Stefnir - 01.07.1984, Page 19
göngu. Sovétmenn spyrja engan að því hvort
þeir megi skipta sér af lausn mála, sem varða
varðveislu friðarins í heiminum, frelsi og sjálf-
stæði alþýðunnar og hina víðtæku hagsmuni
lands okkar. Pað er réttur okkar vegna stöðu
Ráðstjórnarríkjanna sem stórveldis. Hvenær
sem hættulega atburði ber að höndum, hversu
langt í burtu sem það er, verður við því búist í
gjörvöllum höfuðborgum heimsins að Ráð-
stjórnarríkin bregðist við.“l2)
Af þessu leiðir að ég er eindregið þeirrar
skoðunar, að það ákafa pólitíska trúboð, sem
nú er haldið úti á Vesturlöndum og miðar að
einhliða afvopnun, sé síst til þess fallið að auka
friðarlíkur í heiminum, eða stemma stigu við
uppgangi alræðisstjórnarfars í heiminum.
Orð Milovan Djilas...
Ég tek undir með Milovan Djilas, fyrrum
forystumanni í júgóslavneska kommúnista-
flokknum, þegar hann segir í grein í breska
blaðinu The Times:
„Óttinn sem mönnum stafar af kjarnorku-
styrjöld, hugsanlegri útrýmingu milljóna
manna oggervallri menningunni, á mikinn þátt
í því að menn misskilja eðli hins sovéska
stjórnarfyrirkomulags. í samanburði við slíka
styrjöld virðist mönnum munurinn á Austur-
og Vestur-Evrópu litlu varða. Krafa um frið og
afvopnun, og krafa um samdrátt og afturköllun
kjarnavopna frá Evrópu sýna þennan skilning
fólks á kjarnorkustyrjöld. Pólitísk áróðursvél
Ráðstjórnarríkjanna notar sér þetta í þágu
eigin hernaðarhagsmuna."
„Hættan á kjarnorkustyrjöld er viðurstyggi-
legur raunveruleiki. En hið sama er að segja
um Ráðstjórnarríkin. Á meðan að Ráð-
stjórnarríkin eru til, þurfa Vesturveldin að við-
halda kjarnorkujafnvæginu, með því að þróa
ný kjarnorkuvopn".I3)
Tilvitnanir:
1. Til þessarar sögufrægu ræöu hins breska forsætis-
ráöherra hefur oft veriö vitnaö. Hér er stuðst við
þýðingu þá sem aö Baldur Guðlaugsson og Páll
Heiðar Jónsson nota í bók sinni 30. marz 1949,
bls. 14 (Reykjavík 1976).
2. V.I Lenin, Selected Works (New York Inter-
national Publishers 1943) Vol. 9 pp 242 og 267.
Hér er stuöst við ívitnun úr ævisögu Kissingers
White House Years, bls. 116 (1979).
3. Kissinger (1979) bls. 117.
4. Kissinger (1979) bls. 117.
5. Kissinger (1979) bls. 119.
6. Vladimir Bukovsky: The Peace Movement &
The Soviet Union í bandaríska tímaritinu Com-
mentary Vol. 73, númer5, í maí 1982, bls. 25-41.
7. Zbigniew Brzezinski: Between two ages bls. 63-
65 (Penguin Books 1976).
8. Robert O. Keohane og Joseph S. Nye: Power
and Interdependence bls. 3. (Little Brown &
Company 1977).
9. L. Trotsky: The Revolution Betrayed.
10. Leonard Schapiro: Totalitarianism (Macmillan
1978).
11. Hugmyndum þeirra Peter T. Bauer og Basil
Yamey er vel líst í ritgerðum þeirra félaga í bók-
inni The First World & The Third World (Uni-
versity of Rochester Policy Center Publication
(1978)).
12. Þessi ívitnun er sótt í bók breska sagnfræðingsins
Robert Conquests, Present Danger (Basil Black-
well 1979) bls. 35-36.
13. Milovan Djilas: Why the West must not lower its
guard. Greinin birtist í júnímánuði árið 1983.
Kinar K. Guðfinns.son lauk B. A. prófi í
stjórnmálafræði frá Essexháskóla í
Bretlandi 1981. Hann var bladamaður
við Vísi 1975-1977. við skrifstofustörf í
Bolungarvík 1979-1980 og hefur verið
útgerðarstjóri í Bolungarvík frá 1981.
Hann var í stjórn SUS 1975-1977. hefur
átt sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
frá 1981 og verið formaður utanríkis-
málanefndar SUS frá 1981. Varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum frá 1979.
STEFNIR
19