Bæjarins besta - 30.04.1997, Síða 16
Bæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
Sláturfélagið Barði hf.
Óskað eftir gjald-
þrotaskiptum
bært að tjá sig um málið.
„Þarna voru til umræðu
ýmis málefni félagsins og
erfiðleikarnir sem það hefur
glímt við. Reksturinn hefur
verið erfiður hjá Barða, eins
og hjá þessum minni slátur-
húsum og þar fyrir utan er
markaðurinn hér fyrir vestan
mjög erfiður og margar
smásöluverslanir hafa farið
á hausinn. Stærsti bitinn fyrir
okkur var Kaupfélag Ísfirð-
inga en Barði átti þar inni 9
til 10 milljónir króna,“ sagði
Þorvaldur.
Stjórnarfundur var haldinn
í Sláturfélaginu Barða hf. á
Þingeyri á laugardaginn, en
fyrirtækið hætti formlegri
starfsemi í vetur vegna
rekstrarörðugleika. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
mun á fundinum hafa verið
samþykkt að óska eftir gjald-
þrotaskiptum á fyrirtækinu.
Þorvaldur Þórðarson,
bóndi á Stað í Súgandafirði,
sem er stjórnarformaður
Barða hf., vildi ekki staðfesta
þetta þegar haft var samband
við hann og taldi ekki tíma-
Þingeyri
Skaut sig í hendina
Það óhapp vildi til á Þing-
eyri á laugardaginn að maður
skaut af stórgripabyssu í
gegnum hendina á sér.
Samkvæmt heimildum
blaðsins mun atburðurinn
hafa gerst eftir stjórnarfund í
Sláturfélaginu Barða hf., á
Þingeyri. Framkvæmdastjóri
fyrirtækisins mun hafa verið
að sýna viðstöddum byssu,
sem notuð er við stórgripa-
slátrun, þegar skot hljóp af
slysni í handarbak mannsins.
Pinni sem gengur út af
byssunni fór í gegnum hend-
ina og út um lófann og skildi
eftir sig gat á stærð við krónu-
pening. Maðurinn var fluttur
suður á Sjúkrahús Reykja-
víkur og munu meiðsl hans
vera talsverð.
Ísafjörður
Guðrún í stjórn
Aðalfundur Kaupþings
Norðurlands var haldinn fyrir
stuttu. Á fundinum var af-
koma félagsins á síðasta ári
kynnt, auk þess sem kjörin
var ný stjórn fyrir næsta
starfsár.
Meðal stjórnarmanna í
Kaupþingi er Guðrún Guð-
mannsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga, en auk hennar skipa
stjórnina þeir Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Kaup-
þings, Árni Magnússon, fjár-
málastjóri KEA, Þorsteinn
Þorvaldsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Ólafsfjarðar og
Sigurður Einarsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Kaup-
þings hf.
Hér var um að ræða hæsta
vinninginn sem dreginn var
út að þessu sinni en næst
hæstu vinningar voru 100
þúsund á einfaldan miða eða
200 þúsund krónur á tvö-
faldan miða.
Hjón á fimmtugsaldri á
Ísafirði duttu í lukkupottinn
á föstudag þegar dregið var í
happdrætti DAS við lok
happdrættisársins. Hjónin
fengu fimm milljónir króna
og kom vinningurinn á ein-
faldan miða.
Fengu fimm milljónir
Ísafjörður
Verkafólk frá Ísafirði fjölmennti að húsi Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur á laugardag og afhenti bolvísku
verkafólki áskorun um að samþykkja ekki samninginn.
Bolvíkingar samþykktu samninginn
Félagsmenn í Verkalýðs- og sjómannafélagi Bol-
ungarvíkur samþykktu um helgina nýgerðan kjara-
samning með 85% greiddra atkvæða. Áður en at-
kvæðagreiðslan hófst á laugardaginn, var haldinn
fundur þar sem samningurinn var útskýrður fyrir
félagsmönnum. Verkfallsmenn á Ísafirði gerðu sér ferð
til Bolungarvíkur á rútu og fjölda einkabifreiða og
afhentu þeir Bolvíkingum, sem voru að fara á fundinn,
plagg þar sem þeir voru beðnir um að athuga sinn
gang áður en þeir samþykktu samninginn. Allt kom þó
fyrir ekki og var samningurinn samþykktur með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða. Sjá nánar frétt á bls. 11.
Hlutafjáraukning Básafells hf.
Forkaupsréttur Ísafjarðar-
bæjar 34 milljónir króna
Á hluthafafundi í Básafelli
hf. þann 23. janúar s.l. var
samþykkt að veita stjórn fél-
agsins heimild til að auka hluta-
fé félagsins um allt að 250
millljónir króna að nafnvirði.
Stjórnin hefur ákveðið að nýta
sér heimildina en hluthafar hafa
forkaupsrétt að hlutum í hlut-
falli við eign sína í félaginu.
Ísafjarðarbær er næst stærsti
hluthafinn í Básafelli og er hlut-
ur sveitarfélagsins í forkaups-
rétti tæplega 34 milljónir að
nafnvirði eða tæplega 131
milljón króna að söluvirði
miðað við gengið 3,86 sem for-
kaupsrétthöfum er boðið hluta-
féð á. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt að hefja við-
ræður við stjórn Básafells hf.
um nýtingu forkaupsréttar. Að
sögn Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar, bæjarstjóra Ísafjarðar-
bæjar, er spurning um hvort
bæjarráð nýti allan forkaupsrétt
sinn og hvernig. „Básafell
skuldar bænum gjöld og við
ætlum að fara í viðræður við
þá um með hvað hætti þeir
geta hugsað sér að gera þá skuld
upp og þá ef til vill með nýtingu
forkaupsréttar Ísafjarðarbæjar
í huga,“ sagði Kristján Þór í
samtali við blaðið.
Sumri
fagnað
Ágæt þátttaka var í skáta-
messu og skrúðgöngu sem
Skátafélagið Einherjar -
Valkyrjan á Ísafirði stóð fyrir
á sumardaginn fyrsta. Ágæt-
asta veður var á fimmtudag í
síðustu viku og notfærðu því
margir bæjarbúar sér skrúð-
gönguna til að fá sér hress-
ingargöngu. Meðfylgjandi
mynd var tekin er skátarnir
gengu frá skátaheimilinu að
kirkju.