Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1997, Side 14

Bæjarins besta - 30.04.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ 3 SPÓLAN10TOPP http://www.minds.com/ c g i - b i n / m a s l i n k . c g i / command?stat+home Heimasíða ElectricMinds er með þeim rafmögnuðustu sem eru á Netinu h t t p : / / w w w . c u s d . claremont.edu/~j lam/ laker.html Þær eru margar körfubolta síðurnar sem eru á Netinu. Hér er ein sem ber nafnið Lakers Ground http://www.mmedia.is/ aning Ertu búin(n) að skipuleggja sumarfríið í sumar, þessi síða ætti að hjálpa þér. 1. Black Sheep 2. Chain Reaction 3. The Fan 4. Eraser 5. Phenonemon 6. Multiplicity 7. Nutty Professor 8. Escape from LA 9. Feeling Minnesota 10. A time to Kill í TÆKINU HELGAR veðrið góðará NETINUht tp : ókeypis smáauglýsingar kaup & sala Á fimmtudag lítur út fyrir að kólni í norðan strekkingi, með slyddu norðanlands en léttir smám saman til syðra. Á föstudag má búast við fremur hægri breytilegri átt og að víða létti til, hætt við næturfrosti um mest allt land. Frá laugardegi fram á mánudag lítur út fyrir fremur aðgerðalítið veður og lengst af verði þurrt um mest allt land. Heldur kólnar og má áfram búast við nætur- frosti. The Fan The Fan er spennu- og sálfræðitryllir sem fjallar um manninn Gil Renard sem er ekki með öllum mjalla. Hann hefur sjúk- legan áhuga á hafnarbolta og festir hann kaup á einni helstu stjörnu boltans og þá fara hlutirnir að gerast. MYNDBÖND HJÁ VÍDEÓHÖLLINNI Verkföll og kjarasamningar á Vestfjörðum Verkfall stóð enn í gær, þriðjudag, þá áttu samninga- viðræður að hefjast á nýjan leik. Hin almenna krafa verkalýðsfélaganna um 70.000 króna lágmarkslaun hefur náð fram að ganga. Um næstu áramót á að vera tryggt að enginn fá lægri mánaðarlaun en sem svarar 70.000 krónum. Þannig hefur farið um samninga víðast hvar. Hluti Vestfjarða sker sig úr. Alþýðusamband Vestfjarða gerði meiri kröfur og miðar við 100.000 krónur sem lægstu mánaðarlaun fyrir fulla dagvinnu. Í raun er auðvelt að fallast á að slík laun teljist ekki ofrausn. Fyrir nokkru var fjallað um þessi mál hér og þá talið skipta mestu hvernig tækist til um framhaldið. Verðbólga er versti fylgifiskur kjarasamninga, en þeir hafa nú víðast hvar verið samþykktir þrátt fyrir áberandi klofning í röðum Dagsbrúnarmanna, því miður. Iðja er um þessar mundir að greiða atkvæði um samningana. Sjálfsagt er að gera ráð fyrir því, að þeir verði samþykktir. Hvað með kjarasamn- inga á Vestfjörðum? Alþýðusamband Vest- fjarða setti fram kröfu um 100.000 króna lágmarks- laun. Því var spáð hér að til verkfalls kæmi. Sú spá gekk að sjálfsögðu eftir. Kannski er einhver flötur í sjónmáli. Þótt vissulega megi líta svo á, að þó næðist að flytja 4,5 krónum meira á hverja klukkustund úr bónus í tímakaup, sé það ekki sigur tæpast varnar- sigur, en megi túlka sem svo að ekki teljist ósigur. Fróðlegt verður að sjá framhald mála á Vest- fjörðum sagði hér fyrir páska. Í ljós koma að samstaða verkalýðsfélaganna innan fjórðungs brast. Bolvíkingar og Tálknfirðingar klufu sig út og sömdu á svipuðum nótum og meirihluti verkalýðsfélaga í landinu. Sá klofningur, sem öllum er nú ljós, innan verkalýðs- hreyfingarinnar á Vestfjörðum hefur ekki verið skýrður fyrir almenningi. Það hefur verið alveg skýrt af hálfu Vinnuveitendafélags Vestfjarða frá upphafi, að ekki yrði samið um meiri hækkanir launa í landshlutanum en annars staðar hefur verið gert. Smám saman molnar utan af ASV, samanber Patreksfjörð og Bíldudal. Þar hefur verið samið við einstaka hópa án samráðs við ASV. Getur verið að atvinnulífið á þeim stöðum standi ekki styrkari stoðum en svo, að verkalýðsfélögum sé það ljóst, að þýðingarlaust reynist að berja höfðinu við steininn og heimta meira. Í gær áttu að hefjast samningaviðræður milli ASV og vinnuveitenda á nýjan leik. Kannski ganga þær vel. En ef marka má gang samninga Pósts og síma h.f. við símsmiði og rafiðnaðarmenn eru meiri líkur á þrefi um einhvern tíma enn, því miður. Þrýstingurinn á aðila að ljúka nú samningum hefur minnkað talsvert þegar flestir hafa samið. En rúmlega viku vinnustöðvun hlýtur þó að koma sér illa fyrir flesta. Verkalýðshreyfing á hvörfum Þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja stóð um síðustu helgi og ólgaði undir þrátt fyrir að foseti ASÍ talaði á fundinum. Leikskólakennarar undu illa sínum hlut. Að þeirra mati stendur baráttan um völd í stjórn BSRB milli almennra hreyfinga launamanna og sérsamtakanna. Þarna kemur í ljós sá klofningur, sem hér er spáð að muni vaxa á næstu árum. Gjáin milli þeirra sem hafa sérmenntun hvers kyns og hinna sem ekki búa yfir henni breikkar á næstu árum. Hagfræð- ingar úti í hinum stóra heimi deila um orsakir þessarar þróunar. En þó pófessorarnir frægu við MIT, hinn fræga skóla Massachusetts Institute of Technology, hagfræðingarnir Thurow og Krugman séu ekki sammála um orsakirnar, eru þeir þó sammála um að ófaglærðir í Bandaríkjunum búi í raun við það að sitja eftir meðan sérfræðingarnir rjúka langt fram úr þeim. Laun hinna lægstlaunuðu muni lækka eða að minnsta kosti ekki hækka meðan sérmenntað fólk fær sífellt hærri laun. Um þetta mátti lesa í sunnudags Mogga. Þessi þróun mun láta á sér kræla um allan heim. Þannig að búast má við því að víðtæk pólitísk samstaða sé helsta leiðin til að snúa þessari þróun við. Sú ósk er sett hér fram að samningum ljúki hið allra fyrsta og bæði vinnuveitendur og verkalyðsfélög taki þegar til við undirbúning þeirra næstu eftir þrjú ár. - Stakkur Óska eftir vel með förnum kerruvagni. Upplýsingar í síma 456 7284 Til sölu mjög lítið notuð, brún, Sonax leðurstígvél með þykk- um botni, nr. 39. Verð kr. 6000,- .Upplýsingar í síma 456 4646 Hafraholt 16 á Ísafirði, sem er glæsilegt raðhús á tveimur hæðum, er til sölu. 4 svefnher- bergi og nýuppgert bað með hita í gólfi. Upplýsingar í síma 456 4734 Tapað! Ný dökkblá Addidas barnaúlpa hefur tapast. Finn- andi vinsamlega hafi samband í síma 456 4261 Til sölu gullfiskar ásamt búri, dælu og tilheyrandi. Upp- lýsingar í síma 456 3928 Til sölu Lada skutbíll til niðurrifs. Upplýsingar í síma 456 7348 Óska eftir barnastól á hjól, gefins eða fyrir lítinn pening. Á sama stað er til sölu 18 gíra fjallahjól fyrir 10-12 ára. Upplýsingar í síma 456 4175 Til sölu álfelgur og sumardekk fyrir Subaru 1800. Upplýsingar í síma 456 4132, Einar. Til sölu nær óslitin Norðdekk sumardekk fyrir Lada sport, 185/70 R14. Verð kr. 15 þús- und. Upplýsingar í síma 456 7187, Siggi. Óska eftir vel með förnum, lítið keyrðum bíl, ekki eldri en árgerð ´91. Á sama stað er til sölu Toyota Tercel, árg. ´85. Upplýsingar í síma 456 3437, eftir kl. 20. Til sölu kojur. Upplýsingar í síma 456 4234 Til sölu 9 nála litanálaprentari m/nýjum borða. Upplýsingar í síma 456 6238, eftir kl. 17. Til sölu Linotronic þurrkari, Bruno riffill, 22 kal og Toyota Hilux jeppi. Upplýsingar í síma 456 4113, á kvöldin. Lækkað verð - nú er tækifærið! Til sölu einbýlishús ásamt bílskúr að Tagagötu 24, Ísafirði. Sjón er sögu ríkari. Verð kr. 10,4 milljónir. Upplýsingar í síma 456 3763 Til sölu þurrkari og þvottavél, baðborð, barnavagn, barnarúm, sjónvarp, stofuskápur og ýmislegt fleira. Upplýsingar í síma 456 7473 Til sölu lítið notað áklæði á Toyota Touring ́ 95, 4 stk. felgur á Toyota Corolla. Upplýsingar í síma 456 5481, Guðmundur. Ódýr 2ja herbergja íbúð til sölu. Allt nýtt, ódýrt að kynda. Selst á hlægilegu verði. Lítil eða engin útborgun - jafnvel góður bíll kemur til greina. Upplýsingar í síma 456 3128 Halló! Ég heiti Guðríður og tek að mér að passa börn, eins árs eða yngri, hálfan eða allan daginn í júlí og ágúst. Er 12 ára og bý á Hlíðarveginum. Upplýsingar í síma 456 4125. Til sölu blár Silvercross barna- vagn. Einnig systkinasæti á Silver- cross og lítið notað barnarúm. Upplýsingar í síma 456 5199 Til sölu John Letter golfsett úr grafíti. Upplýsingar í síma 456 3642, eftir kl. 17. Til sölu Kawasaki 700, árg. ´84, innflutt ´95. Ekið 7000 mílur og lítur vel út. Upplýsingar í síma 456 4212 Til sölu er nýtt 33" Kolster sjónvarp og Sherwood heima- bíókerfi. Upplýsingar í síma 456 7254, Páll. Til sölu Subaru 1800, 4x4, árgerð 1987. Upplýsingar í síma 456 4563 eða 854 3043 Óskum eftir notuðu Sodastream tæki fyrir lítinn pening. Upplýs- ingar í síma 456 4184 milli 18 og 19 og 845 3626 á daginn. Sá sem tók í misgripum svartan Nike bakpoka með persónulegum munum í, í sundlauginni í Bolung- arvík sunnudaginn 20. apríl, vinsamlega skili honum til sund- laugarvarðar. Takið eftir! Á degi Rauða kross- ins, 8. maí, verður opið í Árna- götunni og fólk getur komið í kaffi, spjallað og kynnt sér starfsemina. Allir velkomnir! Orlof húsmæðra á Ísafirði! Fyrirhuguð er orlofsferð til útlanda í haust. Nánar auglýst eftir útkomu ferðabæklinga frá ferðaskrifstofum. Óska eftir felgum undir Su- baru, árg. ´90. Upplýsingar í síma 456 4721 Til sölu Nissan Patrol árgerð 1991, diesel, ekinn 135 þúsund km. verð 2,2 milljónir. Upp- lýsingar í síma 456 8353 Kettlingar fást gefins! Upp- lýsingar í síma 456 4088 á morgnana og á kvöldin, Adda. Til sölu borðstofuborð og sex stólar. Upplýsingar í síma 456 7579 Óska eftir að kaupa 200-300 lítra hitakút. Upplýsingar í síma 456 7207 Til leigu 4ja herbergja einbýlis- hús í Bolungarvík, utan hættusvæðis. 25 þúsund á mánuði, leigt frá 1. júní. Upp- lýsingar í síma 456 7207 Eldri borgarar! Boðað er til aðalfundar í Félagi eldri borgara á Ísafirði, laugardaginn 3. maí, kl. 14 í fundarsal Hlífar. Stjórn félagsins. Til sölu Pentium 166mhz tölva m/ 32mb vinnsluminni, 1250 mb HD, netkorti, útvarpskorti, 8x geisladrifi, Microsoft Office, Corel Draw 6.0 o.fl. Upplýs- ingar í síma 456 3617 Til sölu Pentium tölva ásamt Canon 240 litaprentara. Upp- lýsingar í síma 456 3421

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.