Nýtt land-frjáls þjóð


Nýtt land-frjáls þjóð - 06.04.1972, Qupperneq 6

Nýtt land-frjáls þjóð - 06.04.1972, Qupperneq 6
6 £ n¥tt land FRAMTIÐARSTARF Tölvuvinnsla Borgarspítalinn óskar að ráða sem fyrst, háskóla- menntaðan starfsmann til að annast stjórnun skipulagningu og forritun á gagnavinnsluverk- efnum spítalans. Starfið býður upp á fjölbreytilegt og flókin við- fangsefni á nýjasta sviði tölvutækninnar og krefst frumkvæðis og starfsgetu umsækjanda. Skriflegar umsóknir greini aldur, nám og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra Borgarspítalans, fyrir 1. maí n. k. Reykjavík, 4. apríl 1972 Heilbrigðismálaráff Reykjavíkurborgar. ÚTBOÐ Tilboð óskast i sölu á 10 spennubreytum fyrir Raf- magnsveitu Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri. Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 5. maí n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR íkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Deildarhjúkrunarkonustaða Staða deildarhj úkrunarkonu á nýrri sjúkradeild, endurhæfingar- og bæklunarlækningadeild í Land- spitalanum, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd rikisspítalanna, Eiríksgötu 5, fyrir 18. apríl n.k. Reykjavík, 4. apríl 1972 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. ökukennarapróf — Ökukennarapróf og próf á bifreið fyrir fleiri en 16 farþega verða á Akureyri og í Reykjavík í þessum mánuði. Umsóknir ásamt tilskyldum fylgiskjölum skulu ber- ast til bifreiðaeftirlitsins á Akureyri eða Reykjavík fyrir 13. þ. m. Á Akureyri er tekið á móti umsóknum á skrifstofu bifreiðaeftirlitsins við Þórunnarstræti en í Reykjavík í fræðilega prófherberginu, Borgar- túni 7 milli kl. 17 og 18. Reykjavlk, 4. apríl 1972 BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS. Bókmenntafræðsla Framh. af bls. 4 Gildi fagurra lista fyrir menn einstakling ætti að vera okkur öllum ljóst. Sá mikli og al- menni áhugi fólks á popp- hljómsveitum og nútíma söng ingarlif-þjóðarinnar og hvern og tónlist gefur ærið tilefni til endurmats á allri söngkennslu á skyldunámsstigi og fram- haldsskólastigi. Ef gert væri ráð fyrir mjög verulegri aukningu á músík- fræðslu í skólum, þannig að til viðbótar almennri söng- kennslu, kæmi einnig kennsla í hljóðfæraleik í stærri eða smærri hljómsveitum, svo ekki sé fleira nefnt, þá rækj- um við okkur strax á skipu- lagslegt vandamál, sem stend ur í beinum tengslum við ríkj andi uppeldisstefnu. Hér á ég við þá stefnu, að öll skólabörn eigi að njóta sambærilegrar menntunar án tilliti til bús- setu. Nú vitum við, að í fram- kvæmd er ekkert fjarri sanni, í stórum kaupstaðaskólum er aðstaða til ýmissa hluta mun betri en í fámennum skólum sveitanna. En enda þótt svo sé, verður að teljast mjög hæp ið að vinna að menntunarjöín uði á þann hátt að draga úr athafnarsviði stóru skólanna. Músíkfræðsla skólabarna í Trékyllisvík verður sízt verri við það þótt börnin í Lang- holtsskóla fái aðstöðu til þess að spila í hljómsveit eða læra ballett. Með tilkomu sjónvarps ins eykst hið almenna gildi aukinnar músíkkennslu þar sem aðstæður eru fyrir hendi, en slík fræðsla hefur ómetan- legt menningargildi fyrir þjóð ina í heild, auk þess sem það mundi stuðla að aukinni fjöl- breytni í dagskrá sjónvarps- ins og fjölbreytni i tómstunda og skemmtanalífi ungs fólks. Það er því fyllsta ástæða til þess að taka upp skipulagða listfræðslu, ekki einungis á skyldunámsstigi heldur einnig á framhaldsskólastigi. Ef fram haldsskólastigið verður sam- ræmt samkvæmt framkomn- um tillögum (sbr. 3. gr.) ætti að vera auðvelt að nýta hina ýmsu listskóla (s. s. tónlista- skóla, myndlistaskóla, leik- listarskóla, ballett- og dans- skóla, o. fl.) sem stofnaðir f hafa verið og starfræktir eru víða um land. Áhugamenn um listfræðslu ættu því að taka höndum saman og hefja um- ræður um framtíðarskipulag listfræðslu í skólum landsins. Verkalýðsmál Framhald af bls. 5. Múrarar. Múrarafélag Reykjavíkur hefur nú í undirbúningi skemmtiferð til Mallorka og er gert ráð ‘r að fyrri ferð- in hefjist 1 ' k égústmánaðar og sú seinn' um mánaðamót- in águst-september. Fleiri á ferðinni. Nokkur verkalýðsfélög und- irbúa nú sumarferðir innan- lands og utan á suinri kom- anda. — Vaxandi fjárráð or- lofssjóða félaganna hafa auk ið áhuga verkalýðsfélaganna á sameiginlegum ferðalögum. Auglýsing til þeirra aðila, einstaklinga eða stofnana, sem skipti hafa við fjármálaráðuneytið. Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að gera til- raun til að bæta þjónustu ráðuneytisins við við- skiptaaðila þess, þ. e. a. s. reyna að tryggja þeim betri þjónustu og greiðari afgreiðslu mála en ráðu- neytið lætur nú í té, hvort sem um er að ræða munnleg erindi eða skrifleg. Þetta hyggst ráðu- neytið gera með því að koma ákveðnara skipulagi en verið hefur á vinnutilhögun starfsfólks ráðu- neytisins í þeim tvíþætta tilgangi að veita viðskipta- aðilum ráðuneytisins öruggari aðgang að starfs- mönnum þess tiltekinn hluta dagsins og gefa starfs- mönnum kost á að vinna á öðrum tímum dags önnur störf í ráðuneytinu, sem krefjast samfellds næðis. Tilraun þessi getur því aðeins náð tilgangi sínum, að viðskiptaaðilar ráðuneytisins taki þátt í henni og hagi störfum sínum í samræmi við þær óskir, sem hér á eftir eru gerðar: Þess er óskað, að aðilar, sem erindi eiga á skrif- stofur ráðuneytisins ákveði símleiðis viðtalstíma fyrirfram og beini símtölum á sérstakan símavið- talstíma þannig: Viðtalstímar mánudaga—föstudaga kl. 8.45—11.00 f.h. miðvikudaga kl. 17.00—19.00 e.h. Símaviðtalstímar mánudaga—föstudaga kl. 11.00—12.00 f.h. miðvikudaga kl. 16.00—17.00 e. h. Er með viðtalstíma á miðvikudögum leitazt við að tryggja, að hver sem er geti náð tali af starfsmönn- um ráðuneytisins án tillits til síns eigin vinnutíma. Munu allir starfsmenn verða við látnir til viðtala á þeim tima, sem að framan greinir, nema brýn forföll hamli. Aðra hluta vinnudagsins en að framan greinir, verða skrifstofur ráðuneytisins að vísu opnar, en þá munu starfsmenn ráðuneytisins verða bundnir við önnur störf í ráðuneytinu. Því fer ráðuneytið þess á leit, að viðskiptaaðilar þess komi ekki til viðtala óboðaðir eða án fyrirfram samkomulags á öörum tímum dags, en hér að fram- an greinir. Simamiðstöð mun sjá um að koma símaboðum til starfsmanna og þeir þá hrirígja aftur til hlutaðeig- andi, þegar færi gefst, einkum tíiilli kl. 10 og 11 á morgnana. Simamiðstöð mun ennfremur aðstoða viö' að skipa viðtölum starfsmanna á viðtalstíma. Ráðuneytið mun gera þessa tilraun fyrst í stað til júníloka, og þá taka ákvörðun um, hvort þessu skuli haldið. Jafnframt mun á grundvelli þeirrar reynslu tekin afstaða til, hvort svipað vinnufyrir- komulag mætti taka upp í fleiri opinberum stofn- unum. Almennur viðtalstími ráðherra verður eftir sem áður á miðvikudögum fyrir hádegi. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 28. marz 1972. Innréttingar Tilboð óskast í frágang innanhúss í byggingu Veð- urstofu íslands við Bústaðaveg, Reykjavík. Innifalið í verkinu er smíði veggja, lofta, hurða, borða, skápa o. s. frv. og ennfremur dúkalögn og málun. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík, gegn 5.000,00 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 14. april kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 /w?\

x

Nýtt land-frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land-frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/1529

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.