Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 9
Þrjú börn Ólafs Sveinssonar, þau Karl læknir, Guðríður viðskiptafræðingur og Ólöf Ásta
ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, með sýnishorn af börnum sínum á háhesti.
Góustaðir í Skutulsfirði
Góustaðaættin kemur saman
Góustaðaætt í Skut-
ulsfirði kemur jafnan
saman á fimm ára fresti,
á hálfum og heilum tug
ára, þannig að næsta
reglulegt mót verður
árið núll eins og Magni
Guðmundsson í Neta-
gerð Vestfjarða orðaði
það, en hann er einn af
sonum þeirra Góustaða-
bræðra. Þessi siður var
tekinn upp árið 1980. Að
þessu sinni var haldið
aukamót vegna þess að
einn Góustaðabræðra
gat ekki komið síðast,
en nú voru reyndar tveir
aðrir sem ekki gátu
komið.
Komið saman óform-
lega á föstudagskvöld,
drukkið súkkulaði og etið
kex. Á laugardag var
farið á Ingjaldssand og í
Skrúð en um kvöldið var
sameiginlegur máls-
verður og síðan
skemmtiatriði og smá-
vegis dansiball, sem
lauk á kristilegan hátt
upp úr miðnætti.
Sigurður Sveinsson á Far-
mallnum eins og honum ein-
um er lagið, en traktorinn
tekur jafnan virkan þátt í
ættarmótum Góustaðafólks
og rifjar ekki aðeins hey,
heldur einnig upp gamlar og
góðar minningar eins og aðr-
ir á þeim samkomum.
Frá vinstri: Gunnlaugur
Einarsson, Farmall, Magni
Guðmundsson og Halldór
Guðmundsson og allir með
hatt og sígar nema traktor-
inn.
Bræðurnir Gunnar, Ólafur
og Sigurður Sveinssynir frá
Góustöðum í Skutulsfirði.