Leiftur - 24.02.1934, Side 16

Leiftur - 24.02.1934, Side 16
14 L E I F T U R * atvinnulaus. Valdhafarnir trúa því, að at- vinnuleysið verði ekki læknað. Alpýðuflokkurinn stefnir einn gegn at- vinnuleysinu, með réttum ráðum, vel hugs- uðum og framkvæmanlegum. Unga fólkið krefst framkvæmda þeirra. Og f»að fylgir þeim kröfum eftir, hvað sem það kostar. Það heimtar völdin í hendur Alþýðu- flokksins, af því að hann er hugrakkur flokkur, framkvæmdaflokkur, flokkur æsk- unnar. Örnfnn ungi. Félaga*annáll. Stjórn Sambands ungra jafnaðarmanna skipa nú: Forseti Pétur Halldórsson, skrif- stofumaður. Varaforseti Jón Magnússon, verzlunarmaður. Ritari Guðjón B. Baldvins- son Verkamaður. Féhirðir Einar Pálsson, verzlunarmaður. — Meðstjórnendur: Árni Ágústsson, verkamaður. Helgi Sigurðsson verkamaður og Emilía Pórðardóttir. Til minnis fyrir verkalýðinn: Hér á eftir eru skráð nokkur spakmæli eftir ýmsa fræga, erlenda jafnaðarmanna- leiðtoga, og eru þau þess verð, að verkalýðurinn festi þau sér í minni. HÖFUÐÓVINURINN. Núverandi þjóðskipulag liflr á þolinmæði fátæklinganna. Anatole France. Öreigarnir eru ekki kúgaðir af því, að kúgararnir fyrirlíti þá og vantreysti þeim, heldur af því, að þeir fyrirlita og van- treysta sjálfum sér. Bernhard Shaw. SÁLIN ÓG AUÐVALDIÐ. Meginbölvun fátæktarinnar er sú, að hún lamar viljaþrek öreigans, unz hann verður aðalvörður sinnar eigin örbirgðar. Bernhard Schaw. Verkamaður, sem vill styðja stétt sína til sigurs, verður að öðlast nýja skoðun, gerólíka skoðun burgeisanna. Hann verður að »endurfæðast« í þeim skilningi, að hann ávinni sér annan hugsunarhátt en yfirboð- arar hans hafa. W. W. Graik. HVER Á SÖKlNA? Ætlarðu að una því alla æfi, að letingj- ar eyði auði þínum og bófar dári dygðir þínar? Auður heimsins er eign þín. Jafn- vel hversdagsvaðallinn og hagfræðinga- skríllinn segir þér, að án vinnu verði eng- inn auður. Hver rænir þig honum þá og befir þig að ginningarfífli? Pér klæðsker- ar! Hver á sök á því, að allur þorri allra enskra barna gengur í tötrnm? Pér skó- smiðir! Hver á sök á því, að vændiskon- ur spóka sig á hælaháum skóm, en börn yðar ösla forina berfætt? Og þér veður- börnu húsfeður! Hver á sök á því, að börn hrynja niður úr hungri í hinu frjó- sama Englandi? Pað er tvímælalaust yðar eigin sök, nú, þegar þér hafið fengið þing- ræðisvaldið í yðar hendur. John Ruskin.

x

Leiftur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/1531

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.