Bæjarins besta - 17.09.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Þegar vellíðanin
er voðinn vís
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Sólgata 11 • 400 Ísafirði
Sími 456 5091
TILBOÐ
Gervihnattadiskur með
móttakara, afruglara og LNB
aðeins 79.900,- stgr
ÚTSALA
Celine Dion 999-, Live 1.499-,
OP8 1.499- Tom Waits 999-, ofl.
Allir nýjustu geisladiskarnir
Megaslög, Mono, Sarah
Mclachlan, Sweet 75, Slade,
Alkaholics, Lori Carson, Forest
For The Trees, PPpönk, Mommy-
heads. Eigum einnig von á Joga
með Björk
Satt fréttir
NÝ RÁS
Sky entertainment
TV S
European PGA Golf Tour frá
fimmtudegi til sunnudags
Hnífsdælingurinn Páll Halldórsson stefnir langt í rallin
Hann hefur verið með bíla-
dellu frá ellefu ára aldri, eða
allt frá því hann fékk að aka
Willis-jeppanum hans Hjálm-
ars í Hrauni í Hnífsdal. Hann
hefur fylgst með akstursíþrótt-
um frá unga aldri og keppt í
hinum ýmsu akstursíþróttum
frá árinu 1988. Hann ók vöru-
flutningabifreið milli Bolung-
arvíkur og Reykjavíkur um
átta ára skeið, og þá oftast á
löglegum hraða og í dag ekur
hann einum kraftmesta bíl
landsins, Mitsubishi Lancer,
sem gefur honum allt að 450
hestöfl og 240 km hámarks-
hraða. Hann er spennufíkill,
elskar hraða, en jafnframt er
hann varkár því fjölskyldan
er honum mikilvægari en allt
annað. Hann heitir Páll Hall-
dór Halldórsson og er 33ja
ára Hnífsdælingur, sonur
hjónanna Sigrúnar Jónu Sig-
urðardóttur og Halldórs Frið-
bjarnarsonar. Fyrir stuttu tók
Páll og aðstoðarökumaður
hans, Jóhannes Jóhannesson
þátt í hinu árlega Kumo-ralli
og höfnuðu þeir félagar í
þriðja sæti. Í samtali við blað-
ið sagðist Páll stefna á sigur í
síðasta ralli ársins sem verður
haldið á laugardag auk þess
sem hann stefndi að því að
keppa erlendis á næsta ári.
Blaðið sló á þráðinn til Páls á
föstudag og spurði hann fyrst
hvenær áhugi hans á bílum
hefði vaknað.
,,Það var þegar ég var ellefu
ára púki. Þá fékk ég að aka
Willis-jeppanum hans Hjálm-
ars í Hrauni, fékk algjöra dellu
og þá var ekki aftur snúið. Ég
hélt síðan áfram að fylgjast
með akstursíþróttum og byrj-
aði að keppa árið 1988, þá 24
ára gamall. Að vísu fékk ég
visst ,,kikk” út úr því að keyra
flutningabílana hjá Ármanni
Leifssyni, en hjá honum
starfaði ég um átta ára skeið
og ók rúmlega milljón kíló-
metra auk þess sem ég var
með mótorhjóladellu um tíma.
Það má því segja að líf mitt
hafi snúist um bíla og allt sem
þeim við kemur frá unglings-
aldri.”
Með 450 hestöfl
milli fótanna
-Hvað er það sem gerir
rallý-íþróttina svona spenn-
andi?
,,Það er númer eitt, tvö og
þrjú hraðinn. Með tilkomu
nýja bílsins bætist keppnis-
harkan við því nú stefnum við
á fyrsta sæti í hverri keppni í
stað þess að vera bara með.
Þetta snýst allt um að vera
bestur. Í Kumo-rallinu fór ég
mest í 240 km hraða, sem er
ansi hratt, en meðalhraðinn
var ekki nema 110-115 km.,
sem er bara dól, enda þá ekið
um mjög krókótta vegi. En,
þegar maður er kominn yfir
200 km hraða, fer manni að
líða vel,” sagði Páll. Hann
hefur margsinnis unnið rallý-
kross-keppnir og keppni í ís-
akstri auk þess sem hann er
margfaldur Íslandsmeistari í
ökuleikni.
Áður en Páll fékk nýju
bifreiðina ók hann á Subaru
og Suzuki Swift, kraftmiklum
bílum á þeirra tíma mæli-
kvarða. Nýja bifreiðin, sem
er sérsmíðuð fyrir þá félaga
er af gerðinni Mitsubishi
Lancer, er toppbíll á íslenskan
mælikvarða og einn sá öflug-
asti á landinu í dag. Hann er
með um 300 hestafla vél, sem
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Erum með til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Aðalfundur
Aðalfundur Styrktarfélags fatlaðra á
Vestfjörðurm verður haldinn þriðjudaginn
23. september á Hótel Ísafirði kl. 21:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning stjórnar.
Önnur mál.
Stjórnin.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI 1 • ÍSAFIRÐI • % 456 3940 & 456 3244 • o 456 4547
Til sölu
Nýr sumarbústaður með svefnlofti, 24m²,
er til sölu og sýnis að Seljslandsvegi 78.
Bústaðurinn selst til flutnings og án lóðar-
réttinda. Verð kr. 1.200.000,-
BOLUNGARVÍKURDEILD
Aðalfundur
Aðalfundur Bolungarvíkurdeildarinnar
verður haldinn mánudaginn 22. september
kl. 20:30 í Slysavarnarhúsinu við Hafnargötu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Afhending nýs sjúkrabíls.
Stjórnin.
Áskrifendur!
Vinsamlegast greiðið áskriftargjöldin sem fyrst
Til sölu eru fjögur BFGoodrich
jeppadekk. Stærð 32" X 11,50
R15LT. Aðeins hefur verið ekið á
þeim í einn vetur. Upplýsingar gefur
Sigurjón í síma 456 4277.
Lækkað verð! Til sölu er falleg 55m²
íbúð. Laus strax. Öll ný standsett,
þarf bara að flytja inn. Upplýsingar í
síma 456 3128.
Til sölu nýleg negld 33" Hankook
jeppadekk á sex gata breikkuðum
Whitespoke felgum. Upplýsingar í
síma 456 3217
Til sölu haglabyssur! Remington
pumpa 870 Expresso og Remington
Wingmaster 870 pumpa. Upplýs-
ingar í síma 456 7545, á kvöldin.
Til sölu MMC Lancer árgerð 1986,
ekinn 148 þús. km. Nýskoðaður,
dráttarkúla. Einnig mikið af vara-
hlutum í Subaru ´82. Upplýsingar í
síma 434 1166 eða 852 7544
Til sölu vetrardekk 175/70, 13", á
Subaru felgum - lítið notuð. Upplýs-
ingar í síma 456 3707
Sex manna fjölskylda óskar eftir
að taka á leigu 5-6 herbergja íbúð
eða einbýlishús í a.m.k. þrjú ár.
Upplýsingar í síma 456 5042, Valdís
og Stefán.
Til sölu Suzuki TS-70 bifhjól,
árgerð 1988. Kraftpúst, kraft-
blöndungur og kraftkveikja. Lítur
vel út. Upplýsingar í síma 456 7422
Til sölu sturtuklefi, sturtubotn
og blöndunartæki á 15 þúsund
krónur. Upplýsingar í síma 456 7481
Til sölu Toyota Cressida ́ 80, ekinn
270 þúsund km. Þarfnast smá
lagfæringar. Upplýsingar í síma 456
6184, eftir kl. 17. Gísli.
Til sölu Nissan Kingcab pickup,
árgerð 1992. Upplýsingar eru veittar
í síma 892 1435
Kennsla! Vantar einhvern góðan til
að kenna mér íslensku. Upplýsingar
í síma 456 5096, eftir kl. 20.
Til sölu fjórar felgur undir Skoda
Felecia með nagladekkjum. Upplýs-
ingar í síma 456 4283, Smári.
Til sölu hitatúpa með spíralkút.
Upplýsingar eru veittar í síma 456
4256, á kvöldin.
Til sölu eða leigu Hjallabyggð 9,
Suðureyri. Upplýsingar í síma 567
6217 eða 897 6183
Til sölu Toyota Touring ´90, með
sóllúgu, dráttarkrók og rafmagni í
rúðum. Tilboð óskast. Upplýsingar í
síma 456 7237
Til sölu fjögur vetrardekk, Han-
kook 198/75, 14" Upplýsingar í síma
456 3260, eftir kl. 19.
Til sölu eða leigu er Sætún 6 á
Suðreyri. Upplýsingar í síma 431
3248, eftir kl. 20.
Til sölu fjögur nagladekk, 175x13.
Verð kr. 12.000. Upplýsingar í síma
456 3884
Til sölu eða leigu er falleg 80m² 3ja
herbergja íbúð að Stórholti 11.
Verð. 5.900.000,- Mjög gott útsýni.
Íbúðin er laus. Upplýsingar í síma
456 4727.
Til sölu er einbýlishúsið að
Þuríðarbraut 8, Bolungarvík.
120m² + 30m² bílskúr. Staðsett á
góðum stað, stutt í sund og skóla.
Upplýsingar í síma 456 7445
Óska eftir húsgögnum og öllu í
búið. Helst gefins eða ódýrt. Upplýs-
ingar í síma 456 8333
Óska eftir ódýru fjórhjóli, t.d.
Suzuki LT-80. Upplýsingar í síma
456 2038, eftir kl. 20, Jakob.
Píanó óskast til kaups. Upplýs-
ingar í síma 456 7418, eftir kl. 19.
Bráðvantar rafmagnsofna, helst
gefins. Upplýsingar í síma 456 7471,
Sigríður eða Eggert.
Til sölu Toyota Touring ́ 91, ekinn
aðeins 25 þúsund km. Góður bíll.
Upplýsingar í síma 456 7160 eða
456 7270
Hæ fyrrverandi Bakkastarfs-
fólk! Hinn árlegi haustfagnaður
verður haldinn laugardagskvöldið
27. sept. Upplýsingar og miðasala
hjá Diddu í síma 456 5360 á kvöldin,
og hjá Ósk á morgnana í Bakka,
Hnífsdal. Mætum öll hress og hittum
gamla félaga.
Til leigu er 3ja herbergja íbúð á
Engjavegi. Allar nánari upplýsingar
veitir Jón Oddur í síma 456 5232.
Til sölu yfirbyggð Toyota Hilux
´84, með bilaða vél, annað kram
nokkuð gott og margt endurnýjað.
Meðfylgjandi 31" sumardekk og 33"
vetrardekk. Einnig getur selst með
Hilux ´85 með góðri lítið ekinni
díselvél, en lélegu boddíi. Upplýs-
ingar í síma 456 3450 eða hs. 456
6216, Sturla.
Slysavarnakonur! föndrið byrjar
á laugardaginn kl. 14. Nefndin.
Til sölu íbúðin að Skólastíg 21,
Bolungarvík. Íbúðin er nýstandsett.
Laus nú þegar. Upplýsingar í síma
456 7265
Til sölu raðhús í Bolungarvík.
Húsið er 230m² að stærð með
innbyggðum bílskúr og sólskála.
Skipti á Reykjavíkursvæðinu koma
til greina. Upplýsingar eru veittar í
síma 456 7523
Til leigu frá 1. okt., 3ja herbergja
íbúð í Stórholti. Upplýsingar í síma
456 5045, eftir kl. 17.
Til sölu er 222 BRNO með span-
gikk og góðum sjónauka, skipti
möguleg á hálfsjálvirkri haglabyssu.
Upplýsingar í síma 456 6258 eftir
kl. 23:00.
Til sölu Lancer 4X4 ́ 87. Skemmd-
ur eftir árekstur. Upplýsingar eru
veittar í síma 456 4095
Þeir sem eiga diska og/eða annað
sem þarf að ná í, vegna uppskeru-
hátíðarinnar í Grunnskólanum,
þá verður skrifstofa BÍ opin kl. 20-
21 þ. 17. sept. í Norðurtanganum.
Einnig verðum við með sölu á BÍ
göllum er komu 15. ágúst og voru
pantaðir. Unglingaráð BÍ.
Ungt par óskar eftir íbúð til leigu.
Upplýsingar í síma 456 8141
Guðrún, eða 456 6184 Gísli.
Til sölu mjög lítið notuð fjalla-
reiðhjól. Upplýsingar í síma 456
3915, eftir kl. 19, Ólafur.
Íbúð til sölu í Reykjavík! Mjög
góð 3ja herbergja íbúð, 80m² með
aukaherbergi í kjallara í nýviðgerðu
og máluðu húsi, þvottaherbergi og
búr inn af eldhúsi. Laus nú þegar.
Upplýsingar í síma 568 6205
Til leigu 2ja herbergja íbúð á
Eyrinni, frá 1. okt. n.k. Upplýs-
ingar í síma 456 4075
Til sölu er Charvel bassagítar og
Gibson Thunderbird bassagítar.
Upplýsingar í síma 456 7062 til kl.
22 á fimmtudag og kl. 18. á
sunnudag.
Til sölu hvít hillusamstæða með
glerskáp á kr. 15 þúsund. Einnig
kvenmannsreiðbuxur nr. 37. Upp-
lýsingar í síma 456 7467
Til sölu norðurhelmingur húss-
ins Fjarðarstræti 38. Þrjár hæðir
og kjallari á eignarlóð ( þrjár íbúðir)
Verðhugmynd 7-8 milljónir króna.
Upplýsingar í síma 456 3836 eða
456 3785
Til sölu hillusamstæða, tvær
einingar. Upplýsingar í síma 456
5423
Til sölu Honda Civic ´88. Á sama
stað óskast ódýr ísskápur og sófi.
Upplýsingar veitir Hjálmar í síma
456 6276
Til sölu heyrúllur. Upplýsingar í
síma 456 4201
Til sölu fjögurra hesta hesthús í
Bolungarvík. Ný uppgert. Upplýs-
ingar í síma 555 3527, á kvöldin og
um helgar eða 456 7153
Til sölu 120m² efri hæð að Híðar-
vegi 29. Upplýsingar í síma 456
3693
Erum með nýju línuna frá Aiwa, ótrúlegt verð!