Mosfellsblaðið - 01.03.1999, Qupperneq 9
Innan félagsmiðstöðvarinnar Bólsins er hópur ungra krakka sem kalla sig
Gríslingamir og er það leiklistarhópur. Fréttafulltrúa Mosfellsblaðsins var boð-
ið á frumsýningu verks þeirra sem þau
kalla „Hanskinn á gólfinu“. Leikstjóri og
höfundur verksins, ásamt Gríslingunum,
er Halla Gunnarsdóttir sem hefur frá unga
aldri, og er nú ekki gömul, verið með ann-
an fótinn í leiklistinni. Leikritið er frum-
samið og eins og segir í ávarpi leikstjóra
„...og loksins set ég á svið mitt fyrsta
verk.“, og það skal tekið fram að leikstjór-
inn er einungis 19 ára gömul stúlka hér í
Mosfellsbæ. Höllu hefur tekist vel upp
með að koma öllum krökkunum í hlutverk
og gaman á sjá hvað persónumar skila sér
vel frá hverjum og einum leikara. I verk-
inu em t.d. fullorðnir menn, pæjumar,
námshesturinn,
h o m m i n n ,
stefnumóta-
línu-fólkið og
ileiri og fleiri.
Leikritið ger-
ist á kaffihúsi
og þar koma að miklu leiti fastagestir, sögumaður
fylgir hverri persónu eftir að hún kemur fram og tal-
ar í ljóðrænu formi sem setur skemmtilegan svip og
brýtur upp verkið.
Alveg er ég viss um að fleiri verk eiga eftir að
sjást á íjölum Mosfellsbæjar og víðar eftir þessa
snjöllu stúlku og ráðlegg ég öllum að sjá Hanskann
á gólfinu. ÓlöfBjörk Bjömsdóttir.
Fjölskyldutímar í íþróttahúsinu
Nú em afstaðnir skipulagðir fjölskyldutímar í íþróttahúsinu frá 1.-6. bekkjar
Varmárskóla. Tókst þetta með ágætum en hefðum við viljað sjá fleiri foreldra og
nemendur hverrar bekkjardeildar og þá sérstaklega síðastliðinn laugardag með 6.
bekk.
Notaður var nýi salurinn og fengu krakkamir ásamt sínum fjölskyldum og vin-
um að spreyta sig í flestum þeim íþróttum sem hægt er að finna. Þama var t.d.
körfubolti, borðtennis, hoppukastali, badminton, skák, stangarstökk, sund og
lengi má telja. Allt var þetta frítt og var þetta hugsað sem ljölskyldustund í
íþróttahúsinu. Vonum við að framhald verði á þessari uppákomu og verður það þá
væntanlega með því sniði að íþróttahúsið verði opið í tvo klukkutíma á áður aug-
lýstum helgum og þá allar bekkjardeildir saman.
Kveðja, fyrir hönd stjómar foreldrafélagsins
Ólöf Björk Björnsdóttir, fonnaður
Jómfrúarholan
í landi Lundar í Mosfellsdal er nú
staðsett undarlegt fyrirbæri, sem líkast
er geimstöð. Þama er kominn nýjasti
og fullkomnasti jarðborinn frá Jarðbor-
unum h/f og er hann með sína jómfrú-
arholu. Borinn er sá fullkomnasti á
landinu, mjög sjálfvirkur og handhæg-
ur í meðfömm, Talið er að hann geti far-
ið niður á 2000 metra við ákveðnar að-
stæður, þegar myndin er tekin er hann í
um 600 metra dýpi. Fjórir menn vinna
við hann á hverri vakt, yfirborstjóri,
bormaður og tveir aðstoðarmenn. Það
vekur athygli að kona skipar sæti á
einni vaktinni.
Sleipnir, en það er nafn borsins, er að
gera mælingaholu í útjaðri heitavatns-
svæðis til upplýsinga, en ekki að beisla
vatn. Að þessu jómfrúarverkefni loknu
fer Sleipnir á Selfoss. Skemmtilegt er
að þetta fullkomna tæki skuli hefja sína
þjónustu við landsmenn hér í vöggu
heita vatnsins.
Kiwanismenn lialda félagsvist hvert föstudagskvöld allan veturinn við góða aðsókn. - hmi-
falið í vistinni er kaffi og meðlœti, en Kristín Jónasdóttir hoiftr hér yfir pönnukökur sínar
og alls kyns krœsingar.
RÉTTINGAR • YFIRBYGGINGAR
VIÐGEROIR • BÍLAMÁLUN
•CELETTE
Fullkomnustu grindarréttinga- og
mælitæki sem vö! er ó hér ó landi
BÍLASMIÐJAN HF
Flugumýrl 20 • 270 Mosfcllsb.v
Símll 566 8200-566 8201 » Faxt 566 8202
Setfang: nybiht'eentrum.is
of]4‘í9o
25 ára
i\lo8fcll8blaðið e