Bæjarins besta - 08.07.1998, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 3
taferðin
leið, fyrir viðvaninga alla
vega, en alls kyns mýkingar-
efni og sögur ferðafélaganna
léttu sporin. Ég var þó stöðugt
að verða betri reiðmaður, að
minnsta kosti dásömuðu
ferðafélagarnir tilburðina!
Reiðmannslífið var heillandi!
Náttúran í Súgandafirði er
undurfögur, og fallegri af hest-
baki en á bak við rúður bílsins.
Eina hestafólkið á Suðureyri,
Bjarni og Bryndís, tók þar á
móti okkur af súgfirskum
höfðingsskap. Gistum við í
frábæru húsnæði verkalýðs-
félagsins á Suðureyri, Bjarna-
borg, fórum í sundlaugina og
átum veislumat sem konurnar
útbjuggu. Endað var á söng
við undirspil Sigmundar og
erindi Guðmundar frá Fjalli
um Sigurð skurð, sem ákærð-
ur var af Skúla sýslumanni
Thoroddsen fyrir að hafa
banað manni á Klofningsheið-
inni, en Sigurður var þó ekki
dæmdur sekur. En snemma
fóru (næstum) allir að sofa.
Endaði ofan á frúnni
Seint var vaknað – allir út-
hvíldir. Annar dagur ferðar var
hafinn. Nú var í hópinn mættur
Bjarni saltfiskútflytjandi
Benediktsson, ferskur, hress
og glaður. Nú skyldi áfram
riðið, út í Staðardal, fram
Vatnadal yfir Klofningsheiði.
Sagan um negrastrákana sem
týndu hver af öðrum tölunni,
varð mér ofarlega í huga þegar
í ljós kom að tvær konur í
hópnum gátu ekki tekið þátt í
reið dagsins, þær ætluðu að
aka. Við hjónin riðum af stað
– en hnakkur konunnar reynd-
ist vera of laust girtur, því hún
seig út á hlið og átti erfitt með
að stoppa.
Söguritari hefur horft á
marga vestrana þar sem hetjan
ríður einfaldlega upp að hesti
konunnar, grípur í tauminn og
stöðvar hestinn. En þetta
reyndist ekki einfalt, hestarnir
hlupu til hliðar og flæktust í
vírneti sem lá á götunni. Allt
varð vitlaust, hestarnir, konan
og ég. Við hjónin flugum af
baki og ég endaði ofan á
frúnni! Við vorum óslösuð,
en aðeins skelkuð. Nú var
erfitt að vera karlmaður, því
konan sagðist halda að úr því
að það væri þoka á Klofnings-
heiðinni, þá væri best að hún
færi með hinum konunum
AKANDI til Flateyrar. Hetjan
ákvað að ríða áfram. Við áðum
í fjárréttinni niður við sjó í
Staðardal. Sagðar fleiri sögur,
innbyrt mýkingarefni og
kveðjukossar.
Taglhnýtingur
Það var rétt, þokan lá yfir
heiðinni. Við riðum samt
ótrauð áfram. Hallinn jókst
og jókst. Við misstum sjónar
af þeim sem fremst voru,
urðum að fara af baki og
teyma. Nú kynntist söguritari
í fyrsta sinn því hvað er að
vera taglhnýtingur, í orðsins
fyrstu merkingu. Mikið er nú
samt dásamlegt að fá að hanga
í taglinu. En svo kom áfallið,
ég gat ekki meira, þrátt fyrir
taglhnýtinguna, rann til á
skaflinum undir kvið hestsins
og hélt að ég væri að fá
hjartakast. Sveinbjörn – vinur
minn – kom mér til bjargar og
sagði: „Á bak með þig Eiríkur,
ég teymi undir þér upp á
brúnina.“ Niðurlægður, en
ánægður, hlýddi ég möglunar-
laust, en muldraði að ég hefði
nefnilega meitt mig svo mikið
þegar að ég féll af baki, að ég
væri kvalinn í brjóstinu. Jón
Guðni, Sveinbjörn og Guð-
mundur formaður voru þarna
hrópandi, hlæjandi og hlaup-
andi upp og niður skaflinn, til
þess að passa hestana í rekstr-
inum. Mennirnir hljóta að hafa
mörg hjörtu hver.
Margt býr í þokunni. Hermt
var að Guðmundur frá Fjalli
hafi orðið vitni að því, að Valdi
Víkari hafi ætlað að hendast á
bak ofarlega í skaflinum. Guð-
mundur sem skreið upp síð-
asta hluta skaflsins eins og
selur, varð saltvondur og reif
upp kuta einn mikinn og otaði
honum að Valda og sagði: „Ef
þú vogar þér að fara á bak, þá
rek ég hann þennan á kaf í
afturendann á þér!“ Valdi
hljóp tvífættur upp skaflinn á
mettíma, með hestinn í taumi.
En Sveinbjörn lögfræðingur
bölvaði og bölvaði, því þetta
hefði getað orðið eitt dýrasta
og dýrmætasta mál þessarar
aldar. En hann mun áreiðan-
lega finna önnur mál, bless-
aður maðurinn, sér til fram-
færslu.
Yfir komumst við og riðum
niður í Klofningsdalinn, inn
Eyrarfjallið og lokaáfangi
dagsins var við hesthúsin og
landnámsbæinn á Flateyri.
Við skiptum okkur niður á
heimahús Flateyringanna í
ferðinni. Farið í sund og heita
pottinn, sagðar sögur og
sungið mikið og hátt. Ótrú-
legur maður hann Guðmundur
frá Hrauni – óstöðvandi í söng
og litríkum frásögum, ómet-
anlegur ferðafélagi, enda
frændi minn. Guðrún Bjarna-
dóttir frá Hrauni tók á móti
okkur eins og konungum.
Allir voru heillaðir af árangri
dagsins og fóru tiltölulega
snemma að sofa, eftir göngu-
ferð um þorpið og upp á nýju
snjóvarnarvirkin. Þetta var
magnaður félagsskapur. Ann-
ar dagur hestaferðarinnar var
liðinn.
Ekkert átti að geta orðið til
þess að raska ró ferðafélag-
anna þennan daginn, ekki
spillti að veðrið var dásamlegt
og hestarnir farnir að rekast
vel. Allir knapar heilir og nú
var tala þeirra orðin 18; Guð-
mundur Steinar Björgmunds-
son og Sigríður Magnúsdóttir,
bændur að Kirkjubóli í Val-
þjófsdal, voru komin til að
ríða með hópnum fyrir fjörð.
Við riðum með tveim stuttum
stoppum inn að bænum Hesti
undir fjallinu Hesti, innst í
firðinum. Áðum þar í fjárrétt-
inni og snæddum, sögðum
sögur, sungum og smurðum
okkur fyrir framhaldið.
Náttúran hljóp í Sigmund
Gerðust nú þeir hlutir sem
engan gat órað fyrir. Náttúran
hljóp svo heiftarlega í Sig-
mund B. Þorkelsson, að hann
skreið á hnjánum undir hest
sinn, í fjárréttinni að Hesti
undir fjallinu Hesti, spennti
greipar og ávarpaði ástmey
sína Sigríði Björgmundsdótt-
ur: „Viltu giftast mér?“ Sigga
tók heiftarlegan smók, hélt
honum lengi niðri og blés svo
frá sér. Eftir nokkra umhugsun
sagði hún: „Já, en með nokkr-
um skilyrðum þó!“ Ekki var
það óskiljanlegt fannst okkur
hinum, konan var búin að vera
ástmey hans í tuttugu ár og
eiga með honum eitt barn!
Skilyrðin voru reifuð og sam-
þykkt af Sigmundi. Allt var
klárt – hún vildi og hann vildi.
Aftur varð allt vitlaust, en
nú aðeins fólkið. Riðið var í
loftköstum út í Valþjófsdal og
hestunum komið fyrir í girð-
ingu á jörðinni Tungu, sem
Sigmundur á. Síðan var okkur
boðið upp á veitingar hjá
Steina og Siggu á bæ þeirra
Kirkjubóli í Valþjófsdal, eina
bænum í byggð í Dalnum.
Gengið var skriflega frá skil-
yrðum Siggu fyrir giftingunni
og pappírinn vottaður af öllum
viðstöddum. Hvað var nú að
ske? Hringir þá ekki Sig-
mundur í séra Gunnar Björns-
son og spyr hvort hann geti
gefið sig og Siggu saman í
Dalskirkjunni á laugardegin-
um kl. 14!
Fengu ekki að sofa saman
Heyrið mig nú. Allt var ger-
breytt. Nú var þessi Safari-
hestaferð orðin að brúðkaups-
ferð Simma og Siggu. Við urð-
um öll að taka á honum stóra
okkar, útvega kampavín, æfa
söng, kaupa hringa (Dýrfinna
hafði aldrei smíðað svo stóran
hring eins og Sigmundur
þurfti) og halda gæsa- og
steggjapartí! Allt gekk upp,
farið var í Vagninn (krána á
Flateyri) og gæsirnar og stegg-
irnir gerðu sitt besta til að
reyna á möguleg heitrof. Jafn-
vel var gengið svo langt að
væntanleg brúðhjón fengu
ekki að sofa saman um nótt-
ina. Nú var farið frekar seint
að sofa – en flestir sváfu þó
eitthvað. Þriðji ferðadagur var
á enda runninn.
Fjölskyldur Simma og
Siggu mættu á tilsettum tíma
og saman komu brúðhjónin,
ríðandi (á hestbaki), frá Tungu
að Dalskirkju. Söguritara
vöknaði um augun – þetta var
dásamlega fallegt par og
tignarlegt. Þau voru orðin gift
um hálftíma síðar eftir fallega
og látlausa athöfn í kirkjunni.
Skálað var í kampavíni og
hrópað ferfalt húrra fyrir hjón-
unum. Síðan var riðið af stað
í síðasta áfanga ferðarinnar,
fram Dalsdal, yfir Klúku og
niður að Hrauni. Nú var sögu-
ritari orðinn feikilega fær reið-
maður, gaf hestinum vel undir
kviðinn og keyrði hann á skeið
síðasta spölinn. Dásamleg
tilfinning.
Kvöldið er fagurt
Ólýsanlega skemmtileg,
jafnvel ótrúleg hestaferð var á
enda runnin. Rúna í Hrauni
og hinar konurnar sáu um að
metta ferðalangana. Fleiri
gestir bættust í hópinn og nú
varð mikið fjör. Sungið og
trallað, talað og etið – langt
fram á nótt. Brúðhjónin voru
rekin til rekkju, fljótlega upp
úr miðnættinu. Nokkrum mín-
útum síðar, svona álíka mörg-
um og reikna má með að líði
þegar slík nótt skal að velli
lögð, þá safnaðist allur hópur-
inn saman undir glugganum á
brúðarsvítunni og söng við
undirspil Guðríðar: „Kvöldið
er fagurt.“ Við létum okkur
svo hverfa, en mikið var gam-
an, reyndar ofsagaman.
Hestamenn eru án efa með
skemmtilegra fólki.
Við áttum erfitt með að fara
að sofa. Það er ekki skrýtið að
fólk sækist eftir gistingu í
Hrauni, fegurðin og veður-
blíðan gera þennan stað að
því sem hann er: Frábær.
Hestaleigan Hraun hafði
sýnt það og sannað að hún
var fullkomlega fær um að
skipuleggja eftirminnilega og
skemmtilega hestaferð.
Ferðafélagarnir voru, allir
með tölu, einstakir. Sunnu-
dagurinn fór í það að njóta
veðurblíðunnar og náttúrunn-
ar í Hrauni. Engar voru harð-
sperrurnar, engin þreytan, að-
eins góðar minningar. Nú er
búið að leggja á ráðin um
myndakvöld í vetur og að fara
aðra álíka ferð, síðar – en það
verður önnur saga.
-Eiríkur Finnur Greipsson.
Söguritari, Eiríkur Finnur
Greipsson, sparisjóðsstjóri á
Flateyri í fullum skrúða.
Sigríður Björgmundsdóttir og Sigmundur B. Þorkelsson
innsigla giftinguna með kossi í Dalskirkju.
Brúðhjónin fyrir framan Dalskirkju ásamt ættingjum og
vinum og sóknarprestinum, sr. Gunnari Björnssyni.
Hestar og menn hvíla sig og mannfólkið nýtur veitinga úti í guðsgrænni náttúrunni.