Leiftur - 24.02.1934, Qupperneq 3
LBIFTUR
Laugardaginn 24. febrúar 1934.
F. U. J. í Hafnarfirði sex ára
12. febrúar 1928 — 12. febrúar 1934
ÁVARP!
Stjórn Félags ungra jafnaðarmannaíHafn-
arfirði hefir komið sér saman um f>að, að
minnast6ára afmælis félagsins, með því að
gefa út »Leiflur«. Okkur er að vísu ljóst,
að sú minning er varanlegust, sem félagið
getur skapað sér með ötulu starfi í págu
alpýðusamtakanna. Yið vitum, að unga al-
pýðukynslóðin í landinu mun bera fram-
tíðarbaráttuna til sigurs í stríði stéttanna
um yfirráðin á íslandi.
Pess vegna teljum við líka vel viðeigandi á
þessum tímamótum í sögu F. U. J. að bregða
leiftri um farinn veg og líta eftir pví sem
vel hefir verið um starf félagsins og eins
pess, sem betur hefði mátt fara, og læra
síðan af reynslunni.
Yið teljum svo ekki ástæðu til að hafa
pessi ávarpsorð fleiri. Væntum pess aðeins
að »Leiftur« verði velkominn gostur inn á
hverju alpýðuheimili í Hafnarfirði. Og við
erum vissir um að svo verður, vegna pess,
að sigrar alpýðustéttanna á komandi ár-
um verða fyrst og fremst unnir undir for-
ystu þeirra, sem nú eru að vaxa upp í
æskulýðssamtökum jafnaðarmanna.
Útgefandi.
Pað eru aðeins fáein ár síðan, að
nokkur áhugi vaknaði hjá ungum mönn-
um fyrir peirri staðreynd, að pví aðeins
yrðu peir hæfir sem baráttumenn jafnréttis-
hugsjónarinnar, að þeir tækju verulegan og
virkan þátt í félagsstarfsemi, par sem þeim
gæfist kostur á, að fræðast um stefnumál
jafnaðarstefnunnar.
Eldri kynslóðin hefir rutt brautina. Hlut-
verk uppvaxandi kynslóðar er að taka við
og halda baráttunni áfram.
Og til pess að vera hæf til slíkrar bar-
áttu, parf hún að vera vakandi, hugs-
andi og þrungin áhuga, sí og æ að fræð-
ast, og í fáum orðurn sagt: hin sókndjarfa
æska, sem kraftur og próttur stendur af.
Fyrir sjö árum stofnuðu ungir og áhuga-
samir menn fyrsta félag ungra jafnaðar-
manna hér á landi. Pað er Félag ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík. — Ári seinna,
eða 12. febrúar 1928 stofnuðu svo ungir
jafnaðarmenn hér í firðinum félag sitt, og
er pað pví fullra sex ára.
Pað fór að vísu hægt af stað í byrjun,
petta félag, en pað hygg ég, að allir hinir
eldri samherjar, sem litu á störf æskunnar
réttum augurn, hafi fagnað komu pess
í samtaka heildina — en andstæðingarnir
litu pað af eðlilegum ástæðum illu auga.