill afli barst á land á Þórshöfn í vor og ekki hafðist undan að vinna hann í frystihúsinu. Því var gripið til þess ráðs að lána Vopnfirðingum nokkurn kvóta^ og í sumar hafa þeir verið að endurgjalda nágrönnum sín- um greiðann. Á þessum slóðum veiðist mest af þorski og ufsa á vorin. í vor var þorskurinn hinsvegar tregur en nóg var af ufsanum. Svo datt botn- inn úr aflahrotunni í júní en áfram var talsverð vinna þar sem bátarnir fóru að veiða kola og nokkur afli barst frá Vopnafirði. Allt fastráðið fólk hafði því vinnu hvern dag í júní og þeir lausráðnu voru ekki heima nema fjóra eða fimm daga. - Síðustu ár hefur atvinna verið að minnka yfir sumarmánuðina en aukist á haustin og vetuma. Þar munar mest um að þá er landað hér síld og loðnu, sem ekki var fyrir nokkrum árum, segir Jó- hann Jónsson framkvæmdastjóri Hrað- frystistöðvar Þórshafnar við Vinnuna. Á úthafskarfa og rækju - Hraðfrystistöð Þórshafnar rekur fiskverkun og loðnubræðslu, ásamt því að gera út togarann Stakfell. Hver þess- ara deilda er um þriðjungur af veltu fyr- irtækisins. Einnig er töluverð bátaútgerð frá Þórshöfn, stærstur bátanna er Geir, en hann er 70 tonn. Stakfellið hefur um 60 prósent af kvóta staðarins en bátamir 40. Jóhann segir hugsanlegt að Stakfellið geti snúið sér að því að veiða úthafskarfa og rækju fari að sneiðast um þorskkvót- ann, og hluti kvótans færður yfir á þá báta sem séu í viðskiptum við Hrað- frystistöðina. í fyrrahaust hófst framleiðsla á síldar- flökum og - bitum hjá fyrirtækinu. Sú vinnsla stóð fram í febrúar. Uppi- staðan í sfldarvinnslunni á síðustu vertíð voru edikbitar, sem vora seldir til K. Jónssonar á Akureyri og fluttir út héðan. Þetta skapaði talsverða vinnu hér í bæn- um, segir Jóhann. - Annars emm við hér með fisk- vinnslu eins og gerist og aðal fisktegund- imar eru þorskur, ýsa, ufsi og koli, ásamt síld og loðnu. Við erum sífellt að reyna Fiskbúðin sem fór Bakað fyrir norðausturhornið Auk trésmiðjanna tveggja er bifreiða- verkstæði á Þórshöfn og einnig em þar tvö þungavinnuvélafyrirtæki, Haki og Atak, og Vegagerð ríkisins hefur aðsetur í bænum. Þá er ótalið bakarí sem sér íbú- um Bakkafjarðar, Raufarhafnar og Vopnafjarðar fyrir brauðmeti, auk Þórs- hafnarbúa sjálfra. Bakaríið á Þórshöfn er hluti af samvinnu þessara byggðarlaga á norð-austurhluta landsins, sem er í því fólgið að slátmn hefur verið flutt á Kópasker og mjólkurvinnsla til Vopna- fjarðar, en áður var hvorttveggja á Þórs- höfn. Bæjarbúar hafa þó ekki farið var- hluta af áföllum í atvinnulífinu frekar en aðrir. Fyrir tólf ámm var þar saumastofa, og önnur saumastofa, útibú frá sauma- stofu á Raufarhöfn, var í húsakynnum Trésmiðjunnar Brúar á Brúarlandi. Þar var smíðað og saumað undir sama þaki þar til saumastofan varð að leggja upp laupana, fyrir fimm og hálfu ári. Kaupfé- lagið á Þórshöfn lenti einnig í erfiðleik- um og fékk greiðslustöðvun í fyrrahaust. Síðan voru gerðir nauðarsamningar á þann veg að Kaupfélagið greiði 21 pró- sent af skuldum sínum. - Við eigum að standa skil á tveimur þriðju af skuldunum á þessu ári og af- ganginum á því næsta, þannig að það tekur okkur um það bil árið að vinna okkur út úr þessu. Það gemm við meðal annars með því að selja ýmsar eignir sem Kaupfélagið á hér á staðnum, meðal annars nokkur íbúðarhús og fokhelt iðn- aðarhúsnæði, segir Garðar Halldórsson kaupfélagsstjóri, sem tók við því starfi eftir að gengið hafði verið frá greiðslu- stöðvuninni. Gamla sláturhúsið, þar sem fiskur var verkaður utan sláturtíðar í eina tíð, stendur nú autt, og ekki hefur tekist að finna því nýtt hlutverk. Það var ein- göngu notað sem sláturhús eftir 1976, en þá hófst starfsemi í nýreistu frystihúsi. Eftir það var hætt að vinna fisk í slátur- húsinu á milli sláturtíða. Ýmislegt er einnig verið að gera til að laga sjálfan verslunarreksturinn. Garðar segir að helst sé litið til þess sem sé að gerast á Húsavík, en þar er verslun að sjálfsögðu í bullandi samkeppni við Ak- ureyri. Einn vandinn er að sjálfsögðu mikill flutningskostnaður, en þar hafa heildsalar stundum hlaupið undir bagga. Vandi íbúanna á Þórshöfn er hinsvegar sá að þeir eiga óhægt með að beina inn- kaupum sínum annað finnist þeim verð- lag of hátt heimafyrir, þar sem nokkur hundruð kílómetra leið er að fara í næsta stórmarkað. En þeir hjá Kaupfélagi Langnesinga reyna hvað þeir geta, lækk- uðu til dæmis verð á allri vöm um 10 prósent fyrir síðustu jól. Einn daginn fyrir tveimur árum var fiskbúðin á Þórshöfn lögð niður og af- greiðsluborðið fjarlægt. Eftir urðu Einar Lárusson, sem hafði staðið bak við þetta afgreiðsluborð í áratug, og gamla púltið þar sem síðasti verðlistinn liggur enn og letrið farið að dofna undan sólarljósinu frá glugganum. - Nú geri ég við bretti, sæki póstinn og snatta svona ýmislegt, segir Einar, þegar Vinnan lítur inn í gömlu fiskbúðina, sem þó er ekki lengur fiskbúð. Hún var í litlu herbergi í frystihúsinu þar sem er innan- gengt í vinnslusal Hraðfrystistöðvarinnar. Þangað sótti Einar fiskinn sem hann seldi Þórshafnarbúum og ferðamönnum sem áttu leið um plássið. - Ég var með mikið úrval í búðinni: ýsu, þorsk, lúðu, kola og steinbít og verk- aði allt sjálfur, var meðal annars með gellur, kinnar, bútung, siginn fisk og salt- fisk, segir þessi fyrrverandi fisksali. Hann skrifaði allt verð niður á blað og miðaði það hvorttveggja við heil og hálf kfló, og það fréttum við að hann hefði átt til að bæta aðeins á vigtina eftir að við- skiptavinimir höfðu borgað. Enda sjá margir eftir fiskbúðinni hans Einars Lár- ussonar, sem Hraðfrystistöðin átti raunar og rak, og víst er að núorðið er erfiðara að fá góðmeti eins og gellur, kinnar, bútung og siginn fisk á Þórshöfn en áður var. En hvers vegna var fiskbúðin þá lögð niður? Sjálfur segist hann eiginlega ekki vita það. Líklega var sú breyting þó hluti af nútímanum. Það þótti víst hagkvæmara að flytja fisksöluna í Kaupfélagið og selja fiskinn úr kæliborði. VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.