Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Page 25
kaflar komu helst austanlands. í júlí var fádæma sólarlítið suðvestanlands.
Hiti var nokkuð undir meðallagi (Veðurstofa íslands 1989, bls. 97-98).
1990:
Tíðafar ársins var óhagstætt framan af en nokkuð gott í lokin. Fádæma
snjóþyngsli voru norðanlands að vetrinum, einkum í febrúar og mars og voru
þau sums staðar talin þau mestu á öldinni. Þá gerði stórviðri á suðvestanverðu
landinu í janúar og fylgdu því mestu sjávarflóð aldarinnar við suðvestur-
ströndina. Talsvert eignatjón varð, þó mannskaðar yrðu engir. í lok apríl voraði
vel, sumarið var sæmilega gott og haustið talið gott. Hiti var nokkuð undir
meðallagi en þó ekki eins mikið og árið á undan. Úrkoma var í meðallagi nema
norðaustanlands þar sem hún var víða helmingi meiri en vant er. Sólskins-
stundir voru færri en í meðalári, tiltölulega fæstar í Reykjavík (Veðurstofa
íslands, 1990, bls. 97-98).
1-5.1 Mengun
Mengun af völdum skaðlegra efna, sem hleypt er út í umhverfi okkar, er víða
niikil og getur valdið verulegum umhverfisspjöllum og heilsuspillandi áhrifum.
Á. íslandi og í nokkrum strjálbyggðum löndum á norðurhveli jarðar hefur
efnamengun verið mun minni en í flestum öðrum iðnvæddum ríkjum.
Efnamengun stafar einkum frá brennslu jarðvegseldsneytis, iðnaði og
samgöngutækjum.
Efnamengun hefur skaðleg áhrif á heilsu manna og dýra. Lífræn efni frá
útblæstri bifreiða og iðnaði eru sum krabbameinsvaldar, a.m.k. í dýrum.
Brennisteinstvíildi ertir loftvegina og getur haft áhrif á starfsemi lungna.
Köfnunarefnisoxíð á sinn þátt í að mynda mengunarský og eykur þannig hættu á
ertingu í augum, nefi og koki og eykur einnig hættu á lungnasjúkdómum og
hefur slæm áhrif á starfsemi lungna. Koltvísýrlingur dregur úr hæfileikum
blóðsins til þess að taka upp súrefni og hefur í fór með sér þreytu og hægari
viðbrögð (Statistiska centralbyrán, 1989, bls. 102-103). Áhrif mengunar eru
^argháttuð þó þau séu ekki að fullu könnuð. Má nefna súrt regn sem hefur bæði
áhrif á gróður og dýralíf, þ.e. tvo meginþættina í fæðukeðju mannsins.
í 5. kafla, heilsuvernd, verður íjallað nánar um mengun og mengunarvarnir
ú íslandi.
1.6 Samantekt
Heilbrigðismál eru nátengd samfélagslegum þáttum eins og aldurs- og
kynskiptingu mannfjöldans. Nauðsynlegt er að skoða samsetningu
mannfjöldans og nýta sér þá vitneskju við stefnumörkun í heilbrigðismálum.
Pram hefur komið að töluverðar breytingar hafa orðið og eiga eftir að verða á
Mdurssamsetningu íslendinga. Fæðingartíðni hefur farið lækkandi og
meðalævi lengst þannig að börn og unglingar eru hlutfallslega færri nú en áður
en gamalt fólk er hlutfallslega fleira. Dreifing búsetu hefur tekið stakkaskiptum
en nauðsynlegt er að íhuga vel hvort sama þróun eigi eftir að halda áfram í
23