Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.06.1997, Side 8

Bæjarins besta - 04.06.1997, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 FRAMHALDSSKÓLI VESTFJARÐA PÓSTHÓLF 96 - 400 ÍSAFJÖRÐUR Innritunarfrestur vegna náms nýrra nemenda í dagskóla á væntanlegri haust- önn er til 10. júní 1997. Í boði eru einkum þessar brautir: Atvinnulífsbraut Fornám Almennt bóknám 1. árs Grunndeild málmiðna Grunndeild rafiðna Hagfræði- og tölvubraut (2. ár) Matartæknibraut Mála- og samfélagsbraut (2. ár) Náttúrufræðibraut Sjávarútvegsbraut Sjúkraliðabraut (2. ár) Vélstjórnarbraut Mjög brýnt er að allir nýir nemendur komi með eða sendi til skólans ( á Ísafirði eða útibúsins á Patreksfirði) útfyllt um- sóknareyðublöð ásamt afritum af próf- skírteinum upp úr 10. bekk grunnskóla. - Nemendur sem koma úr öðrum fram- haldsskólum skulu láta afrit af námsferli þar fylgja umsókn. - Síðar verður auglýst eftir nemendum í öldungadeild. Innritunargjald á haustönn er kr. 3.000,- og verður innheimt síðar með gíróseðli. Sé sótt of seint um skólavist má búast við að greiða þurfi þrefalt venjulegt innrit- unargjald, þ.e. kr. 9.000,- Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans kl. 9:00 til kl. 16:00. Skólameistari. Aðalfundarboð Aðalfundur Básafells hf. verður haldinn á Hótel Ísafirði, fimmtudaginn 12. júní 1997 kl. 16:00. Dagskrá er samkvæmt samþykktum félags- ins eftirfarandi: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 18. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á eigin hlutum félagsins sbr. 55. grein hluta- félaga. 3. Önnur mál löglega upp borin. Stjórnin. ÍBÚAR OG HAGSMUNAAÐILAR Á EYRINNI, ÍSAFIRÐI Kynningarfundur vegna deiliskipulags verður haldinn þriðjudagskvöldið 10. júní kl. 20:30 í Stjórnsýsluhúsinu 4. hæð. Nýtt deiliskipulag fyrir gömlu byggð- ina á Eyrinni á Ísafirði verður kynnt og rætt á fundinum, um er að ræða svæðið að norðanverðu frá Túngötu að hafnarsvæði. Allir þeir sem hagsmuna eiga að gæta eru hvattir til að koma á fundinn og kynna sér skipulagið. Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar. ÍSAFJARÐARBÆR Atvinna Vesturferðir ehf. óska eftir starfsmanni í hlutastarf í sumar. Góðrar tungumálakunnáttu krafist og áhugi á ferðaþjónustu æskilegur. Upplýsingar veitir Sigríður í síma 456 5111. Atvinna Óskum að ráða starfsfólk nú þegar í af- greiðslu- og þjónustustörf o.fl. Ekki yngri en 20 ára. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 456 5367 eða á skrifstofu, Mánagötu 1 (2. hæð). Daglega frá kl.8:00 til kl. 17:00 Framhaldsskólinn Verslunar- og hagfræði- braut Framhaldsskóla Vest- fjarða stóð að söfnun fyrir tölvum og tölvubúnaði vetur- inn 1995 til 1996. Fyrir peningana sem söfn- uðust var keyptur prentari, skanner og nokkur forrit auk þess sem Framhaldsskóli Vestfjarða gaf deildinni tölvu. Við þökkum þeim sem styrktu okkur fyrir veittan stuðning. Guðný Hólmsteinsdóttir, deildarstjóri. Þakkir til nemenda Fjölmargir bæjarbúar og gestir notfærðu sér boð um siglingu með togurum bæjar- ins um Ísafjarðardjúp, m.a. barna- og unglingakór Hall- grímskirkju í Reykjavík, sem hér tekur lagið um borð í Júlíusi Geirmundssyni. Þar var einnig þessi móðir með barn sitt, en eins og sjá má veitti barnið umhverfinu litla athygli og vildi einungis fá pelann sinn. Ísafjörður Velheppnuð hátíð- arhöld í tilefni sjómannadagsins Sjómenn um land allt héldu upp á hátíðisdag sinn á sunnu- dag. Í fjölmörgum bæjarfél- ögum hófust hátíðarhöldin á laugardag þ.á.m. í Bolungarvík og á Ísafirði. Þátttaka var góð í hátíðarhöldunum þrátt fyrir fremur sterkan vind á laugar- dag, og þóttu þau takast vel í alla staði. Á Ísafirði hófust há- tíðarhöldin með því að bæjar- búum var boðið í siglingu með togurum bæjarins um Ísafjarð- ardjúp og notfærðu margir sér þetta boð. Nýtt björgunarskip var formlega vígt á laugardag og mikil dagskrá fór fram við höfnina. Haldnar voru ræður, Pétur pókus sýndi töfrabrögð, sjómenn kepptu í netabætningu og kappróðri og ungmenni sýndu snilli sína í koddaslag og tunnuhlaupi. Á sjálfan sjómannadaginn hófst dagskrá- in með sjómannamessu í Hnífs- dalskapellu og Ísafjarðarkirkju. Við það tækifæri voru tveir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín, þeir Benedikt Egilsson og Héðinn Valdimarsson. Síðdeg- is á sunnudag bauð síðan kvennadeild Slysavarnafél- agsins í Hnífsdals til hátíðar- kaffis í félagsheimilinu í Hnífs- dal. Meðfylgjandi myndir voru teknar við hátíðarhöldin á Ísa- firði á laugardag. Kristinn Halldórsson og Gísli Skarphéðinsson voru á meðal þeirra sjómanna sem tóku þátt í keppni í netabætingu. Fjölmenni var við vígsluathöfn nýja björgunarskipsins, Gunnars Friðrikssonar, á laugardag. Pétur pókus sýndi snilli sína m.a. við að losa sig úr spenni- treyju í tveggja metra hæð. Holtsskóli Listsköpunarnámskeið Listsköpunarnámskeið verð- ur haldið í Holtsskóla, Önund- arfirði, um helgina og hefst á föstudaginn kl. 18:00 og stend- ur til kl. 17:00 á sunnudaginn. Datel Aurand, myndlistar- kennari, mun aðstoða nemend- ur við að finna sköpunargleðina og veita sköpunargáfunni útrás. Engin þörf er á kunnáttu í myndlist til að geta notið nám- skeiðisins. Námskeiðið er á ensku og er verð fyrir þátttöku kr. 13.500. Upplýsingar og skráning er hjá Sigrúnu Ólafsdóttur í síma 564 3379 og hjá Þórunni Gests- dóttur í síma 456 5329.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.