Bæjarins besta - 04.06.1997, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 11
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Til sölu
lítil og falleg 3ja herbergja
íbúð á Eyrinni. Verð: 3.900.000,-
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Barnfóstru-
námskeið
Námskeið fyrir barnfóstrur (krakka í
vist) verður haldið dagana 9. til 12. júní
nk. kl. 18:00 til 21:00 í Rauða kross
húsinu, Árnagötu 2, Ísafirði. Kennslu-
stundir eru alls 16. Kennslu annast
fóstra og hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðinu er ætlað að auka færni
og öryggi ungmenna í pössun smábarna.
Lágmarksaldur á námskeiðinu er 11
ár og hámarksfjöldi á námskeiðinu 20
manns. Námskeiðsgjald kr. 2.500,-
Skrásetning er í sima 456 4228 eftir
kl. 19:00 fram að námskeiðinu.
Ef þáttaka er næg, verður námskeiðið
endurtekið.
Golfmót í Tungudal
Gunnar sigraði
Fyrsta golfmótið á vegum
Golfklúbbs Ísafjarðar í sum-
ar, var haldið á golfvellinum
í Tungudal á sunnudag. Þar
var um að ræða Esso-Birkir
mótið, þar sem leiknar voru
18 holur með punkta fyrir-
komulagi.
Sigurvegari í mótinu var
Gunnar Sigurðsson með 38
punkta, þá kom Tryggvi
Guðmundsson með 34 punkta
og Óli Reynir Ingimarsson
með 33 punkta. Holuverðlaun
mótsins hlaut Ingi Magn-
freðsson, fyrir að fara 1,64
m frá holu.
Sunnudaginn 8. júní fer
fram Bjöggu og Lassa mótið
í golfi þar sem leiknar verða
18 holur. Mótið fer fram á
golfvelli Bolvíkinga. Laug-
ardaginn 14. júní fer síðan
fram afmælismót Ernis á
golfvellinum í Tungudal. Þar
verða einnig leiknar 18 hol-
ur. Sömu helgi fer fram
sparisjóðsmót Golfklúbbsins
Glámu á Þingeyri.
Ísafjörður
Söngvar um vorið
Kór eldri borgara á Ísafirði
mun syngja nokkur af sínum
uppáhaldslögum í Ísafjarð-
arkirkju á föstudagskvöldið
kemur, kl. 20:30.
Á tónleikunum flytja eldri
borgarar söngva um vorið,
sumarið og sólina undir
stjórn Ágústu Þórólfsdóttur
við undirleik Margrétar
Gunnarsdóttur. Allir bæjar-
búar eru hjartanlega vel-
komnir á tónleikana.
Ísafjörður
,,Við slaghörpuna
Þriðju áskriftartónleikar
Tónlistarfélags Ísafjarðar,
sem vera áttu í frímúrara-
salnum á laugardaginn var,
en fresta varð af óviðráðan-
legum orsökum, verða haldn-
ir á sama stað fimmtudaginn
5. júní kl. 20:30.
Á tónleikunum flytja þau
Ingveldur Ýr Jónsdóttir,
sópransöngkona og Jónas
Ingimundarson, píanóleik-
ari, íslensk og erlend sönglög
á sinn sérstaka hátt. Tónleik-
arnir eru haldnir undir heit-
inu ,,Við slaghörpuna” enda
mun Jónas kynna efnis-
skrána jafnóðum frá slag-
hörpunni, og áheyrendur
munu ekki fá hana í prentuðu
formi fyrr en að tónleikunum
loknum.
Ísafjörður
Bifreið stolið
Fólksbifreið var stolið þar
sem hún stóð fyrir utan
heimili eiganda hennar í
Holtahverfi á Ísafirði á föstu-
dagskvöld. Bifreiðin fannst á
sunnudag bak við bifreiða-
verkstæði á Ísafirði en þá
hafði verið auglýst eftir henni
í útvarpi.
Bifreiðin var óskemmd.
Að sögn lögreglunnar á
Ísafirði, munu bíllyklar hafa
verið skildir eftir í bifreiðinni
auk þess sem hún var ólæst,
og átti þjófurinn því auðvelt
um vik við verknað sinn.
Hefur þú séð þenn-
an kertastjaka?
Kertastjakinn á myndinni,
sem er þriggja arma úr brassi
( fyrir fjögur kerti ) og u.þ.b.
50 cm á hæð, hvarf frá Hótel
Ísafirði í febrúar s.l. Þó ekki
sé verðgildið mikið er hér
um gamlan ættargrip að ræða
sem skiptir eigandann miklu
máli að finnist. Þeir sem telja
sig vita hvar hann er niður-
kominn nú, eru vinsamlegast
beðnir um að hringja og láta
blaðamann BB vita í síma
456 4560. Góð fundarlaun
eru í boði.