Nýtt land-frjáls þjóð - 07.02.1974, Qupperneq 2
NÝTT LAND
Bótagreiðslur
Almannatrygginganna
í Reykjavík
Útborgun ellilífeyris í Reykjavík hefst að
þessu sinni föstudaginn 8. febrúar.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
IP Sérfræðingur
Staða sérfræðings í röntgengreiningu við Röntgendeild
Borgarspítalans er laus frá 1. apríl eða síðar eftir sam-
komulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavíkur.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavíkurborgar fyrir 7.
marz n.k.
Frekari uplýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavík, 4. febrúar 1974
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkur.
Húseign tíl sölu
á Akureyrí
Kauptilboð óskast í húseignina Eyrarlandsveg 16,
Akureyri, ásamt tilheyrandi leigulóð.
Húsið verður til sýnis þeim, er þess óska laugardag-
inn 9. febrúar kl. 1—6 e.h., og verða tilboðseyðublöð
afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl.
11.00 f.h. föstudaginn 15. febrúar 1974.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Stuðningur við norrænt
samstarf á vettvangi
æskulýðsmála
Síðari úthlutun fjárframlaga fyrir árið 1974 til samstarfs
Norðurlanda í æskulýðsmálum verður í júní n.k. Markmið
með fjárveitingum úr sjóðnum er að auka þekkingu og
skilning á menningar-, stjórnmála og þjóðfélagslegum mál-
efnum á Norðurlöndum og verða eftirfarandi verkefni
styrkt fyrst og fremst:
ráðstefnur, fundahöld, námskeið og búðastarfsemi, útgáfu-
starfsemi,
kannanir, sem þýðingu hafa fyrir nærrænt æskulýðs-
samstarf.
Styrkir verða einkum veittir æskulýðssamtökum, en aðeins
einu sinni til sama verkefnis og þurfa minnst 3 lönd að
vera þátttakendur að hverju verkefni.
Umsóknarfrestur um styrki þessa eru til 15. mars
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur
fást í Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6.
Menntamálaráðuneytið,
30. janúar 1974.
W ÚTBOÐ
Tilboð óskast um sölu á 5600—8500 tonnum af fljótandi
asfalti og/eða flutningi á asfaltinu fyrir Malb-kunarstöð
Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 6. mars n.k.
kl. 11.00 f.h
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Um lotningu
og
lotningur-
skort
fjármáluróðuneytið
hefur í dag gefið út nýja auglýsingu um toll-
verð notaðra, innfluttra bifreiða. Breytingar
frá fyrri reglum, samkvæmt auglýsingu þess-
ari, felast aðallega í breyttum ákvæðum um
aldursafslátt notaðra bifreiða, áður en tollar
og önnur gjöld eru álögð. Er þeim sem hyggja
á innflutning notaðra bifreiða bent á að kynna
sér hinar nýju reglur.
Ákvæði auglýsingar þessarar taka gildi hinn
1. mars n.k.
Um lotningu og lotningarskort ..
Laugardaginn 3. nóvember s.l.
flutti dagblaðið Þjóðviljinn grein,
„Af ótímabærum getnaði" (í
greinaflokki sínum „Vikuskamt-
ur“), sem varla fer hjá að ófáum
lesendum blaðsins hafi blöskrað.
Og þótt mér þyki það harðir
kostir, sé ég ekki annaö fært en
að nota mér frjálslyndi Nýs Iands
til að endurprenta mest af fyrri
hluta greinar þessarar — til að
vekja menn til hugsunar um, hvort
engin takmörk séu fyrir því hvað
„ábyrgu“ blaði þykir boðlegt að
flytja. Þjóðviljinn hefur nú orðið:
„Það fer víst ekki milli mála,
hverjar tvær konur hafa með kyn-
ferðisatfcrli sínu valdið Islending-
um hvað mestum heilabrotum, en
það eru þær María — stundum
nefnd mey — María þessi var
af ætt Davíðs og trúlofuð timbur-
mánninum Jósep, sem var frændi
hennar og giftist hcnni raunar
þótt hann ætti ckkert i barni þvi
sem madonnan bar undi bclti.
Það hefur stundum viljað brenna
við að konur væru tregar til að
feðra börn sín, þau scm ekki eru
getin í hjónabándi, en hjá Maríu
stóð ekki á svörum. Mikael erki-
engill hafði sem sagt komið til
hennar með skilaboð frá heilög-
um anda um að liann langaði til
að hitta hana og barna hana.
María sem var bara venjuleg kona,
skundaði þcgar á þennan óvcnju-
lega ástarfund og var þegá af-
meyjuð og börn uð.“
Svona skrifar Flosi Ólafsson um
þá, sem Sveinn „Framtíöarskáld“
orti eftirfarandi ljóð til, ekki
löngu áður en hann dó. (Sveinn
lifði seinna helming ævi sinnar í
Kaupmannahöfn og orti þá jöfn-
um höndum á dönsku sem ís-
lenzku. Lesendur afsaka vonandi,
að ég sé mér ekki fært að þýða
ljóðið, enda annar hver maður hér
læs á dönsku.)
Madonna — Madonna! Jeg knæler
og beder af hjertets kvide.
Madonna, hel mine vunder,
— du tröster den som má lide!
Madonna, hör mine bönner,
— jeg ráber af sjælens kvide!
Madonna, Madonna! Jeg ofrer
et dödsens fortvivlet hjerte.
Madonna, Madonna! Jeg bringer
dig troens flammende kjærte.
Madonna — Madonna, forsmá ej
mit dödsens fortvivlede hjerte.
Madonna — smærtens moder!
Mit hjerte er ensomt i döden.
Madonna, Mádonna, o hör mig
— skænk mig feden og döden!
Madonna, vær du min tröster!
Min sjæl er ensom i nöden!
Fjármálaráðunaytinu, í. febrúar 1974
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í gatna- og holræsagerð í Snæ-
landshverfi í Kópavogi. — Tilboðsgögn verða
afhent á skrifstofunni, Álfhólsvegi 5, Kópa-
vogi, gegn kr. 5.000,00 skilatryggingu, frá 6.
febrúar n.k.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 11.00,
18. febrúar 1974.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
Laus staða
Staða tilraunastjóra, sem jafnframt annist bú-
stjórn við fjárræktarbúið að Hesti í Borgar-
firði, er laus til umsóknar frá 1. júní n.k.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneytinu
fyrir Í5. mars n.Tc.
Landbúnaðarráðuneytið
Styrkir til háskólanáms
í Rúmeníu
Rúmensk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa íslensk-
um stúdentum til háskólanáms í Rúmeníu námsárið 1974—
75, en til greina kemur að styrkurinn verði framlengdur
til að gera styrkþega kleift að ljúka háskólaprófi í náms-
grein sinni.
Það er skilyrði, að styrkþegi stundi nám í rúmensku
fyrsta árið og standist próf að því loknu. Styrkfjárhæðin
er 1.660 Lei á mánuði og styrkþegi er undanþeginn greiðslu
kennslugjalda.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 4. mars n.k.
Umsókn fylgi stúdentsprófsskírteini á ensku, frönsku eða
þýsku, ásamt fæðingarvottorði og heilbrigðisvottorði á ein-
hverju framangreindra tungumála. — Sérstök umsóknar-
eyðblöö fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
31. janúar 1974.
Þessu líkt hafa tugmilljónir
manna, fyrr og síðar, í trúnni á-
varpað Maríu, móður Jesú. Finnur
ekki Flosi til þess, að hann hafi
famið helgispjöll gagnvart helgustu
tilfinningum óteljandi manna
tveggja árþúsunda — einnig manna
sem ekki ákalla Máríu? Væri úr
vegi, Flosi, að biðjast afsökunar
— í alvöru?
Lotning er moldin frjóá, sem
ein megnar að ala dýrmætasta og
viðkvæmasta gróður mannlegs lífs.
Lotning lyftir lífinu í æðra veldi.
Andstæða lotningar er viðhorf
„svínsins, sem fótum treður perl-
u.“ Án lotningar verður lífið, fyrr
en varir, að saurugu svaði. Lotn-
ing lýkur upp dyrum að helgi-
dómum — dregur frá fortjald að
sviði máttarverka og helgra ævin-
týra.
Björn O, Björnsson
TILKYNNING
Ahtygli innflytjenda skal hér með vakin á því,
að samkvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðu-
neytisins, dags. 31. desember 1973, sem birtist
í Stjómartíðindum og 8. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1974, fer 1. úthlutun gjaldeyris- og/eða
innflutningsleyfa árið 1974 fyrir þeim inn-
flutningskvótum, sem taldir eru í auglýsing-
unni, fram í febrúar 1974. Umsóknir um þá
úthlutun skulu hafa borist Landsbanka íslands
eða Utvegsbanka íslands fyrir 20. febrúar
1974.
LANDSBANKI ÍSLANDS
UTVEGSBANKI ÍSLANDS