Vinnan - 01.09.1992, Side 23
Þórshöfn
23
Koli til
Bretlands
Geir ÞH 150 er einn af hornstein-
um atvinnulífs á Þórshöfn. Jónas
Jóhannsson skipstjóri og áhöfn
hans sækja sjóinn stíft og leggja
jafnt og þétt upp hjá Hraðfrystistöð-
inni.
Einstöku sinnum leyfir Jónas sér þó
að ísa fisk í gám og selja burt af staðn-
um. Þegar okkur bar að, annan júlí í
sumar, hafði Geir komið að landi með 18
tonn af kola og piltamir vom að setja 12
tonn í gám sem átti að fara til Bretlands.
- Þetta er sosum ekkert, ég er fyrst og
fremst að athuga hvað ég fæ fyrir fiskinn
þama, segir Jónas þegar hlé er gert á
vinnunni.
Utgerð Geirs er gamalt fjölskyldufyr-
irtæki. Faðir hans, sem nú er látinn, byrj-
aði með trilluna Geir, keypti síðan stærri
Geir og loks þennan, sem er 70 brúttó-
rúmlestir. Nú er útgerð bátsins í höndum
Jónasar og móður hans....
Sveinbjörn Joensen bíður œðrulaus eftir
því að þorskurinn láti sjá sig á ný savo
hann geti haldið áfram að sœkjœ annfrá
Þórshöfn.
ÖRYGGISSKÓR
Mikið úrval af hinum viðurkenndu þýsku OTTER
öryggisskóm á mjög góðu verði.
o
Skeifunni 11D,
sími 686466
Aðrir helstu útsölustaðir:
Húsasmiðjan - Reykjavík, Skapti - Akureyri,
S.G. búðin - Selfossi, Vírnet hf. - Borgarnesi.
VINNAN