Stefnir - 01.07.1984, Síða 11

Stefnir - 01.07.1984, Síða 11
FRIÐUR OG FRELSI í 35 ÁR ARNÓR SIGURJÓNSSON: Valdajafnvægið á Norður—Atlantshafi AWACS-vél varnarliðsins á könnunarflugi. Inngangur I þessari grein mun ég leitast við að svara eftirfarandi spurningum: - A hvaða hernaðarlegum forsendum tengist ísland hinu svokallaða valdajafnvægi: - Hverjir eru helstu varnar- og öryggishags- munir Islendinga í dag. Eru þeir í samræmi við ríkjandi utanríkis- og varnarmálastefnu stjórnvalda: - Hverniggeta íslendingar helst tryggt það, að þessir hagsmunir verði í heiðri hafðir í sam- keppni við öryggishagsmuni og sjónarmið annarra þjóða í Atlantshafsbandalaginu: Heimildir Til þess að leita svara við þessum spurn- ingum hef ég m.a. stuðst viö opnar heimildir sem eru allítarlegar en þó ekki tæmandi. Mun ég fjalla fyrst um landfræðilega legu íslands, þá um hernaðarlega þróun á N-Atlantshafinu og tengja það varnar- og öryggishagsmunum íslands. 1. Inn í Norður-Atlantshafið eru þrjár sigl- ingaleiðir. Frá Barentshafi, Eystrasalti og Gíbraltar. Frá Barentshafinu geta kjarn- orkuknúnir kafbátar einnig siglt undir ís- hafið og inn í Norður-Atlantshafið. 2. Á svæðinu fyrir norðan ísland austan við Jan Mayen og fyrir sunnan Bjarnareyju geta kafbátar auðveldlega falið sig. Haf- svæði þetta er djúpt og þar mæta heitir og saltríkir sjóstraumar Austur-Grænlands- straumnum. Mikið hafdýpi og mismun- andi saltmagn og hitastig í straumnum gerir alla kafbátaleit þar erfiða viðfangs. 3. Frá Grænlandi, yfir Island og til Bretlands er að finna upphækkun á hafsbotninum. Eru það talin hin eðlilegu skil milli Norður-Atlantshafsins og Atlantshafsins. Upphækkun þessi er nefnd GIUK-hliðið og þurfa öll skip og kafbátar að sigla á milli þeirra landa er þar liggja, til þess að kom- ast inn í Atlantshafið og öfugt. Þá liggur stysta loftlína milli Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna yfir Norður- Atlantshafið og ísland. 4. Það ertiltölulega auðveltverk að loka sigl- ingaleiðinni frá Eystrasalti til Norður-At- lantshafsins, t.d. með lagningu tundur- dufla. Á sama hátt má loka siglingaleið- inni frá Miðjarðarhafi til Atlantshafsins í Gíbraltarsundi. Öðru máli gegnir unt sigl- ingaleiðina frá Barentshafi til Norður-At- lantshafsins. í Murmansk og víðar á Kola- skaganum cru íslausar hafnir nothæfar allt árið. Liggur ískanturinn á sumrin austan við Novaya Zentlia og á veturna ca. 30-60 sjómílur austan við Murmansk og ca. 60- 100 sjómílur fyrir norðan Nordkapp. 5. Hernaðarlegt gildi íslands byggist á þess- ari landfræðilegu staðsetningu landsins í Atlantshafinu. í þessum „þrengslum" sem GIUK-hliðið er. má fylgjast með ferðum skipa, flugvéla og kaflráta á leið frá Norður-Atlantshafi til Atlantshafsins og öfugt. Frá íslandi er því einnig hægt að hindra ferðir þessara farartækja umhverfis landið eða stöðva alveg með því að granda þeim. Það er því lega landsins og þau mann- virki sem hér finnast t.d. hafnir og flug- vellir sem gera landið hernaðarlega mikil- vægt, en ekki varnarviðbúnaður okkar sbr. varnarliðið eitt sér eða radarkerfi eins og sumir halda fram. 6. Skilningur á þessu hernaðarlega grund- vallaratriði er forsenda þess, að geta áttað sig á eðli þeirrar þróunar er átt hefur sér stað á Norður-Atlantshafi síðustu 15 árin og þýðingu hennar fyrir íslenska öryggis- og varnarhagsmuni. 7, Síðustu 15 árin hefur hið hernaðarlega valdajafnvægi á Norður-Atlantshafi gjör- breyst. Sovétríkin hafa lagt á það mikla áherslu að verða stórveldi á heimshöfum sem og þeir eru á landi. Hinsvegar eiga þeir fáar hafnir sem nothæfar eru allt árið. Hafnirnar á Kola-skaganum eru einar af þeim og þaðan má sigla um Barentshafið og inn í Norður-Atlantshafið. Á þessum árum hafa Sovétríkin byggt upp 4 flota: Norðurflotann, Eystrasaltsflotann, Svartahafsflotann og Kyrrahafsflotann. Af þessum flotum er Norðurflotinn stærstur. Helstu hafnir og flotastöðvar eru í SEVEROMORSK, MOTOSKIFLÓ- ANUM, POLYARNY, SEVEROD- VINSK og ARKANGELSK. STEFNIR 11

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.