Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1997, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 30.04.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 7 Verkfallsvarsla Baldursmanna við höfnina Skaðabótakröfur á verka- lýðsfélagið hugsanlegar Verkfallsverðir komu í veg fyrir að ökumaður lyftara frá TryCo gæti sinnt starfi sínu. Ljósm.: Kári Jóh. Á þriðjudag í síðustu viku komu félagsmenn í verkalýðs- félaginu Baldri í veg fyrir losun úr skipi Eimskipafélagsins, Skógarfossi, á Ísafirði, en þeir töldu að verið væri að ganga í störf félaga sinna. Tryggvi Tryggvason, eigandi Tryco hf., umboðsaðila Eimskipafélags- ins á Ísafirði, var sjálfur við stjórnvölinn á stórum gáma- lyftara og var ósáttur mjög vegna aðgerða verkfallsmanna. „Pétur Sigurðsson hafði samband við mig þegar hann frétti að skipið væri að koma og spurði hvort við ætluðum að losa það. Ég gerði honum grein fyrir því að myndum losa það en ekki lesta og jafnframt að ég myndi vinna þá vinnu en ekki menn sem voru í verkfalli. Hann sagðist þá ætla að athuga málið og láta mig vita. Ég heyrði svo ekki meira frá honum og vissi ekki fyrr til en verkfallsverðir mættu á stað- inn. Þeir sendu síðan skeyti til til Sjómannafélags Reykja- víkur en Pétur kom svo hlaup- andi hérna niður á kant þegar hann sá að þetta var allt að byrja. Hann var auðvitað sá sem stjórnaði þessum aðgerð- um og enginn annar, þannig að þetta átti Pétur einn,“ sagði Tryggvi aðspurður um tildrög málsins. „Verkfallsmenn voru ekki í neinum rétti til að stöðva vinnu við uppskipunina. Ég tel að þeir hafi enga lögsögu hér á hafnarsvæðinu. Ég á þetta fyrirtæki og má vinna á þeim tækjum og tólum sem ég hef til umráða, án þess að biðja um leyfi hjá Pétri Sigurðssyni,“ sagði Tryggvi. Hann segir að starfsmenn sínir séu félags- menn í Baldri en hann hafi unnið þessi störf þegar þurft hefur. Það liggi fyrir dómur um að mönnum sé heimilt að vinna við fyrirtæki sín í verk- föllum. „Pétur getur ekki búið til einhverjar sérreglur fyrir sig og sína. Menn keyrðu bifreið- um sínum fyrir lyftarann og lögðu sig í hættu. Menn keyra ekki í veg fyrir tæki sem er 70 tonn að þyngd og reikna með því að það stöðvist eins og fólksbíll. Lögreglan var kölluð til en þeir blanda sér ekki í vinnudeilur að öðru leyti en að taka skýrslur af viðkomandi. Ég reikna fastlega með því að það komi fram skaðabóta- kröfur á Baldur út af þessu máli sem skipta milljónum króna. Þarna átti að setja í land 33 gámaeiningar og við höfð- um sagt þeim hjá verkalýðs- hreyfingunni að það yrði ekkert lestað. Aðalmarkmiðið hjá okkur var að ná í tóma gáma svo hægt yrði að hefja vinnu þegar verkfallið leystist, þann- ig að þetta átti ekki að bitna á félagsmönnum í Baldri. Þar fyrir utan var Pétri gerð grein fyrir því í fyrsta lagi, að ég væri ekki í Vinnuveitendafélagi Vestfjarða, sem hann á í deilu við, og þar af leiðandi ekki aðili að þessari deilu. Í öðru lagi er enginn starfsmaður hjá okkur sem hefur laun undir þessari 100 þúsund króna kröfu hans. Ég tel þess vegna að hann hafi verið að ráðast á rangan aðila. Ég spurði Pétur, hvort hann reiknaði kannski með að við tækjum upp þennan taxta hans og lækkuðum alla starfs- menn okkar þar með í launum, þegar hann yrði búinn að semja um þessi 4%.“ Tryggvi segir að sú stað- reynd skipti ekki máli, að haft var samband við Sjómannafé- lag Reykjavíkur til að fá því framgengt að skipsmenn hífðu ekki með skipskrönunum. Verkfallsmenn hafi verið búnir að stöðva hann þegar að því kom. „Mér finnst þessar að- gerðir hjá verkalýðsfélaginu Baldri hálfgerð tímaskekkja. Þeir eru auðvitað fyrst og fremst að berjast fyrir fisk- verkafólk og þetta virðist vera eini atvinnureksturinn fyrir utan þann geira, sem þeir eru að reyna að stoppa. Það eru allir aðrir félagar í Baldri að vinna, samanber starfsmenn hjá bænum og fleiri,“ sagði Tryggvi að lokum. Karitas Pálsdóttir um verkfallsbrot og kröfur ASV Það er ekki bara forystan sem ákveður kröfurnar Karitas Pálsdóttir. Verkfallsverðir stöðva ísflutningabifreið sem kom frá Þingeyri á laugardag. Karitas Pálsdóttir varð fyrir svörum á föstudaginn, þegar haft var samband við skrif- stofu Alþýðusambands Vest- fjarða út af málsatvikum við Skógarfoss. Hún kvað það verða koma í ljós hvort skaðabótakrafa bærist frá Tryggva. „Við teljum okkur hafa verið í fullum rétti. Ég efa ekki að Tryggvi sé með öll tilskilin réttindi en hann var þarna að ganga í störf starfsmanna sem eru í verk- falli. Menn eins og Tryggvi, virðast ekki skilja í hvernig kjarabaráttu við erum. Þetta er almenni kjarasamningurinn var ekki boðuð allsherjar vinnustöðvun og það eru marg- ar starfsgreinar sem eru ekki í verkfalli þótt þar starfi félags- menn í Baldri, t.d. fólk í heil- brigðisgeiranum. Auðvitað gæti þetta endað með því að það verði allsherjar vinnu- stöðvun.“ - Er ekki hætt við, að eftir því sem verkfallið dregst á langinn verði félagsmenn ósátt- ari og deili þá kannski á for- ystuna fyrir að setja fram kröfur umfram aðra? „Nú held ég að þú miskiljir hlutina. Það er ekki bara for- ystan sem ákveður þessar kröf- ur. Það er auðvitað fólkið í félögunum sem ákveður þetta, en ekki einhver einn eða tveir karlar, eða kerlingar, út í horni. Þú heyrir auðvitað áróður vinnuveitenda í öllum fjölmiðl- um, þar sem þeir tala um að fólkinu hafi ekki verið kynnt þetta og hitt.“ „Nú hefur það sjónarmið heyrst, og jafnvel frá fólki í verkfalli, að þetta sé orðin þráhyggja hjá forystunni. Hvað segir þú um það? „Þá skaltu fá ummæli þessa fólks. Þetta sjónarmið hefur ekki komið fram á þeim fund- um sem hér hafa farið fram eða frá þeim mikla fjölda fólks sem kemur á skrifstofu félaganna. Auðvitað er fólk óttaslegið og það eru eðlileg viðbrögð, en það er samt engan bilbug að finna hjá fólki,“ sagði Karitas sem hér um ræðir og hafnar- vinna fellur undir hann. Það Lionsklúbbur Ísafjarðar Skemmtun gegn fíkniefnum Lionshreyfingin á Íslandi hefur tileinkað sér fyrsta laugardag í maí ár hvert, sem sérstakan baráttudag gegn fíkniefnum. Laugardaginn 3. maí nk., verður dagskrá á vegum Lionsklúbbs Ísafjarðar í íþróttahúsinu á Torfnesi af þessu tilefni. Til liðs við Lionsklúbb Ísafjarðar kemur Magnús Scheving, þolfimikennari, og mun hann halda uppi skemmti- dagskrá í tilefni dagsins með leikjum og ýmsum uppátækj- um. Lionshreyfingin hefur haft með höndum viðamikla fræð- slu um forvarnir í þessu sam- bandi og má þar nefna Lions Quest námsefnið, sem hefur farið víða í skóla landsins. Lionsklúbbur Ísafjarðar hefur staðið fyrir einu slíku nám- skeiði á Ísafirði þar sem tóku þátt á fjórða tug manna, kenn- arar, hjúkrunarfræðingar, lög- regla og aðrir aðilar sem vinna að þessu málefni. Frá Torfnesi.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.