Vinnan - 01.09.1992, Blaðsíða 21
að spá í framtíð fiskvinnslunnar og laga
hana að því sem við trúum að best henti,
segir Jóhann Jónsson.
Þegar talið berst að kvótum og veiði-
stjóm hefur Jóhann ýmislegt að segja.
Þarf að tryggja atvinnuréttinn?
- Að mínu viti er valdi þeirra sem
starfa við sjávarútveg ákaflega misskipt.
Það er líka mismunandi hvernig menn
fara með það vald sem þeim er falið, því
sumir þekkja hverjir hagsmunir þeirra
eru, aðrir gera það ekki. Að mínu mati
hefur verkalýðshreyfingin gleymt að það
er ekki nóg að tryggja kjör verkafólks,
það þarf einnig að tryggja atvinnurétt
þeirra sem vinna við fiskverkun í landi.
Réttarstaða þess fólks er verr tryggð en
þeirra sem vinna við sjóinn, hvað varðar
ráðstöfun aflans, segir hann. Þegar hann
er spurður að því hvort hann meini með
þessum orðum að atvinnuréttur land-
verkafólks yrði tryggður með svonefnd-
um byggðakvótum segist hann ekki vilja
setja neinn merkimiða á þessa skoðun
sína, það þurfi einfaldlega að finna ein-
hverja leið út úr þessum vanda.
- Það sem ég meina er að við þurfum
að tryggja hag fólksins sem byggir lífsaf-
21
Jóhann Jónsson:
„Mérfinnst grátlegt að horfa upp á að ekki
skuli vera lögð megináhersla á það í kjara-
samningum að tryggja stöðu landverka-
fólks
komu sína á fiskverkun. Mér er sama
hvað sú lausn er nefnd. Þegar kvótalögin
voru sett árið 1982 var það gert til að
vemda fiskistofnana, en ekki til að flytja
fólkið til í landinu. Fólkið sem vinnur í
landi við fiskvinnslu á að hafa rétt til
auðlindarinnar eins og þeir sem stunda
sjóinn.
Þessu fólki er hinsvegar ekki tryggður
þessi réttur, þó svo það greiði jafn mikið
til samfélagsins í skatta og skyldur og
aðrir. Það þarf að móta fiskvinnslustefnu
rétt eins og fiskveiðistefnu, tryggja að
vinnslan hafi sama rétt og veiðamar. Mér
finnst grátlegt að horfa upp á að ekki
skuli vera lögð megináhersla á það í
kjarasamningum að tryggja þessa stöðu
landverkafólks, segir hann.
Talið berst á ný að Þórshöfn og
vandamálunum þar. Eitt vandamálanna
er að dregið hefur úr trillubátaútgerð
þaðan og þeim hefur farið fækkandi sem
róa á línu.
- Að mínu mati er tvöföldun á línu-
kvóta fyrir trillumar mjög mikilvæg fyrir
sjávarpláss sem byggja á bátaútgerð.
Hráefnið er yfirleitt mjög ferskt og þess-
ar veiðar skapa mikla atvinnu, línuveiðar
eru oft snar þáttur í atvinnulífi þessara
staða. Það er mikill skaði fyrir atvinnu
hér ef þetta verður aflagt og ekki séð
hvað við tekur í þessum byggðum, segir
Jóhann Jónsson framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar h/f í samtali við
Vinnuna.
Fiskbúðin er
horfin en eftir
stendur Einar
Lárusson við
gamla púltið þar
sem enn liggur
síðasti verðlist-
inn hans, með
máðu letri.
VINNAN