Bæjarins besta - 30.04.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997
Eftirsótt leirlista-
verk frá Þingeyri
Pantanasíminn
er 456 3367
tt
Ýlfa Einarsdóttir, leirlistakona.
Að undanförnu hafa
tvær ungar konur frá
Þingeyri vakið athygli fyrir
listfengi sitt við leirkera-
smíði. Þetta eru þær
Kristbjörg Bjarnadóttir og
Ýlfa Einarsdóttir og ákvað
blaðið að ná tali af þeim til
að forvitnast um hvað
þær væru að fást við.
Kristbjörg var reyndar
stödd í Reykjavík þegar
samtalið fór fram þannig
að Ýlfa varð fyrir svörum.
Hún segir að upphafið að
leirkerasmíðinni megi
rekja til þess að þær
stöllur kynntust henni hjá
svilkonu Ýlfu og ákváðu
að sækja byrjendanám-
skeið hjá Ólöfu Odds-
dóttur á Suðureyri í
fyrravor, en Ólöf er
menntuð í listgreininni.
Þarna var um grunn-
námskeið að ræða og
hafa þær Ýlfa og Krist-
björg þróað sig áfram
með tímanum en vinna
með leir er mjög vanda-
söm og segir Ýlfa að oft
hafi þær verið að því
komnar að gefast upp.
Reynir á þolinmæðina
Við vinnum úr steinleir
og útbúum mót úr gifsi
sem gripirnir eru mótaðir
í. Vinna við þetta er mjög
flókið ferli og það er
margt sem þarf að
athuga. Til dæmis má gifs
og leir ekki mætast í
brennslunni því þá
springa gripirnir. Eins má
ekki vera loft í leirnum og
því verður að hnoða hann
á réttan hátt til að ná
loftinu úr. Það verður að
passa upp á að hnoða
leirinn ekki of mikið því þá
er hætta á að lofti sé
hnoðað í hann. Þetta
getur oft reynt ansi mikið
á þolinmæðina og við
höfum oft verið að því
komnar að hætta þessu.
En ég er svo heppin að
mamma á góða vinkonu,
Kristjönu Samper, sem er
leirlistamaður og hún
hefur verið óþreytandi við
að stappa í okkur stálinu.
Ýlfa vinnur hálfan
daginn í sparisjóðnum á
Þingeyri en hún segir að
sífellt meiri tími fari í
leirinn. Hún vill þó ekki
færast of mikið í fang því
hún setur framar öllu að
hafa gaman af því sem
hún er að gera. Við
höfum fengið mjög góð
viðbrögð að undanförnu
sem má kannski rekja til
þess að við höfum verið
duglegar við að koma
okkur á framfæri. Hluti af
þessu getur verið að við
fórum að sýna og selja
listmuni á Húsgagna-
loftinu og í Rammagerð-
inni á Ísafirði, en það
virtist kvikna mikill áhugi
hjá fólki í kjölfarið. Ég veit
ekki hvað við gerum -
hvort við höldum áfram
eða hvað. Ég er bara með
vinnuaðstöðu hérna í
eldhúsinu hjá mér og þar
er allt undirlagt auðvitað,
þannig að það gengur
ekki til lengdar. Ég vill líka
hafa gaman af því sem
ég geri og ég er dálítið
hrædd við að ef þetta
verður of mikið, þá verði
þetta kvöð og ánægjan
hverfi. Við erum svona að
melda það með okkur
þessa stundina hvað við
gerum í framhaldinu.
Fjölbreytt starf hjá
handverksfólki
Ýlfa segir aðspurð, að
þrátt fyrir eftirgrennslan,
þá hafi þeim ekki tekist að
fá húsnæði sem henti
undir starfsemina á
Þingeyri. Einnig segir hún
talsverða eldhættu af
brennsluofninum og að
öryggisráðstafanir vegna
þess geti reynst kostnað-
arsamar. Ofninn eru þær
með að láni frá Kvenfélagi
Mosvallahrepps og er Ýlfa
mjög þakklát félaginu fyrir
afnotin. Hún segir að
gripirnir hafi stækkað með
tímanum og því sé í
rauninni orðin þörf á
stærri ofni til að brenna
þá í. Það sem er vinsæl-
ast um þessar mundir eru
risastórar skálar á stærð
við hálfan bobbing og
kertastjakar á gólf sem
eru um hálfur metri á
hæð. Þær Ýlfa og Krist-
björg búa einnig til smærri
hluti eins og veggljós,
kertastjaka og bjöllur, svo
eitthvað sé nefnt. Ýlfa
segir að sér hafi komið á
óvart hversu viðbrögðin
hafa verið góð. Þetta hafi
verið fikt til að byrja með
og þær síðan haldið
áfram á þrjóskunni.
- Starfið þið eitthvað
með handverksfélaginu á
Þingeyri Ýlfa?
Já, við gerðum það á
tímabili. Það eru frábærar
konur sem starfa innan
félagsins og gífurlega
vönduð vinna sem þar er
innt af hendi. Borgný
Gunnarsdóttir er til dæmis
að vinna frábæra hluti úr
selskinni, lambsskinni og
roði, t.d. töskur, veski,
skartgripi og hárspennur.
Það eru ólíklegustu hlutir
sem eru unnir þarna. Það
er prjónað, skorið út í við,
hnýttar bastkörfur,
leirvinnsla, járnsmíði,
kertamálun, dúkasaumur,
prjónaðar lopapeysur,
málaðir timburmunir og
fleira. Það er gífurleg
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI 1 • ÍSAFIRÐI • % 456 3940 & 456 3244 • o 456 4547
Fasteignaviðskipti
Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins
sýnishorn af söluskrá skrifstofunnar. Allar frekari
upplýsingar varðandi söluskrá fasteigna eru veittar
á skrifstofunni að Hafnarstræti 1, 3. hæð.
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Verð:
4.900.000,-
Stórholt 9: 74,6m² íbúð á 1. hæð fyrir
miðju í fjölbýlishúsi. Verð: 5.300.000,-
Stórholt 11: 80m² 3ja herbergja íbúð
á 3 hæð í fjölbýlishúsi. Verð:
6.000.000,-
Stórholt 11: 80 m² 3ja herbergja
íbúð á 2 hæð í fjölbýlishúsi ásamt
innbyggðum bílskúr. Verð: 6.900.000,-
Stórholt 11: 72,6m² 3ja herbergja
íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Verð:
4.500.000,-
2ja herbergja íbúðir
Hlíf II: 50,4m² íbúð á 2. hæð í Dvalar-
heimili aldraðra Verð: 6.100.000,-
Hlíf II: 50,4 m² íbúð á 4 hæð
í Dvalarheimili aldraðra. Verð:
5.900.000,-
Sundstræti 24: 69m² íbúð á jarðhæð
í þríbýlishúsi. Íbúðin er mikið upp-
gerð. Verð: 5.200.000,-
Suðureyri
Aðalgata 23: Einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt bílskúr og ræktaðri
lóð. Verð 2.600.000,-
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Engar
áhvílandi veðskuldir. Verð: 3.500.000,-
Túngata 12: 98,9m² 4ra herbergja
íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi. Mikið
uppgerð. Verð: 6.700.000,-
Túngata 21: 77,5m² 4ra herbergja ris-
íbúð í þríbýlishúsi. Verð: 5.600.000,-
Urðarvegur 25 - Hraunprýði: 155m²
5-6 herbergja íbúð á 2 hæðum að
hluta í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Skipti
á ódýrari eign möguleg. Tilboð
óskast.
3ja herbergja íbúðir
Aðalstræti 20: 98m² íbúð á 2. hæð
t.v. í fjölbýlishúsi ásamt sérgeymslu.
Verð: 6.900.000,-
Fjarðarstræti 13: 80m² íbúð á efri
hæð í tvíbýlishúsi, tvö aukaherbergi í
risi og kjallara. Verð 5.900.000,-
Hlíðarvegur 27: 76m² íbúð á efri
hæð tvíbýlishúsi ásamt 35m² bílskúr.
Mögulegt að taka bíl uppí. Verð:
5.500.000,-
Seljalandsvegur 67: 107m² íbúð á
neðri hæð í tvíbýli. Verð: 6.000.000,-
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 1. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Verð:
5.100.000,-
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3. hæð
einni hæð ásamt bílskúr. Skipti á
minni eigna á Eyrinni möguleg. Tilboð
óskast.
Hafraholt 14: 144,4m² raðhús á
tveimur hæðum, ásamt bílskúr. Verð:
9.500.000,-
Heiðarbraut 6: 133,3m² einbýlishús
á einni hæðásamt bílskúr. Verð:
10.700.000,-
Hjallavegur 19: 242m² einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Skipti á minni eign möguleg.
Verð : 12.700.000,-
Hliðarvegur 26a: 120m² einbýlishús
á tveimur hæðum ásamt kjallara.
Verð: 6.700.000,-
Einbýlishús / raðhús
Bakkavegur 23: 133,8m² einbýlishús
á einni hæð ásamt 34,9m² bílskúr.
Verð kr. 8.900.000,-
Bakkavegur 25: 154m² einbýlishús
á einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
8.700.000,-
Brautarholt 12: 143,3m² einbýlishús
á einni hæð ásamt 56m² bílskúr. Verð:
11.300.000,-
Dalbraut 13: 120,7m² einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
9.500.000,-
Fagraholt 12: 156,7m² einbýlishús á
Brautarholt 12: 161,2m² einbýlishús á einni hæð ásamt
53,3m² bílskúr. Verð: 11.300.000,-
Tangagata 6a: 99,7m² einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt litlum kjallara. Verð: 6.800.000,-
Hlíðarvegur 48: 146,4m² einbýlishús á þremur pöllum,
mjög fallegt útsýni. Verð: 7.000.000,-
bergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Mikið uppgerð. Verð: 5.900.000,-
Fjarðarstræti 4: 120m² 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjöbýlishúsi. Verð kr.
6.500.000,-
Fjarðarstræti 14: 191m² 3ja her-
bergja íbúð á neðri hæðí tvíbýlishúsi
ásamt kjallara. Verð: 6.200.000,-
Fjarðarstræti 38: 130m² 5 herbergja
íbúð á 2 hæðum í þríbýlishúsi. Hag-
stæð lán fylgja. Verð: 7.000.000,-
Pólgata 4: 136 m² 5 herbergja íbúð á
2 hæð í þríbýlishúsi ásamt litlum
bílskúr. Verð: 5.500.000,-
Seljalandsvegur 20: 125,2m² 4ra
herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Verð: 7.900.000,-
Seljalandsvegur 20: 161,2m² 5-6
herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt stórum bílskúr. Mjög fallegt
útsýni. Verð: 10.700.000,-
Sólgata 5: 102m² 6 herbergja íbúð á
tveimur hæðum í norðurenda í tvíbýl-
ishúsi. Verð: 5.000.000,-
Stórholt 7: 116m² 4ra herbergja íbúð
á 3. hæð. t.h. í fjölbýlishúsi. Verð
7.400.000,-
Stórholt 11: 103m² 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi ásamt
bílageymslu. Íbúðin er laus fljótlega.
Verð: 7.800,000,-
Tangagata 20: 70m² 4ra herbergja
Hlíðarvegur 38: 183,2m² raðhús á
þremur hæðum. Verð: 9.500.000,-
Miðtún 31: 190m² endaraðhús í
norðurenda á tveimur hæðum. Tilboð
óskast.
Silfurgata 9: 150m² einbýlishús, 4ra
herbergja á tveimur hæðum, ásamt
garði, kjallara og geymsluskúr.
Tilboð óskast.
Skipagata 11: 78 m² einbýlishús á
tveimur hæðum. Tilboð óskast.
Stakkanes 4: 144 m² raðhús á 2
hæðum ásamt bílskúr og sólstofu.
Skipti möguleg á Eyrinni. Verð:
9.900.000,-
Stakkanes 6: 144 m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt bílskúr og
sólstofu. Skipti minni eign möguleg.
Verð: 10.900.000,-
Strandgata 3: 130,5m² einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt geymsluskúr.
Verð 3.500.000,-
Urðarvegur 26: 236,9m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð: 11.800.000,-
4-6 herbergja íbúðir
Engjavegur 21: 132,2m² 4-5 her-
bergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt kjallara. Verð: 8.500.000,-
Engjavegur 31: 92,1m² 4ra her-