Stefnir - 01.07.1984, Page 34

Stefnir - 01.07.1984, Page 34
ÍSLAND í NORRÆNU SAMSTARFI SNJÓLAUG ÓLAFSDÓTTIR: Stefna íslendinga í norrænu samstarfi Frá selningu þings Norðurlandaráðs í Reykjavík 1975. Það heyrist oft að norrænt samstarf hafi haf- ist við stofnun Norðurlandaráðs 1952, - og sé eitthvert undarlegt fyrirbrigði sem stjórnmála- menn hafi fundið upp til að geta hist og skemmt sér saman. En norrænt samstarf er miklu eldra og hefur - ásamt norrænum erjum - verið eins og rauður þráður gegnum sögu Norðurlanda um aldaraðir. Samstarf landanna, eins og það er orðið nú, er sprottið úr jarðvegi þessarar samofnu sögu, sameiginlega menningararfs, náskyldu tungna, og ekki síst hins germanska réttarkerfis. Samstarfið er orðið svo marg- slungið og á sér stað milli svo margra og óskyldra aðila að því verður engan veginn svarað í eitt skipti fyrir öll, hvort íslendingar hafi markað sér skýra stefnu í þessu samstarfi. Stefna Islendinga ræðst að sjálfsögðu af því um hvaða samstarf er að tefla hverju sinni. Þau kvenréttindafélög, sem halda uppi samstarfi við systrafélög í norrænum löndum, verða í því efni að svara fyrir sig og sama gildir um verkalýðsfélög, iðnrekendur, bændasamtök, sveitarfélög, öryrkjabandalög og verktaka- samtök svo að nokkur dæmi séu nefnd um sam- tök sem halda uppi samstarfi á norrænum vett- vangi. Markmið samstarfs þessara aðila hlýtur að vera breytilegt eftir málefnum og frá einum tíma til annars. Hið sama má segja um gildi norrænnar sam- vinnu fyrir Islendinga. Norræn samvinna hefur ekki sama gildi fyrir alla íslendinga. Fyrir þá íslendinga, sem vilja ekki hafa náin samskipti við Norðurlönd, hefur samvinnan auðvitað harla lítið gildi. Hins vegar hefur hún þó nokk- urt gildi fyrir þá íslendinga sem sækja menntun eða atvinnu til nágrannalandanna og þeir eru ekki fáir. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu íslands dvöldust í árslok 1981 8.151 íslendingar' á Norðurlöndum utan fslands. Fyrir þetta fólk hefur það afar mikla þýðingu að njóta sömu félagslegu réttinda í þeim löndum, sem það flyst til, og heimamenn hafa og að eiga jafn- auðveldan ef ekki auðveldari aðgang að menntastofnunum. Ekki hefur það síður þýð- ingu að íslendingar eru nú orðnir aðilar að sameiginlegum norrænum vinnumarkaði og sitja því margir starfshópar við sama borð og heimamenn er þeir leita sér atvinnu annars staðar á Norðurlöndum. Til þæginda er einnig að geta notað íslenskt ökuskírteini í öðrum norrænum löndum, að þurfa ekki að sýna vega- bréf við komuna þangað, að jtjóta kosninga- réttar í sveitarstjórnarkosningum og að um- ferðarlögin, og raunar allt réttarkerfið, skuli vera svipað því sem við eigum að venjast hér heima. Það er svo um þessi réttindi, eins og raunar oftast um árangur norræns samstarfs, að þau hafa fengist smám saman í litlum áföng- um. Að baki hverjum áfanga liggur þó mark- viss vinna og hugsjónir margra sem í farar- broddi hafa verið. Árangur samstarfsins er og oft þannig að hann virðist svo sjálfsagður þegar honum hefur verið náð að við tökum tæpast eftir því sem áunnist hefur frekar en við veitum athygli í daglegri önn þeim dýrmætu lýðrétt- indum sem við njótum á Islandi, þeim munaði sem aðeins þekkist í litlum hluta heimsins. Þó að ég hafi í upphafi bent á að norrænt samstarf sé annað og miklu meira en það starf sem unnið er innan Norðurlandaráðs er því starfi, sem fram fer innan vébanda þess, að þakka öll helstu réttindi, sem Norðurlanda- búar njóta nú við flutning milli landanna. Stofnun Norðurlandaráðs Frá því að hugmyndinni um Norðurlandaráð var fyrst hreyft, en það var á fundi Norræna þingmannasambandsins í ágúst 1951, og þangað til Norðurlandaráð var formlega stofnað liðu ekki nema níu mánuðir. Má það teljast stuttur meðgöngutími fyrir stofnun af þessu tagi. Til undirbúnings hafði verið skipuð nefnd sem í áttu sæti einn fulltrúi frá hverju landi. Af hálfu Islands sat þar Sigurður Bjarna- son frá Vigur, sem þá var forseti neðri deildar Alþingis. Þegar nefnd þessi lagði fram tillögur sínar um stofnun Norðurlandaráðs tilkynntu Finnar að þeir gætu ekki gerst aðilar að ráðinu vegna afstöðu Sovétríkjanna til þessa samstarfs. Þeir höfðu hins vegar mikinn áhuga á aðild, og árið 1955 vár svo komið málum að Finnar sáu sér fært að gerast aðilar þar eð Sovétríkin höfðu þá loks fallið frá andstöðu sinni. Ég get ekki látið hjá líða að minna á, að við atkvæðagreiðslur um stofnun ráðsins á sænska ríkisþinginu og á þjóðþingi Dana greiddu sósíalistar atkvæði gegn aðild að Norðurlandaráði þar sem þeir töldu tilganginn vera að koma Svíþjóð og Finnlandi inn í At- lantshafsbandalagið. Þetta var fremur undar- leg afstaða, ekki síst vegna þess að utanríkis- og varnarmál falla utan þeirra málaflokka sem Norðurlandaráð er bært að fjalla um skv. stofn- 30 STEFNIR

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.