Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 12

Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 12
FRIÐUR OG FRELSI í 35 ÁR Áætluð samansetning Norðurflotans er: Eldflaugakafbátar: 49 Árásarkafbátar: 120 Flugmóðurskip: 1 Stærriherskip: 88 (1000 tn-25000 tn) Minni herskip: 135 (50tn-1000tn) Liðs- og birgðaflutn- ingaskip: 12 Hjálpar- og birgða- skip: 40 Sprengj uflugvélar: 85 (Badger, Backfire, Blinder) Eldneytisflutninga- vélar og könnunar- flugvélar: 75 Flugvélar ætlaðar til kafbátahernaðar: 115 (BearF, Mail, Hor- mone A, Haze A) Flutningavélar: 95 8, Megineinkenni sovéska Norðurflotans eru eftirfarandi: (1) Mikill fjöldi eldflaugakafbáta eða u.þ.b. 70% af öllum slíkum kafbát- um í sovéska flotanum. Telja má, að staðsetning þessara kafbáta sé fyrst og fremst hluti af ógnarjafnvægi stór- veldanna og því ekki beint gegn Is- landi sérstaklega. Hinsvegar notar þessi floti hafsvæðin umhverfis land- ið, og erum við m.a. af þeim ástæð- um mikilvægur hlekkur í áðurnefndu valdajafnvægi á Norður-Atlantshafi. (2) Hin mikla áhersla sem lögð er á kaf- bátahernað. Á ég ekki aðeins við eld- flaugakafbátana sem gegna strateg- isku hlutverki, heldur og árásarkaf- bátana (ca. 120). í samvinnu við gagn- kafbátaflugvélar (ca. 115) og nýtísku- leg stærri herskip á borð við KIROV er Norðurflotinn nú þess megnugur, að stöðva eða hindra siglingar óvopn- aðra NATO-skipa til Evrópu og Nor- egs frá USA. (3) Að Norðurflotinn hefur eitt af fjórum flugmóðurskipum sovéska flotans. Talið er, að kjarnorkuknúið flugmóð- urskip sé í smíðum og sé allt að 60000 tn á stærð. Þetta gefur til kynna, að ákveðnar breytingar í uppbyggingu sovéska flotans eigi sér stað, til þess að mæta þörf sovéskra flotadeilda fyrir flugvélavernd. Án verndar orrustu- flugvéla geta flotadeildir ekki athafn- að sig á yfirborði sjávar á stríðstím- um án þess, að eiga það á hættu, að verða fyrir loftárásum. Möguleikar Norðurflotans á því, að athafna sig í lofti yfir Norður-Atlantshafi án nægj- anlegs fjölda flugmóðurskipa hafa aðallega byggst á þeirri forsendu, að í upphafi ófriðar yrði gerð innrás í Norður-Noreg og flugvellir og hafnir þar yrðu notaðar af Norðurflotanum. Með auknum fjölda sovéskra flug- móðurskipa á Norður-Atlantshafi aukast um leið líkurnar á því, að sov- éski Norðurflotinn hafi bolmagn til þess, að halda uppi stórfelldum hern- aðaraðgerðum á og við ísland komi til hefðbundinna styrjaldarátaka. 9. Á sjálfum Kola-skaganum búa u.þ.b. 900.000 manns. Fyrirutan námavinnslu og fiskveiðar stundar fólk þetta störf við flot- astöðvar Norðurflotans. Góðar veg- og járnbrautarsamgöngur eru til og frá Len- ingrad. Á Kola-skaganum eru ca. 16 steyptir flugvellir sem geta afgreitt mikinn fjölda flugvéla. Öflugt herlið er staðsett þar og það má auka með útkalli og hervæðingu. Þannig telja Svíar, að 10 sovésk herfylki megi senda yfir Eystra- saltið á 10 dögum og 3 fallhlífarherfylki megi senda hvert sem er í Norður-Evrópu á 1 sólarhring. Að þeirra mati má auka herstyrk Sovétmanna á Kola-skaganum um 12-14 herfylki á 10 sólarhringum. Þetta sýnir svo ekki verður um villst, að áhyggjur nágranna okkar út af þeirri upp- byggingu sem átt hefur sér stað á Kola- skaganum, eru á rökum reistar. Norður- flotinn á Kola-skaganum er í dag stærsta herstöð í heimi. Hann er þess megnugur að gera árásir á Noreg bæði úr lofti og á landi og sjó. Hann er einnig megnugur þess, að gera árásir á Island ef til styrj- aldarátaka kemur. 10. Meginhlutverk Norðurflotans getur því verið: - Að tryggja yfirráð sín yfir Barentshafi og Kola-skaganum. - Að tryggja skotsvæði eigin kafbáta. - Að tryggja samgönguleiðir á sjó í gegn- um GIUK-hliðið fyrir eigin flotadeildir. - Að hindra liðs- og birgðaflutninga frá Bandaríkjunum til Evrópu. - Að styðja hernaðaraðgerðir í landi. 11. ísland tengist þessum hernaðarumsvifum á tvennan hátt. í fyrsta lagi er staðsetning Islands í Norður-Atlantshafi þess eðlis, að fylgjast má með allri umferð skipa og kaf- báta um GIUK-hliðið. Það er því einnig hægt að hindra eða stöðva þessa umferð með hernaðaraðgerðum. f öðru lagi er ís- land óhjákvæmilega tengt þeim miklu liðs- og birgðaflutningum sem fyrirhugaðir eru frá Bandaríkjunum og Kanada til Evrópu ef til styrjaldar kemur. Staðreyndin er sú, að herstyrkur sá sem NATO-löndin hafa reiðubúinn ef til átaka kemur í Evrópu er mun minni en tilsvarandi herafli Varsjár- bandalagsins. Til þess að tryggja varnar- getu sína í hefðbundinni styrjöld gegn Varsjárbandalaginu þurfa NATO-löndin m.a. að senda 1,5 millj. hermanna til Ev- rópu, 12 millj. tn. af birgðum og 100 millj. tunnur af olíu. Gert er ráð fyrir því, að flogið verði með hermennina yfir Atlants- hafið. Hinsvegar munu birgðaflutningar og þungaflutningar fara fram með skipum. í upphafi mun því þurfa 2500 skip tii flutn- inga, ogsíðar ca. 1000 skip á mánuði. Dag- lega eru að jafnaði 3000 skip á ferð milli NATO-þjóða. 12. Hafa verður í huga þá staðreynd, að vega- lengdir frá Bandaríkjunum og Kanada eru mun lengri en frá löndum Varsjárbanda- lagsins til Evrópu, eða ca. 650 km á móti ca. 6000 km. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir NATO-löndin, að nýta hugsanlegan viðvörunartíma vel og hefja þessa liðs- og birgðaflutninga áður en að til styrjaldar- átaka kemur, því skipaferðir taka langan tíma. 13. Ef Norðurflotinn á að geta notað hluta af eldflugakafbátum sínum gegn Bandaríkj- unum og hindrað eða stöðvað umrædda liðs- og birgðaflutninga til Evrópu verður hann að: (1) Gera innrás á ísland og tryggja eigin yfirráð yfir höfnum og flugvöllum í Iandinu (2) eða að gera árásir á flugvelli og hafnir í landinu svo að NATO-löndin geti ekki hagnýtt sér þau til árása gegn Norður- flotanum. I hefðbundnu stríði er sá mögulciki fyrir hendi að Norðurflotinn gcri innrásá Island ef hann nýtur verndar orrustuflugvéla. Með því, að hertaka flugvelli í Norður- Noregi, Suður-Noregi og síðar Islandi, til eigin nota eða fjölga eigin flugmóður- skipum getur Norðurflotinn náð því mark- miði, að rjúfa eftirlits- og aðvörunarkerfi NATO-ríkjanna og tryggja flugvélavernd fyrir eigin flota bæði til varnar og árása. Þannig munu líkurnar á því, að Norðurflot- inn geti athafnað sig á siglingalciðum og flugleiðum NATO-ríkjanna í Atlantshafi aukast að miklum mun. Þessi hugsanlega hernaðarlega þróun er svo alvarleg, að hún myndi vafalítið leiða til gagnárásar af hálfu NATO-ríkjanna á ísland og þann hluta Norðurflotans sem þar væri staðsettur. Hinn möguleikinn, að Norðurflotinn geri árásir á flugvelli og hafnir á íslandi í upp- hafi styrjaldarátaka er mjög líklegur. Myndu sl íkar árásir vafalítið skiptast í loft- árásir með flugvélum af gerðinni „Badger" (Tu 16) og „Backfire" (Tu- 22M). Báðar þessar flugvélar geta tekið eldsneyti á lofti og hafa því flugþol að Is- iandi og til baka til Kola-skagans ef þörf krefur. Þær eru einnig búnar stýriflaugum (stand-off missiles) sem skjóta má að skotmarki úr 300-800 km fjarlægð. Þá getur Norðurflotinn lagt tundurdufl í helstu hafnir á íslandi og siglingaleiðir. Þetta er hægt með því að skjóta tundur- duflum t.d. út um tundurskeytarör kaf- báta. Heldur ekki má útiloka starfsemi skemmdarverkamanna, sem beinst getur að íslenskum mannvirkjum eins og t.d. Keflavíkurflugvelli. Það er mat mitt, að hernaðarleg markmið og geta Norðurflotans séu svo bundin því, að ná yfirráðum yfir Norður- Atlantshafi ef til hefðbundinna styrj- aldarátaka kemur, að ísland ásamt Nor- egi muni verða fyrir árásum með tilheyr- andi eigna og manntjóni. Hversu stórt það tjón verður, veltur m.a. á vörnum okkar og viðbúnaði. 12 STEFNIR

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.