Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 32

Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 32
ÍSLAND í NORRÆNU SAMSTARFI Húsið í Vatnsmýrinni. Hvenær rísa slík hús í höfuðborgum hinna norðurlandanna. félagsrekstur í einu eða öðru formi innan lýð- ræðis, á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa haldið fast við óbreytta hætti í viðskiptum, þar sem framboð og eftirspurn ræður verðlagi, bankar eru í eigu einstaklinga eða félaga og ríkisafskipti af viðskiptum almennt þekkjast ekki. Við höfum haldið okkar stefnu, miðað við lítið þjóðfélag, sem vill tryggja þegnum sínum með aðstoð ríkis í einhverjum mæli hin sæmiiegustu lífskjör. Smæðin er slík að aflist ekki þetta árið eins og hitt, kemur það beint við pyngju þegnanna. Hér eru þrír helstu bankar í ríkiseign, og fjármunum er miðstýrt með þeim hætti, að þingið er í stórhættu að tapa virðingu sinni vegna afgreiðslu á skuldaskilum einstakl- inga, ríkisábyrgða o.sfrv. f>að er því ekki að sjá að Bandaríkjamenn hafi haft mikil áhrif á stjórnarhætti á íslandi. Þeir boða ekki að í löndum sem þeir hafa skipti við skuli taka upp sömu stjórnarhætti og í Bandaríkjunum. En þeir telja sig hafa töluvert að verja þar sem lýð- ræði er annars vegar, og hafa því beitt fjár- munum sínum og mannafla til varnar vest-. rænum þjóðum án þess að nokkrar kröfur fylgi. Þetta er nokkuð öndvert við þann trúboðsstíl, sem Sovétríkin hafa á sér í samskiptum við aðrar þjóðir, og kommúnistar, þjónar þeirra, hafa á pólitískum undraverkum í öllum lönd- um þar sem þeir starfa, hvort sem þeir vinna verk sín undir dulnefnum flokka eða beint. Eins og við berum ekki ábyrgð á stjórnmála- legum aðgerðum Bandaríkjamanna, bera þeir ekki ábyrgð á aðgerðum íslenskra ríkisstjórna, eins og kom m.a. fram í þorskastríðinu. Bandaríkjamenn hafa ekki seilst til áhrifa í menningarlífi Islendinga, og það t.d. er ekki frá þeim runnið að vilja breyta kennsluháttum í grundvallarfræðum eins og íslandssögunni. Aftur á móti gáfu þeir okkur styttu af Leifi heppna. Svo afskiptalausir sem þeir eru um okkar háttu hefur samt tekist að byggja ein- hverja Iengstu hryðju þjóðrembunnar, sem hér hefur riðið húsum á viðhorfum til þeirra, og er ekki þess að vænta að henni linni á meðan varnarliðið er hér. En þessi þjóðremba er svo skrítilega til komin, að þótt hún miði að því að koma varnarliðinu í burtu og íslandi úr Nato, miðar hún ekki síður að því að koma hér upp einskonar Angola-ríki að hætti hinna nýrri „Iýðvelda“ Afríku undir stjórn kommúnista að Islandi gengnu úr Nato. Upp frá því mundum við vita hvað væri þjóðfrelsi og þjóðernis- hyggja, m.a. með tilliti til endurskoðunar kennsluefnis í skólunr. Þjóðremban í dag er svona álíka háð sviptivindum og arfur Stalíns, enda hafa kommúnistar orðið að éta ofan í sig svo margar staðreyndir og fagnaðarerindi, að þá mundi ekkert muna um að skipta um þjóð- rembu í þágu nýrra stjórnarhátta á íslandi. Þriðju erlendu áhrifin, sem að okkur stefna, koma úr skrítinni átt og nokkuð óvæntri. Á stríðsárunum voru Noregur og Danmörk her- setin af Þjóðverjum. í báðum þessum löndum spratt upp öflug andspyrnuhreyfing, að vísu heldur síðar í Danmörku, og í Svíþjóð höfðu vinstri menn farið lengi með völd undir forsæti Tage Erlander, sem ferðaðist í strætisvagni í vinnuna. Svíar komu líka við sögu stríðsins, vegna þess að þeir heimiluðu flutning á hráefni um land sitt til Þýskalands nasistanna. Eftir stríðið urðu andspyrnuhreyfingar í Noregi og Danmörku hið nýja pólitíska afl í löndunum. Þar voru sömu aðilar að verki og t. d. DeGaulle kvað niður í Frakklandi á fyrstu dögum endur- heimts frelsis Frakka. Svíar urðu einnig mjög til vinstri að stríðinu loknu, einkum til að vinna sig í álit hins volduga sigurvegara í austri, og sendi jafnvel hópa flóttamanna yfir Eystrasalt beint fyrir aftökusveitir kommúnista. Þessi þrjú lönd og síðar Finnland, sem mátti sig hvergi hræra í stríðslok vegna granna síns, sem hélt Finnum uppteknum fyrsta kastið við að greiða stríðsskaðabætur, horfðu til litla íslands þegar Ijóst varð að íslendingar ætluðu að taka þátt í vörnum vestrænna þjóða, og gerðu sér upp kvíða út af þjóðernislegri stöðu lands- manna, jafnvel amerikaniseringu þeirra, en henni var logið upp á okkur af Islendingum, sem áttu vinum að mæta meðal vinstri sinnaðra stjórnvalda og fyrrum andspyrnumanna á hinum Norðurlöndunum. I framhaldi af þessu, og eftir að efnt hafði verið til samstarfs Norður- landa, þótti hinum vísu mönnum, sem ferðuð- ust í strætó öllu lengur en ráðherrar í ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar 1971-1974, tími til kominn að bjarga íslenskunni, sem feður þeirra höfðu týnt, frá „Guy’s and Doll’s" mállýsku amerikaniseringar, og íslendingum frá Unilever sjálfum. Þeir ákváðu að láta byggja norræna menningarmiðstöð í Vatns- mýrinni í Reykjavík, fylla hana af sendi- kennurum, sem voru skólaðir í norrænum sós- íalisma og vissu hvað íslendingum var fyrir bestu, en buðu að auki norrænu menningar- fólki hingað til að flytja okkur fagnaðarerindi vinstri manna að mestum hluta. Þessi aðgerð jók mjög vöxt og viðgang kommúnista á Is- landi, sem bentu á að það væru fleiri en þeir, sem hefðu fundið sannleikann í Stalín, Ung- verjalandi og Tékkóslóvakíu, svo dæmi séu nefnd. Auk þess bjuggust íslendingar við ein- hverju allt öðru en þeim sendingum sem nor- rænir menn ástunduðu hingað. En vegna þeirra andþrengsla, sem sambúðarmálin í Vatns- mýrinni voru háð, sást ekki út fyrir hringinn, og upplýsingastreymið frá Norræna húsinu til hinna Norðurlandanna var einkum á þann veg, að víst væru íslendingar ameríkaniseraðir, og þyrftu mikillar norrænnar menningarhjálpar við. Af þessu hafa margir íslendingar haft atvinnu alveg fram á þennan dag. Það hlýtur auðvitað að vera krafa Islendinga, sem telja sig ekki þurfa á þessari norrænu menningar- viðleitni að halda sérstaklega, að norrænum húsum verði þegar komið upp í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Þessi krafa okkar byggist á því, að eigi að rekaeinhverja sérstaka norræna menningarstarfsemi, hljóti að verða að gera það á öllum Norðurlöndunum jafnt. Að öðrum kosti beri að líta svo á, að hin Norðurlöndin hafi haft þá skoðun frá upphafi að Islandi hafi þurft að bjarga sérstaklega. Menn eru að vísu þráfaldlega að neita þessari björgunarþörf á bak við góðverkið. En húsið í Vatnsmýrinni talar sínu máli. Þeir sem leggja kapp á að telja kommúnista til meinlausra manna í íslensku stjórnmálalífi, hafa fyrir sið að sussa á lýsingar á aðförum þeirra við að halda íslendingum til menningar, eins og hér hefur verið getið. Hægri menn vilja halda hinn gullna meðalveg til grafar, jafnvel þótt það kosti endalok þess lýðræðis, sem við búum við. Menn skulu gæta að því að lýðræði er ekki annað en vinnuplan frjálsra manna, sem eiga að ganga hinn gullna meðalveg á meðan að lífsháttum þeirra er ekki sótt með óviðurkvæmilegum hætti. En um leið og að þessu lýðræði er sótt með skrumi og lygi eiga menn hins gullna meðaivegar að standa upp og 28 STEFNIR

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.