Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1990, Page 118
7.2 Aðsókn að sjúkrahúsum
Síðan 1950 hefur innlögnum á sjúkrahús fjölgað meira en rúmum og
legudögum. Fjöldi rúma og legudaga hefur þrefaldast en innlagnir hafa
sjöfaldast á sama tíma (tafla 7.2).
Tafla 7.2 Yfirlit yfir sjúkrahús1)
Ár Rúma- fjöldi Rúmafjöldi á 1000 landsmenn Fjöldi innlagna* Legudaga- fjöldi Legudaga- fjöldiá hvem landsmam
1950 1378 9,6 10191 436100 3,1
1960 1727 9,7 19891 600211 3,4
1970 2575 12,6 33287 957138 4,7
1980 3197 13,9 48785 1153601 5,1
1981 3185 13,7 49178 1146046 5,0
1982 3332 14,2 48473 1141949 4,9
1983 3423 14,4 52764 1195212 5,0
1984 3506 14,6 55268 1166422 4,9
1985 3508 14,5 53533 1162764 4,8
1986 3521 14,4 56093 1232359 5,1
1987 3573 14,4 61014 1210759 4,9
1988 3696 14,7 68783 1250657 5,0
1989 3964 15,6 71468 1297050 5,1
1990 3985 15,6 72996 1318716 5,2
1) Allar sjúkrastofnanir, þ.m.t. hjúkrunarheimili, nema áfengismeöferöarstofnanir,
sbr. töflu B 7.2.
*J Sjúklingar frá fyrra ári og komnir á árinu.
Árið 1990 voru um 76.500 innlagnir á sjúkrastofnanir á íslandi. Stærsti hluti
þessara innlagna er á deildasjúkrahús, eða tæplega 80%. Eingöngu um 2%
innlagna eru á hjúkrunarheimili (mynd 7.2). Árið 1990 voru samtals um 1,4
milljón legudaga á öllum sjúkrastofnunum. Hlutdeild deildasjúkrahúsa í
legudögum er mun minni en hlutdeild í innlögnum, eða tæplega 45%. Hlutdeild
hjúkrunarheimila er á hinn bóginn meiri eða ríflega 25% (mynd 7.3). I töflum í
töfluhluta er birt nánara yfírlit yfir aðsókn að hverju sjúkrahúsi og hverri deild á
deildaskiptum sjúkrahúsum (töflur B 7.1 - B 7.3).
Eins og fram hefur komið er æskilegt að gerður sé skýrari greinarmunur á
mismunandi starfsemi innan stofnana í þeim tölum sem birtar eru um aðsókn.
Greina þarf betur á milli starfsemi almennra legudeilda, langlegudeilda,
dagdeilda o.s.frv. Til þess að svo geti orðið þarf að koma til önnur flokkun hjá
stofnunum sjálfum og betri aðgangur að sjúklingabókhaldi stofnana við
gagnasöfnun og úrvinnslu fyrir heilbrigðisskýrslur.