Börn og menning - 01.04.2003, Page 23
Bómullarbarn fer í sveit
21
sem alltaf hefur ráð með að brjótast í
gegnum túngirðinguna til að komast (
grasið sem er grænna hinu megin hefur
greinilega kynnst ýmsu um ævina og líkist
mest veraldarvanri heimskonu.
Frábær leikur
Það er Vala Þórsdóttir sem bregður sér í
líki allra dýranna og fer á kostum. Reyndar
svo mjög að segja má að hún haldi uppi
sýningunni. Hún flengist úr einu gervinu
í annað með því einungis að skipta um
höfuðbúnað en þessi aðferð virkar vel í
öllum sínum einfaldleika. Sama má segja
um leikmyndina en þungamiðja hennar er
hlið sem opnast og lokast eftir hentugleikum
og er nýtt til ýmissa hluta. Jón Páll Eyjólfsson
í hlutverki Nonna og Halla Margrét
Jóhannesdóttir í hlutverkum Silju heimasætu
og húsfreyjunnar stóðu sig líka með prýði.
Ólafur Haukur hefur skrifað mörg leikrit en
þetta er fyrsta leikrit hans sem sérátaklega
er ætlað börnum. Ekki fer mikið fyrir
söguþræði í Gaggalagú heldur er brugðið
upp svipmyndum af lífinu í sveitinni sem
sýna hana í mjög einfölduðu og einhæfu
Ijósi. Meginboðskapur verksins um að
náttúran sé síkvik og lifandi og að hana beri
að umgangast með varfærni og virðingu er
hins vegar mjög jákvæður og um leið helsti
kostur þess.
I Gaggalagú er gamansemin ríkjandi og
lýkur sýningunni með því að leikendur syngja
bráðskemmtilegt og grípandi lag eftir Ólaf
Hauk. Á leiðinni út heyrðust margir krakkar
raula með sjálfum sér Gaggalagú ...
Guðlaug Richter, sem var send í sveit í
æsku, Sólveig Ebba Ólafsdóttir, uppalin
í sveit og Ylfa Rún Sigurðardóttir, 10 ára
Reykjavíkurmær, fóru saman á Gaggalagú
og er pistillinn samsuða af hugleiðingum
þeirra eftir sýninguna.
Ljóða- og smásagna- Ljóðin sem hlutu fyrstu verðlaun: Sólin
Bátur siglir ( sólinni eins og
samkeppni Æskunnar blátt glerbrot. Maður gengur i sólinni eins og
og RÚV engill sem lýsir upp heiminn. Sólin skín á mig eins og ég sé drottning.
Þann 10. mars stðastliðinn veitti forseti íslands, Ólafur Ragnar Sólin skín á húsið mitt eins og
Grímsson, verðlaun í Ijóða- og smásagnasamkeppni Æskunnar og Ríkisútvarpsins og fór verðlaunaafhendingin fram á það sé höll.
Bessastöðum. Vorið
Samkeppnin var haldin fyrir börn á aldrinum 10-13 ára og Þegar vorið kemur
var mjög góð þátttaka því alls barst efni frá rúmlega 1200 er allt gott
börnum. eins og
Fyrstu verðlaun í keppnínni hlaut Hólmfríður Hannesdóttir fyrir heimurinn fæðist aftur.
tvö Ijóð; Sólin og Vorið. Eins og farfugl sem
Önnur verðlaun hrepptu þrjár stúlkur, þær Áslaug Sif kemur aftur.
Guðjónsdóttir, Jóhanna Andrésdóttir og Snærós Sindradóttir. Hann heitir Vor.
Auk þess fengu tíu börn aukaverðlaun. ( dómnefndinni Vorið fer á sumrin
sátu Gunnar Stefánsson útvarpsmaður, sem var formaður því þá er of heitt.
dómnefndar, Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður og Helgi það kemur aftur þegar
Árnason skólastjóri. það vill það. Og rekur burt veturinn eins og tré sem verður notað í eldivið. Farfuglinn Vor er eins og sól sem gleður alla. Eins og farfugl sem kemur of snemma. Allt þetta er vorið góða.