Bæjarins besta - 30.04.1997, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 11
Daði Guðmundsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur
Þessar aðgerðir eru móðg-
un við bolvískt verkafólk
Félagsmenn í Verkalýðs- og
sjómannafélagi Bolungarvíkur
samþykktu um helgina ný-
gerðan kjarasamning með 85%
greiddra atkvæða. Á kjörskrá
voru 153 og greiddu 83 at-
kvæði. 69 sögðu já, 12 sögðu
nei og einn atkvæðaseðill var
auður. Áður en atkvæðagreiðsl-
an hófst á laugardaginn, var
haldinn fundur þar sem samn-
ingurinn var útskýrður fyrir
félagsmönnum. Verkfallsmenn
á Ísafirði gerðu sér ferð til
Bolungarvíkur á rútu og fjölda
einkabifreiða og afhentu þeir
Bolvíkingum, sem voru að fara
á fundinn, plagg sem á stóð:
Verkafólk Bolungarvík! Kraf-
an er 100 þúsund. Ætlið þið að
sætta ykkur við 70 þúsund
krónurnar!
Í samtali við Daða Guð-
mundsson, formann Verka-
lýðs- og sjómannafélags Bol-
ungarvíkur, kom fram að hann
er mjög ósáttur við þessi vinnu-
brögð. Hann telur aðgerðirnar
á laugardag móðgun við bol-
vískt verkafólk. „Þetta er yfir-
gangur gagnvart Verkalýðs- og
sjómannafélagi Bolungarvíkur,
en ég tel að þetta hafi haft öfug
áhrif miðað við það sem ætlað
var. Eins er ég mjög óhress
með það sem gerðist á sunnu-
daginn þegar verkfallsmenn frá
Ísafirði komu í veg fyrir losun
úr Reykjafossi í Bolungar-
víkurhöfn. Þetta er lögsagnar-
umdæmi Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Bolungarvíkur og
verkfallsverðir eða stjórn Bald-
urs hafði ekkert samband við
mig eða stjórn VSB út af þess-
um aðgerðum. Félagar hér eru
ekki í verkfalli þannig að það
mátti skipa hér upp tómum
frystigámum sem eingöngu átti
að nota af fiskvinnslunni í
Bolungarvík. Þarna gengu
menn langt út fyrir sitt verk-
svið. Ég vona að menn fari nú
að vitkast og haldi sér við sitt
verksvið, nema þeir séu búnir
að yfirtaka Verkalýðs og sjó-
mannafélag Bolungarvíkur en
mér þætti vænt um að heyra
það fyrstur. Þetta er yfirgangur
á hæsta stigi,“ sagði Daði.
Hann segir að síðan hann
varð formaður VSB 1991, þá
hafi hann haft mjög góð sam-
skipti við forystu Verkalýðs-
félagsins Baldurs og Alþýðu-
sambands Vestfjarða. „Þau
hafa verið mér mjög hjálpsöm
í sambandi við mín mál og ég
vil ekki trúa að þessu sé
stjórnað af formanni Baldurs.
Mér finnst þessi samskipti vera
komin á mjög alvarlega braut.
Ég veit ekki hvert framhaldið
verður en það hefur svo sem
áður kastast í kekki milli félaga
á Vestfjörðum. Alþýðusam-
bandið hefur verið sterkt undir
stjórn Péturs Sigurðssonar en
hann verður auðvitað ekki eilíf-
ur þarna. Mínum afskiptum af
verkalýðshreyfingunni er að
ljúka en ég hef ákveðið að segja
af mér formennskunni í haust.
Ég hafði ætlað mér að sitja
áfram til loka ársins 1999, ef
félagar mínir hefðu óskað þess,
en þessi læti öll hafa orðið til
þess að ég hef ákveðið að
hætta,“ sagði Daði að lokum
Daði Guðmundsson.
Ók á stein á Óshlíð
Grunur um
ölvunarakstur
Aðfaranótt sunnudags lenti
ökumaður Honda bifreiðar í
hremmingum á Óshlíð en
hann ók á stóran stein sem
hafði fallið á veginn.
Að sögn Guðmundar Fylk-
issonar, hjá lögreglunni á
Ísafirði, var áreksturinn harð-
ur og þeyttist bíllinn yfir
steininn. Guðmundur segir að
reyndar hafi lögreglan verið
búin að fá ábendingu um
steininn og hann hafi verið
merktur fyrr um nóttina til
aðvörunar ökumönnum. Það
kom þó ekki að gagni fyrir
fyrrgreindan ökumann, sem
reyndar er grunaður um ölvun
við akstur.
Meiðsl ökumannsins voru
óveruleg en bifreiðin er mjög
mikið skemmd.
Burtu með nagladekkin
Önundur Jónsson, yfirlög-
regluþjónn á Ísafirði, hafði
samband við blaðið og vildi
hvetja ökumenn til að skipta
yfir á sumardekk því vegir
væru orðnir snjólausir og
greinilegt að sumarið væri á
næsta leiti.
Fossavatnsgangan
Háð á helginni
Hin árlega Fossavatns-
ganga verður haldin á laugar-
daginn og hefst hún kl. 14:00.
20 km. göngu karla og
kvenna, 16-34 ára, 35-49 ára
og 50 ára og eldri ásamt
þriggja manna sveitakeppni
verður startað við Vatna-
hnjúk. 10 km. göngu karla og
kvenna, 7 km. göngu karla
og kvenna ásamt sveitakeppni
þriggja manna sveita, verður
startað við Kristjánsbúð.
Skráning fer fram í Sport-
hlöðunni en nánari upplýs-
ingar er hægt að nálgast á
heimasíðu Fossavatnsgöng-
unnar á Internetinu, á slóð-
inni: http://www.basafell.is/
fossavatn/
Internetþjónusta Snerpu á Vestfjörðum
Flutningsgetan suður tvöfölduð
Notendur Internetsins á Vestfjörðum hafa sjálfsagt margir
orðið varir við, að undanfarið hefur reynst erfitt að komast í
samband við Snerpu, sérstaklega á álagstímum á kvöldin og um
helgar. Nú á þetta vandamál að vera úr sögunni því samband
Snerpu suður hefur verið tvöfaldað, sem þýðir 128 kílóbita
flutningsgetu á sekúndu.
,,Aðalbreytingin fyrir notendur ætti að að verða greiðari
samskipti og flutningsgeta mótalda ætti nú að nýtast að fullu en
undanfarnar vikur hefur skort á það. Eins ætti að verða minna
um það núna að það sé á tali hjá okkur á álagstímum en það var
orðið talsvert vandamál því ekki var hægt að fjölga mótöldum á
tímabili þar sem allir deila með sér sömu línunni suður og eldri
línan bar ekki meiri umferð. Við höfum hins vegar reynt að ná
samningum við Póst og Síma hf., um að fá sérstaka línu beint til
Reykjavíkur, sem myndi nýtast okkur betur, en þeir vilja fá
tæplega fimm sinnum meira fyrir hana en fyrir núverandi
tengingu sem er um háhraðanetið. Okkur fannst það ekki geta
staðið undir sér, sérstaklega ef netfangagjöld ættu að haldast
óbreytt, þannig að við gerðum P&S tilboð um að koma til móts
við okkur í verðinu, á þeim forsendum að þeir væru hlutafélag
sem hlyti að geta lagað sig að markaðnum. Það er enginn sem
kaupir svona línu af þeim núna á þessarri vegalengd og við
bentum á að þjónustan er í rauninni ekki meira virði en kúnninn
er tilbúinn að borga fyrir hana. Samt sem áður höfnuðu þeir
okkur eftir um tveggja mánaða umhugsun og voru hvorki tilbúnir
til að lækka verðið eða semja um það. Póstur og Sími er í
rauninni sjálfum sér verstur með þessari stefnu því ef notendur
fá greiðari aðgang, þá nota þeir þjónustuna meira. Fyrirtækið er
að takmarka tekjumöguleika sína með þessum hugsunarhætti,”
sagði Björn Davíðsson, hjá Snerpu, í samtali við blaðið.
,, Þörf fyrir aukin afköst á línum sem tengja saman
Internetþjónustur hefur aukist mikið undanfarið, og má nefna
sem dæmi að tenging Íslands við umheiminn sem er kostuð
sameiginlega af tengigjöldum íslenskra notenda, var aukin í í 4
mbit þann 14. mars síðastliðinn með opnun á nýrri línu til
Kanada en fyrir var 2 mbit tenging til Svíþjóðar auk 1 mbit
sambands sem P&S rekur. Nú hefur komið í ljós að þessi
stækkun dugir hvergi til og er stefnt að því að tvöfalda sambandið
til Kanada í maí, þannig að heildarburðargeta verður 6 mbit að
þeirri stækkun lokinni. Þrátt fyrir þessar stækkanir er ekki gert
ráð fyrir að netgjöld þurfi að hækka, þar sem einnig er um
töluverða fjölgun notenda að ræða,” sagði Björn.
Menntamálaráðuneytið
Ítrekar boð um afhendingu Skrúðs
Á 42. fundi bæjarráðs Ísa-
fjarðarbæjar var lagt fram bréf
frá menntamálaráðuneytinu,
þar sem ráðuneytið ítrekar boð
sitt um að afhenda Ísafjarðarbæ
listigarðinn Skrúð við Dýra-
fjörð.
„Ég og formaður bæjarráðs
höfum ekki gefið okkur tíma
til að fara í viðræður við
ráðuneytið um þetta mál, en ég
á ekki von á öðru en að
samkomulag náist um hvernig
yfirtöku bæjarfélagsins á Skrúð
verður háttað,“ sagði Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, aðspurður um
málið. „Fyrst eftir að að málið
var kynnt, voru uppi hugmyndir
um að stofnaður yrði sjóður
sem gæti staðið undir rekstri
garðsins en við viljum að
sjálfsögðu að það verði tryggt
að bærinn geti tekið á móti
þessari höfðinglegu gjöf,“
sagði Kristján. Hann segir að
Skrúður sé það mikil perla að
það verði að sjá til þess að
ræktun hans verði vel sinnt og
hann á ekki von á öðru en að
gjöfin verði þegin, svo fremi
að menn verði ásáttir um
hvernig það eigi að gerast.
Garðurinn Skrúður í Dýrafirði.