Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Síða 15
1980 og hefur það farið lækkandi. Framfærsluhlutfall var hæst í kringum 1960
eða 0,66. Samkvæmt framreikningum Hagstofunnar heldur framfærsluhlutfall
áfram að lækka og verður nálægt 0,4 um 2020 sem er svipað því og það var um
aldamótin 1700. Þó er hér um gjörólík tímabil að ræða því það fyrra einkennist af
hárri fæðingar- og dánartíðni þannig að meiri hluti þeirra sem voru á
framfæri" annarra voru börn og unglingar en seinna tímabilið einkennist af
®un lægri fæðingar- og dánartíðni sem þýðir að þeir sem eru á "framfæri" eru
bæði börn og unglingar og gamalt fólk.
1-3 Atvinnuhættir
Eitt helsta grundvallaratriði í velferð manna er að hafa öruggt lífsviðurværi.
Atvinna er nauðsynleg forsenda andlegs og líkamlegs heilbrigðis. Þegar þessu
grundvallarskilyrði um atvinnu er fullnægt ber að líta á hvort og hvernig
mismunandi störf hafa áhrif á heilsufar.
Ymsar aðferðir hafa verið notaðar til að flokka vinnuafl. Flokkun Hagstofu
Islands byggir á atvinnugreinum fremur en starfsgreinum og er þess vegna lítt
fallin til notkunar í umræðu um samspil atvinnu og heilsu, en taflan hér á eftir
vitnar þó um breytt þjóðfélag. Sé vinnuafli skipt gróflega í starfsemi fyrirtækja
og starfsemi hins opinbera sést að ársverkum hjá hinu opinbera fjölgaði um 5,2%
á þessu 16 ára tímabili á meðan ársverkum hjá íyrirtækjum fækkaði um 7,7% á
sama tíma. Þá hafa talsverðar beytingar orðið á skiptingu milli flokka í
starfsemi fyrirtækja. Ársverk í landbúnaði drógust saman um meira en
helming á meðan ársverkum hefur fjölgað um helming við peningastofnanir, í
fryggingum og í þjónustu við atvinnuresktur.
Tafla 1.2 Hlutfallsleg skipting vinnuafls eftir atvinnugreinum 1972 og 1990
1972 1990
Starfsemi fyrirtækja alls 85,4 76,8
Landbúnaður 11,0 4,9
Fiskveiðar 5,7 5,7
Iðnaöur 23,3 18,6
Rafmagns-, hita- og vatnsveitur 0,6 0,9
Byggingarstarfsemi 10,5 9,9
Verslun-, veitinga og hótelrekstur 14,0 14,5
Samgöngur 8,8 6,7
Peningastofn., tryggingar og þjónusta við atvinnurekstur 4,3 8,1
Ýmis þjónustustarfsemi 7,2 7,4
Starfsfólk hins opinbera 13,0 18,2
Önnur starfsemi 1,6 4,9
Vinnuaflsnotkun alls 100,0 100,0
Heimild: Hagstofa íslands 1992, bis. 68-69.
13