Stefnir - 01.07.1984, Page 37

Stefnir - 01.07.1984, Page 37
ÍSLAND í NORRÆNU SAMSTARFI sér í dönsku, sænsku eða norsku eftir atvikum, en það breytir því ekki, að Islendingar geta ekki unað við þessa skipan mála. Þá er rétt að minna á þær umræður, sem orðið hafa hér á landi um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Þar búa íslendingar við að þurfa að leggja fram bókmenntaverk sín í þýð- ingum, þegar aðrar þjóðir (nema Finnar vegna sérstöðu sinnar) leggja verk sinna höfunda fram á frummálinu. Verði ekki orðið við þeirri ósk íslendinga, að dómnefnd skipi menn, sem læsir eru á íslensku, eiga Islendingar naumast samleið með hinum þjóðunum í þessum verð- launaveitingum enda ekki jafnræði með kepp- endum um verðlaunin. í fréttabréfi íslenskrar málnefndar hefur verið bent á þann vanda, sem Islendingar eiga við að glíma, þegar kemur til þess að segja til nafns á norrænum vettvangi. Til dæmis um það er ritið Nordiska samarbetsorgan, sem Norður- landaráð og Ráðherranefnd Norðurlanda gefa út á ári hverju. Margir styðjast við uppsláttarrit þetta, og þeim ntun bagalegra er, að ritið er þeim annmörkum háð, að íslensk nöfn eru oft rangrituð með því að bókstafirnir þ og ð hafa ekki verið notaðir og brodd hefur vantað yfir sérhljóða. Þar að auki er íslenskri nafnvenju ekki fylgt og nöfn ísienskra manna skráð í öf- ugri röð, þ.e. föðurnafn er haft á undan skírnarnafni. Um þetta segir Baldur Jónsson dósent, ritstjóri fréttabréfs Islenskrar mál- nefndar: „Engin þjóð á No'rðurlöndum þarf að búa við slíka niðurlægingu. Minnumst þess, að hér er ekki verið að ræða nein álitamál. Hver Islendingur veit, hvað hann heitir og hvernig hann skrifar nafnið sitt. Engin lögleg breyting verður á því, þó að maðurinn taki þátt í nor- rænu samstarfi1'.1' Þetta nafnamál er punkturinn yfir iið þegar íslenskan og norrænt samstarf eru annars vegar. Fyrrgreint rit er ekki eina dæmið um hversu íslenskum nöfnum og heitum er mis- boðið í hinu norræna samstarfi, heldur mora flestar útgáfur á norrænum vettvangi af villum af þessu tagi. Jafnvel nafn Alþingis sleppur ekki óskaddað, og er þá mælirinn tekinn að fyllast. Mál er að þessum ósköpum linni. Niðurlag Hér að framan hafa verið raktar nokkrar þær ástæður, sem liggja til þess, að íslendingartaka þátt í samstarfi Norðurlandaþjóða og leggja á það áherslu við framkvæmd utanríkisstefnu sinnar. Jafnframt hefur verið drepið á nokkur atriði, sem að Islendingum snúa sérstakíega, og óneitanlega mættu fara betur. Þessi atriði eru auðvitað misjafnlega þung á metunum. 11 Baldur Jónsson: fslensk mannanöfn í norrænu samstarfi, Fréttabréf íslenskrar málnefndar, 2. árg., 2. tbl., bls. 13. Mestu skiptir, að íslendingar njóti í öllu tilliti jafns réttar á við aðra aðila samstarfsins. Þar til úr hefur verið bætt mun nokkurn skugga bera á annars ágæta samvinnu lýðræðisþjóðanna í norðri. Það er miður, og því er brýnt að leið- réttingar náist fram hið fyrsta. Sjálfstæðis- mönnum gefst nú óvenjulega gott tækifæri til að hafa forystu af hálfu íslendinga í að knýja á um nauðsynlega Iagfæringu mála. Þeir hafa þau tök í þeirri ríkisstjórn, sem nú situr, og skipa öll helstu ráðherraembætti, sem máli skipta í þessu sambandi. Láta verður hendur standa fram úr ermum fram að og á þingi Norðurlandaráðs. Enda er það við hæfi - þingið verður næst haldið í Reykjavík. Ólafur íslcifsson lauk B.S. prófi í stærö- fræði frá Háskóla íslands 1978 og M.Sc. prófi í hagfræði frá London School of Economics 1980. Hagfræðingur í Þjóð- hagsstofnun 1980-1983 og í alþjóða- deild Seðlabanka íslands frá 1983. Kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð 1981. Hefur kennt við Háskóla íslands frá 1981. Ólafur átti sæti í stjórn Vöku, félags lýðræðis- sinnaðra stúdenta 1977 og í stjórn SUS frá 1981. Bútur h.f. Byggingafélag Eldhúsinnréttingar Fataskápar Gluggabretti Innihuröir Nýbyggingar. Umboö fyrir: Glerborg h.f. tvöfalt einangrunargler. Sími: 96-71333. Einco byggingavörur. Spónarplötur 10,12,16, 19 og 25 mm Vegg- og loftklæðningar Gólfdúkur Málningarvörur GROHE og allar almennar byggingavörur. Umboö fyrir: Hörpu h.f. ^Málning h.f. /Sími: 96-71128. SIGLUFJÖRÐUR Framkv.stj.: Konráð Baldvinsson, heima71473. STEFNIR 33

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.