Bæjarins besta - 30.04.1997, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9,
400 Ísafjörður
% 456 4560
o 456 4564
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Magnús Hávarðarson
Netfang:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http://www.snerpa.is/bb
Bæjarins besta
Stofnað 14. nóvember 1984
Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.
?Spurning
in
Hvernig ætlar
þú að halda
upp á 1. maí
Sigurður?
Leiðari
,,Efling byggðar í landinu er ekki einkamál dreifbýlisins, það er miklu
fremur sameiginlegt viðfangsefni allrar þjóðarinnar. Á þessum tímamótum
er því mikilvægt að við horfum til framtíðar, til sátta en ekki sundurlyndis,
og reynum að brjóta til mergjar hvað sameinar og eflir okkur sem þjóð.
Svo komst Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga að orði við setningu ráðstefnu um þróun byggðar á Íslandi,
sem haldin var á Akureyri í síðustu viku.
Þrátt fyrir tilburði stjórnvalda við að rétta hag landsbyggðarinnar, stöndum
við frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd, að byggð hefur lagst af og hætt
er við að svo verði í enn ríkari mæli á næstu árum. Sem stendur er erfitt að
sjá að gegn því verði spornað hvað allra fámennustu og afskekktustu
byggir landsins varðar. Þó má segja að týri á kolunni því skoðanakönnun
mun hafa leitt í ljós, að fleira fólk lætur í ljósi vilja til að flytja frá þéttbýli til
strjábýlis en frá strjábýli til þéttbýlis. Þessi niðurstaða skýtur skökku við
reynslu undanfarinna ára.
Á litríku korti sem formaður Byggðastofnunar í krafti stöðu sinnar lét gera
og ráðstefnugestir á Akureyri báru augum, er kveðinn upp sá dómur, að
vestfirskar byggðir upp til hópa séu í hættu. Þótt ekki skuli á þessari stundu
efast um góðan hug og tilgang formannsins, er því ekki að neita að mikil
er ábyrgð þessa manns, sem slíkan dóm kveður upp yfir heilum landshluta.
Vestfirðingar eygja þó von, því fram mun hafa komið að Vestfirðir eru taldir
vænlegt uppbyggingarsvæði.
Sveltur sitjandi kráka
Vel má vera að ekki þyki það merkilegt innlegg í umræðuna, en hér
hefur því verið haldið fram, að um tómt mál sé að tala um framtíð hinna
dreifðu byggða meðan íbúum þeirra er meinað að njóta návista við
auðlindir, sem þeir hafa lifað á öldum saman. Þegar stjórnvöld hafa kjark
til að viðurkenna villu síns vegar og snúa frá henni er tímabært að ræða
um dreifingu valds og verkefna til sveitarfélaga. Þangað til verður lof-
orðaflaumur stjórnvalda merkingarlaus og til þess eins fallinn að lengja
dauðastríðið.
Orð ku vera til alls fyrst. Ráðstefnan á Akureyri var ekki verri en hver einn
þeirra funda, sem sveitarstjórnarmenn hafa eytt tíma sínum í undanfarin
ár til að ræða byggðamál. Hver afraksturinn verður kemur í ljós. Einungis
þrír fulltrúar frá Vestfjörðum sáu ástæðu til að sitja ráðstefnuna á Akureyri,
tveir frá Fjórðungssambandinu og einn frá Hólmavík. Hvar voru fulltrúar
hinna sveitarfélaganna? Áttu þeir virkilega ekki heimangengt? Koma
þeim þessi mál ekkert við?
Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær. Hvað olli því að fulltrúar okkar
Vestfirðinga sniðgengu ráðstefnuna á Akureyri? Afsökunin, sem BB hefur
fyrir fjarvist þeirra er fráleit. Ef einhverjum er nauðsyn að hafa áhrif á
mótun byggðastefnu þá er það Vestfirðingum. Vestfirskir sveitarstjórnar-
menn geta ekki leyft sér sinnuleysi líkt og birtist í því, að mæta ekki á
Akureyri.
s.h.
Þorsteinn Jóhannesson forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Skorumst ekki undan ábyrgð
Á laugardaginn var haldinn
hluthafafundur í Fáfni hf. á
Þingeyri að ósk Ísafjarðarbæjar
en eignarhlutur sveitarfélagsins
í fyrirtækinu er 10%. Að sögn
Þorsteins Jóhannessonar, for-
seta bæjarstjórnar Ísafjarðar-
bæjar, var óskað eftir fundinum
til að fá vitneskju um stöðu
mála.
„Við fengum í sjálfu sér
ósköp lítil svör önnur en að
það er einhver vilji til að mynda
eignarhaldsfélag um Fáfni sem
Byggðastofnun og Landsbank-
inn myndu væntanlega standa
að. Það verður látið reyna á
hvort þetta er mögulegt fram
til 1. maí en að öðrum kosti
verður óskað eftir gjaldþrota-
skiptum. Þetta var a.m.k. okkar
skilningur. Það verður að
segjast eins og er að Ísafjarð-
arbær, sem á 10% eignarhlut í
Fáfni, getur ekkert gert með
þetta félag ef vilji stjórnar er
ekki til staðar. Þannig að
ákvörðun um félagið er alfarið
á höndum stjórnarinnar og
meirihluta hluthafa. Næstu
skref varðandi atvinnuupp-
byggingu á Þingeyri tengjast
því hvernig tæki, húsnæði,
starfsfólk og önnur verðmæti
Fáfnis verða nýtt, en á meðan
þessi stjórn er þarna, þá kemst
enginn að því verki,“ sagði
Þorsteinn í samtali við blaðið.
- Nú hefur heyrst að málefni
Þingeyrar séu komin inn á borð
til ríkisstjórnarinnar. Getur þú
staðfest það?
„Ég hef ekki heyrt neitt
staðfest um þá hluti.“
- Er að vænta einhverra nýrra
frétta af þessu máli í vikunni?
„Eins og Guðmundur Ing-
varsson, stjórnarformaður
Fáfnis, talaði á laugardaginn,
þá vildu þeir reyna þessa leið
með eignarhaldsfélag fram til
mánaðarmóta. Mér skilst að
þær hugmyndir standi og falli
með því hvort Landsbankinn
er reiðubúinn að koma að slíku
Þorsteinn Jóhannesson.
félagi eða ekki. Annars eru allar
upplýsingar í höndum stjórn-
arinnar, Guðmundar Ingvars-
sonar og Sigurðar Kristjáns-
sonar. Það hefur verið okkar
skilningur að ekkert annað en
gjaldþrot blasti við fyrirtækinu
og það yrði skiptaráðandi sem
kæmi til með að deila út þessu
húsnæði - leigja það eða annað
slíkt.“
Þorsteinn segir að þessi
skoðun hafi komið skýrt fram
hjá öllum bæjarfulltrúunum á
fundinum. „Við bentum á að
stjórn Fáfnis væri búin að reyna
að finna lausn á vandanum í
eitt og hálft ár, án þess að
nokkuð hafi gengið. Stjórnin
er sennilega á byrjunarreit
ennþá ef hún er þá ekki komin
nokkrum skrefum aftar.“
Þorsteinn segir aðspurður að
aldrei sé of seint að gera
eitthvað en það megi ekki
dragast lengur að finna lausn á
málefnum Þingeyrar. „Málið
er það að bæjarstjórnin getur
ekkert gert. Við höfum reynt
að beita áhrifum okkar gagn-
vart Byggðastofnun og víðar,
en það hefur ekki gengið.“
Nú er Ísafjarðarbær næst
stærsti hluthafinn í Básafelli
hf., sem hefur yfir að ráða um
12 þúsund þorskígildistonn-
um.Gæti Ísafjarðarbær mögu-
lega þrýst á við stjórn Básafells
að einhver vinnsla á vegum
fyrirtækisins færi fram á Þing-
eyri?
„Það hlýtur að vera ráðstöfun
stjórnar hvers félags fyrir sig
að meta hvað arðvænlegt er og
hvað ekki. Við megum ekki
gleyma að stjórnin er skuld-
bundin hluthöfum. Þótt Ísa-
fjarðarbær eigi 12-14% hlut í
Básafelli, þá segir það ósköp
lítið gagnvart hinum 86 prós-
entunum.“
- Í DV um helgina kom fram
mikil gagnrýni á bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar frá Kristni H.
Gunnarssyni, alþingismanni
Vestfirðinga, sem sagði m.a.
að nógur kvóti væri á Þingeyri
en bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
hafi hins vegar ákveðið að hafa
þann kvóta á Ísafirði en ekki
Þingeyri. Hverju vilt þú svara?
„Þessu verður að vísa beint
til föðurhúsanna og það er svo
fjarstæðukennt sem mest má
vera að bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hafi ákveðið það. Ég
spyr: Hvernig er það tilkomið
að Sléttanesið fór inn í þetta
fyrirtæki? Þetta vandamál
byrjaði ekki með sameiningu
sveitarfélaganna á norðanverð-
um Vestfjörðum. Vandamálið
er miklu eldra. Við skorumst
ekki undan ábyrgð og við
viljum leysa þetta mál, en eins
og málin standa núna, þá kemst
enginn að þessu fyrirtæki,
Fáfni,“ sagði Þorsteinn að
lokum.
Frá Þingeyri.Sigurður Þorleifsson,
gjaldkeri Verkalýðs- og
sjómannafélags Bol-
ungarvíkur:
Við höldum upp á 1.
maí á hefðbundinn hátt í
Bolungarvík. Ég myndi
hinsvegar vilja skjóta einni
hugmynd að verkalýðs-
félögum á Ísafirði, af því
að þeir virðast hafa ríka
tilhneigingu til samhjálpar.
Hvernig væri að þeir
myndu nú útbúa sér kröfu-
spjöld og marsera frammi
fyrir bæjarskrifstofunum á
Ísafirði til að krefjast úr-
bóta til handa Þingeyr-
ingum. Þar er vandi á
ferðinni, en ekki í Bolung-
arvík. Við erum fullfærir um
að leysa úr okkar málum
sjálfir hérna.
Baráttudagur verka-
manna, 1. maí, er á morg-
un. Verkafólk um allan
heim heldur upp á daginn
með hátíðarhöldum og
kröfugöngum. Verkalýðs-
félög um allt land hafa
staðið í ströngu við at-
vinnurekendur undanfarið
en nú er farið að sjá fyrir
endann á þeim slag,
nema á Vestfjörðum og
munu hátíðarhöldin á
morgun vafalaust bera
keim af þeirri staðreynd.