Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Page 11
1. Samfélagið
1-1 Inngangur
Góð heilsa er án efa veigamesta atriðið í velferð okkar og vellíðan. "Gtóð
heilsa" er breytilegt hugtak frá einu tímabili til annars og sérhver einstaklingur
hefur sinn skilning á þessu hugtaki. Það hvað við álítum "góða heilsu" er
líklega tengt því á hvaða aldri við erum, hvar í heiminum við búum og almennt á
viðhorfum okkar til lífsins og gildismati.
Þrátt fyrir ólíkt gildismat þá er ljóst að ákveðnir samverkandi þættir hafa
áhrif á heilsufar okkar. Þar má fyrst nefna hækkandi aldur, en þetta er sá þáttur
sem er hvað sterkast tengdur sjúkdómum. Erfðafræðilegir þættir geta verið
mikilvægir í sambandi við ákveðna sjúkdóma. Kynferði virðist tengt ævilengd
þar sem konur lifa að jafnaði nokkrum árum lengur en karlar. Komið hefur í
Ijós að lifnaðarhættir, s.s. áfengis- og tóbaksnotkun og ýmsir félagslegir þættir,
tengjast ákveðnum tegundum sjúkdóma. Þá hlýtur starfsumhverfi að hafa
veigamikil áhrif á heilsufar okkar vegna þess hve miklum tíma við eyðum flest
á vinnustað. Þá hefur ytra umhverfi eflaust áhrif á vellíðan okkar og má þar
nefna veðurfar, t.d. birtu og úrkomu og loftið sem við öndum að okkur.
, I köflunum hér á eftir verða lagðir ýmsir mælikvarðar á heilsufar
Islendinga og birtar tölfræðilegar upplýsingar um árin 1989 og 1990. Þar sem
unnt reynist verður heilsufar okkar nú borið saman við það sem áður var og
einnig verður gerð grein fyrir stöðu íslendinga miðað við ýmsar aðrar þjóðir.
Þá verður greint frá helstu staðreyndum um íslenskt heilabrigðiskerfi og
kostnaði við það.
1.2 íbúar
Vegna þess að nokkur munur er á heilsufarsvandamálum karla og kvenna
og vegna þeirra tengsla sem eru á milli aldurs og heilsufars er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir aldurs- og kynskiptingu íslendinga.
1.2.1 Aldurs- og kynskipting og dreifing byggöar
Þann 1. desember 1990 bjuggu 255.708 manns á íslandi. Þá hafði íbúum
Qölgað um ríflega 2.200 manns, eða 0,87 %, frá árinu 1989. Þessi íbúafjölgun er
heldur meiri en hún var á milli áranna 1988 og 1989 en þá var hún 0,72%.
Arið 1990 voru karlar sem fyrr nokkru fleiri en konur, eða 128.317 karlar en
127.391 konur (sjá töflu B.l.l í töfluhluta um aldurs- og kynskiptingu
mannijöldans í árslok 1989 og 1990) (Hagstofa íslands 1992, bls. 24-25).
Á þessari öld hefur byggðamynstur á íslandi tekið róttækum breytingum.
Meginbreytingin hefur verið sú að höfuðborgarsvæðið er nú orðið fjölmennara
en aðrar byggðir landsins, sem er gagnstætt því sem var á fyrri hluta
aldarinnar. Þá hefur íbúum á höfuðborgarsvæðinu Qölgað örar en íbúum annars
9