Bæjarins besta - 05.02.1997, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
3 SPÓLAN10TOPP
http://www.mmedia.is/
~gaui/vikur.htm
Brandarar vikunnar. Á
heimasíðu Guðjóns Ólafs-
sonar leynast nokkrir góðir
brandarar.
http://member.aol.com/
skingsite/index.html
Á heimasíður Stephen King
er m.a. hægt að nálgast
sýnishorn úr bókum og
myndum hans.
http://www.kbnet.co.uk/
rleggat/photo
Á heimasíðu um sögu ljós-
myndunar, er greint mjög
ýtarlega frá sögunni í máli
og myndum
1. Mission Impossible
2. The Rock
3. Fargo
4. The Quest
5. Spy Hard
6. The Cable Guy
7. The Truth about...
8. Mulholland Falls
9. Crying Freeman
10. Down Periscope
í
TÆKINU
HELGAR
veðrið
góðará
NETINUht
tp
:
Á fimmtudag lítur út
fyrir vaxandi austan og
norðaustanátt með
snjókomu og á föstu-
dag má búast við
hvassri norðanátt með
snjókomu eða élja-
gangi um mest allt
land. Áfram frost um
allt land.
Á laugardag kemur
lægð úr suðvestri með
vaxandi sunnan- og
suðaustanátt og snjó-
komu eða slyddu, og
dregur smám saman
úr frosti.
Á sunnudag og
mánudag lítur út fyrir
áframhaldandi lægða-
gang með suðlægum
áttum ríkjandi.
Mission: Impossible
Mission: Impossible er
frábær njósnatryllir þar
sem aldrei er slegið að
hraða né spennu og krydd-
uð með einstökum tækni-
brellum.
Meiriháttar mynd í
anda James Bond.
MYNDBÖND
HJÁ
VÍDEÓHÖLLINNI
,,Húsnæðisdómur
Vestfjarða með aðsetri
í Bolungarvík
Fyrirsögnin er tekin úr fundargerð bæjarstjórnar
Bolungarvíkur. Hún hélt fund ásamt þingmönnum
Vestfjarða 4. janúar 1997. Ýmis mál voru þar til
meðferðar eins og sjá má af umræddri fundargerð.
Aðeins var bókað: ,,Almenn umræða og skoðanaskipti
fóru fram um alla ofangreinda dagskrárliði.
Dagskrá fundarins var í 6. tölusettum liðum.
Skoðanir bæjarstjórnar í Bolungarvík á málefnum
Bolungarvíkurhafnar, samgöngumálum, þar með talin
Óshlíð, embætti sýslumannsins í Bolungarvík,
Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungarvík, félagslega
íbúðakerfinu eða liðnum önnur mál eru því enn á
huldu.
Þetta er forvitnilegt í ljósi þess að þingmenn voru á
fundinum. Óneitanlega hefði verið fræðandi að
kynnast viðhorfi bæjarfulltrúa til hafnasambands á
norðanverðum Vestfjörðum, þar sem nú eru þrjú
sveitarfélög, eða sveitavega, ágreinings um ,,forgangs-
röðun og tengingar milli staða og við ,,aðalakvegakerfi
landsins svo fátt eitt sé talið. Leitað hefur
verið viðhorfs þingmanna til skýrslu og
tillagna, sem fram komu í skýrslu
Haraldar L. Haraldssonar, sem unnin
var fyrir Bolungarvíkurkaupstað.
Efni hennar hlýtur að vera
sérstakrar athygli vert, en
dagskrárliður númer þrjú
fjallar auk embættis sýslu-
manns um aukin verkefni
og ,,Húsnæðisdóm Vest-
fjarða með aðsetri í Bol-
ungarvík.
Kunningi Stakks benti
honum á þetta atriði sér-
staklega en taldi nærtækast
að draga þá ályktun að
þarna hefði átt að standa
Héraðsdómur Vest-
fjarða, sem hefur með
lögum aðsetur á Ísafirði.
Forvitnin vex. Er þarna
á ferðinni ný hugmynd
til lausnar vandamál-
aum í félagslega húsnæðiskerfinu?
Standa sýslumenn í vegi fyrir
sameiningu sveitarfélaga?
Að stofna dómstól til að leysa úr húsnæðismálum er
kannski góð hugmynd ef marka má síendurteknar
fréttir af vandamálum í Húsnæðisstofnun. Alltaf er
svo verið að selja húsnæði á uppboðum, oft vegna
beiðni byggingarsjóða á vegum hennar.
Ekki er alveg ljóst hvort auknu verkefnin tilheyra
embætti sýslumannsins í Bolungarvík eða hvort þau
eiga færast til hins nýja dómstóls. Vangaveltur eru
tilgangslitlar, fyrr en bæjarstjórn Bolungarvíkur
upplýsir hugmyndina að dómstólnum.
Fyrir all nokkru mátti lesa í dagblöðum að uppi
væru hugmyndir þess efnis að auka verkefni
sýslumanna á Íslandi og styrkja þannig tilveru þeirra.
Umræða þessi spratt upp í framhaldi hugmynda um
að fækka þessum embættum, en skipuð var sérstök
nefnd þingmanna um málið. Ekki er frjálslega með
farið, þótt sagt sé að fátt ef nokkurt hafi enn komið
fram í þeim efnum. Framtíðin mun skera úr um
árangurinn af því starfi.
Í ljósi alls þessa er fróðlegt að heyra fréttir af
sameiningu sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð.
Til stóð sameining nokkurra sveitarfélaga, Ólafsfjarðar,
Dalvíkur, Hríseyjar og Arnarneshrepps. En Ólafs-
fjörður hafði dregið sig út úr sameiningarumræðum.
Ástæðan var sú, að sögn talsmanna, að bæjarstjórninni
þar þætti of geyst farið í sakirnar. Það hörmuðu hinir
aðilar sameiningarinnar.
Fyrir rúmu ári börðust bæjarstjórnarmenn í
Ólafsfirði hetjulegri baráttu gegn því að sýslumaðurinn
þar yrði lagður af. Þeir höfðu sigur og engar breytingar
urðu á sýslumannaskipan, hvorki þar né annars staðar,
þar á meðal í Bolungarvík. Auðvelt er að láta sér detta
í hug að afstaða bæjarstjórnar til þessa einstaka máls
ráði því nú, að vilja skorti til sameiningar öðrum
sveitarfélögum, er heyra undir annann sýslumann.
Tvennt skal rifjað upp, að jarðgöng um Ólafsfjarðar-
múla rufu einagrunina, sem réði því að bæjarfógeti,
nú sýslumaður, var staðsettur í Ólafsfirði, og
Ólafsfirðingar hafa sótt vinnu til Dalvíkur um
jarðgöngin í atvinnuleysi undanfarinna vikna.
Fróðlegt er að skoða tvennt við Ísafjarðardjúp,
sameiningu sveitarfélaga, en Bolungarvík stóð utan
hennar ásamt Súðavík, og sameiningu sjávarútvegs-
fyrirtækja, þar sem hið sama er uppi.
Sveitarstjórnarmenn eiga að horfa til framtíðar og
fleira sameinar en sundrar ef standast á þá fækkun
íbúa sem nú herjar á Vestfirði. Vonandi á það við um
bæjarstjórn Bolungarvíkur og allar aðrar sveitarstjórn-
ir á Vestfjörðum. Stakkur
Til sölu eða leigu er 132m²
einbýlishús ásamt 70m²
bílskúr að Hjallabyggð 9
Suðureyri. Söluverð: 5 millj.,
leiga 28 þús. á mán. Laust nú
þegar. Upplýsingar í síma
456 6217 eftir kl. 20.
Til sölu er Mazda 323 árg.
´84. Bíllinn er lítið ekinn og
lítur vel út. Upplýsingar í
síma 456 3453 eftir kl. 19.
Til sölu Lada Sport. Allar
nánari upplýsingar eru veittar
í síma 456 7210
Til sölu Mitsubishi Colt
GLX-i árg. ´93. Sjálfskiptur,
rafm. í rúðum, samlæsing,
ekinn ca. 36 þús. Upplýsingar
í síma 456 7304 eða 456
4518 eftir kl. 18.
Til sölu eða leigu neðri hæð
Hafnargötu 6, Bolungarvík
(60m²) Leiga kr. 3000 á mán.
Upplýsingar í síma 453 6374
eða 455 4557
Til sölu Lada Sport árg. ´93.
Upplýsingareru gefnar í síma
456 7409
Óska eftir páfagauk gefins.
Upplýsingar í síma 456 3648
eftir kl. 18, Bryndís.
Óska eftir svalarvagni ódýrt
eða gefins. Upplýsingar í
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
síma 456 4175
Kettlingur! Ég er kolsvartur
með gul augu, fjórar lappir og
er fress. Ég pissa í sand og fæst
gefins ef einhver vill. Upp-
lýsingar í síma 456 6211
Óska eftir einbýlishúsi eða
stórri 4ra herbergja íbúð í
Bolungarvík sem allra fyrst.
Upplýsingar í síma 456 7161
Óskað er eftir dagmömmu eða
barngóðri konu til að passa 1
árs gamlan strák frá 13-17, erum
á eyrinni í síma 456 3420 eftir
kl. 17.
Sléttuhreppingar! Þorrablótið
verður haldið í félagsheimilinu
í Hnífsdal laugardaginn 15.
febrúar. Sjá nánar í götuaug-
lýsingum. Nefndin.
2ja mánaða kettling vantar gott
heimili. Upplýsingar í síma 456
3774
Söngvarar! Okkur langar að fá
fleiri til liðs við okkur í Sunnu-
kórinn, skemmtileg verk fram-
undan. Upplýsingar í síma 456
3278, Sigga Steina.
Til sölu 143m² einbýlishús
ásamt 40m² bílskúr að Fagra-
holti 3, Ísafirði. Ásett verð 11,8
milljónir. Upplýsingar í síma
456 3928 eða 456 4323. Erling-
ur Tryggvason.
Til sölu Silvercross barnavagn,
selst ódýrt. Allar nánari upp-
lýsingar eru gefnar í síma 456
3834
Til sölu BMW 518 árg. ´82,
skoðaður ´97, verð kr. 25 þús.
Einnig Honda MT 70cc, árg.
´81, verð kr. 10 þús. Upplýs-
ingar í síma 456 6119
Til sölu er Hafdís ÍS-455 sem
er dekkaður bátur 8,6metrar að
lengd. 5,64 brúttótonn. 55
hestafla Saab vél. Selst án
veiðiheimilda. Upplýsingar í
síma 456 7436.
Til sölu Toyota Cressida
Station árg. ´82. Bíllinn er í
góðu lagi og hjá sömu fjöl-
skyldu í 9 ár. Verð kr. 100
þús. Upplýsingar eru veittar
í síma 456 4057
Til sölu ísskápur, í fínu lagi.
Upplýsingar í síma 456 4460
eftir kl. 19.
Til sölu Skidoo vélsleði.
Nánari upplýsingar eru gefn-
ar í síma 456 7741
Til sölu Toyota Touring árg.
´89, ekinn 113 þús. km. Upp-
lýsingar í síma 456 7874.
Til sölu er Guðmundur
Einarsson ÍS-155 sem er 22
feta flugfiskur með 165hp
Volvo Penta vél. Selst án
veiðiheimilda, vagn fylgir.
Upplýsingar í síma 456 7436
Óska eftir 10" felgum. Helst
undan Austin Mini eða sam-
bærilegum bíl. Allar nánari
upplýsingar er veittar í síma
456 3654.
Smáauglýsingasími Bæjar-
ins besta er 456 4560. Smá-
auglýsingin verður að berast
til blaðsins fyrir hádegi á
þriðjudegi ef þær eiga að
komast í blaðið á réttum tíma.
Smáauglýsing í Bæjarins
besta er engin smá auglýsing.
Ný á list
a!
Ný á list
a!
Ný á list
a!