Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Síða 23
1-4.6 Ævilíkur
Meðalævi bæði karla og kvenna er lengst í Japan. íslenskir karlar njóta
næstlengstrar meðalævi, en næstir þeim koma karlar í Makaó, Svíþjóð,
Hongkong, Sviss, Möltu, Kýpur, Hollandi og ísrael. Á undan íslenskum konum
koma konur í Sviss, Svíþjóð og Frakklandi, en næst á eftir konur í Makaó,
Hollandi, Noregi, Kanada og Hongkong. Styst er meðalævi bæði karla og
kvenna í Malaví (tölur frá 1977).
Árið 1979/80 voru meðalævilíkur íslenskra karla 73,7 ár og kvenna 79,7 ár
(Heilbrigðisskýrslur 1980, bls. 6).
Tafla 1.6 Meöalævilíkur nýfæddra í nokkrum löndum
Karlar Konur
(ár) (ár)
Danmörk 1988/89 72,0 77,7
Færeyjar 1981/85 73,3 79,6
Grænland 1981/85 60,4 66,3
Finnland 1988 70,7 78,7
ísland 1989/90 75,7 80,3
Noregur 1989 73,3 79,9
Svíþjóð 1989 74,8 80,6
italía 1988 73,2 79,7
Bandaríkin 1986 71,3 78,3
Mexíkó 1979 62,1 66,0
Eþíópía 1985-1990 39,5 42,6
Malaví 1977 38,1 41,2
Japan 1989 75,9 81,8
Ástralía 1987 72,0 79,5
Heimild: Hagstofa ísiands, 1992 c).
1-4.7 Brottflutningur og aðflutningur
Dreifing búsetu á íslandi hefur tekið stakkaskiptum undanfarna áratugi
yegna brottflutnings fólks af landsbyggðinni. Nú er svo komið að meira en 60%
Þjóðarinnar býr í Reykjavík og nágrenni. Síðustu áratugir hafa þannig
einkennst af brottflutningi af landsbyggðinni sem leitt hefur til ójafnvægis í
búsetudreifingu. Á sama tíma hefur verið lagt í mikla fjárfestingu til að byggja
uPp heilbrigðisstofnanir víðsvegar um landið og þá sérstaklega sjúkrahús sem
reist hafa verið í öllum landshlutum. Þessar stofanir eru þess vegna oft
skipulagðar fyrir annars konar byggð en nú er. Fólki hefur fækkað og
aldurssamsetning íbúanna hefur breyst. Meira af ungu fólki hefur flutt burt af
landsbyggðinni en eldra fólkið hefur frekar orðið um kyrrt. Þess vegna hafa
sjúkrahúsin á landsbyggðinni þurft að sinna fleiri öldruðum og lang-
iegusjúklingum en ráð var fyrir gert. Ör fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu
21