Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Page 78
5. Heilsuvernd
Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 er heilsugæsla
skilgreind sem heilsuverndarstarf og allt lækningastarf, sem unnið er á vegum
heilbrigðra og sjúkra, sem ekki dveljast á sjúkrahúsum (11. gr.). Þá er einnig
tekið fram að starfrækja skuli heilsugæslustöðvar til þess að annast heilsugæslu
(12. gr.).
Þær kröfur eru gerðar til heilsugæslustöðva að þær sjái íbúum á upptökusvæði
m.a. fyrir mæðra- og ungbarnavernd, ónæmisaðgerðum, heilsugæslu fyrir
aldraða, slysavörnum og svo mætti lengi telja.
Heilsugæsla er einn af máttarstólpum íslensks heilbrigðiskerfis. Nánast
allir þiggja mæðra- og ungbarnavernd og þátttaka í ónæmisaðgerðum er góð.
5.1 Mæöravernd
Hver þunguð kona fór að jafnaði í tæplega 11 mæðraskoðanir árið 1989 og 1990
(sjá töflu B 1.5 í töfluhluta). Mæðraskoðunum hefur fjölgað dálítið síðustu 10 árin
en þær voru að jafnaði rúmlega 8 á hverja þungaða konu árið 1979.
Ljósmæður og/eða læknar sjá um skoðanir á þunguðum konum. Mældur er
blóðþrýstingur, þyngd og eggjahvíta í þvagi. Hin verðandi móðir fær auk þess
fræðslu um meðgöngu, fæðingu, brjóstagjöf og umönnun barna í þessum
heimsóknum.
Ollum konum er boðin ómskoðun á 18. viku meðgöngu. Þeim konum sem
orðnar eru 35 ára er boðið legvatnspróf til þess að greina litningagalla. Auk þessa
geta flestir foreldrar sótt fræðslunámskeið sem ætluð eru verðandi foreldrum.
Ef rannsakaður er skráður fjöldi meðfæddra vanskapnaða og fæðingargalla
á íslandi kemur í ljós að fjöldi barna með heilaleysu, hryggrauf, vatnshöfuð og
aðra vanskapnaði taugakerfis hefur farið jafnt og þétt minnkandi á tímabilinu
frá 1972-1990 (sjá töflu B 3.11 í töfluhluta). Virðist hér vera um að ræða
raunverulega fækkun tilfella sem stendur í tengslum við bætta og aukna
möguleika á sjúkdómsgreiningu í meðgöngu, þ.e. legvatnspróf og sónar-
skoðanir, sem leitt hafa til fóstureyðinga í slíkum tilfellum.
Skráðum hjartagöllum og öðrum vansköpnuðum blóðrásarkerfis hefur
Qölgað á ofangreindu tímabiii. Hér er þó ekki um að ræða raunverulega fjölgun
tilfella í landinu heldur stafar hún af betri sjúkdómsgreiningu og nákvæmari
skráningu þessara tilfella hin síðari ár.
5.1.1 Rhesus-varnir
Rhesus-misræmi er misræmi á milli rhesus-blóðflokks móður og fósturs, en
eingöngu í þeim tilvikum þegar móðirin er rhesus-neikvæð og fóstrið rhesus-
jákvætt. í slíkum tilvikum getur eitthvað af blóði barnsins farið yfir í blóðrás
móðurinnar í fæðingunni. Fái móðirin ekki sprautu með anti-D blóðvatni innan
76