Börn og menning - 01.04.2003, Side 29
Hvernig öðruvisi?
27
Elísabet Karen inn og þær kynnast. Elísabet
segir Karen sögu sína, hún er 78 ára
gyðingur sem kom til íslands ásamt móður
sinni eftir stríðið. Faðir hennar, tvö yngri
systkini og unnusti dóu í striðinu. Þrátt fyrir
einsemd og erfiða lífsreynslu er Elísabet
æðrulaus og þakklát. Hún er þakklát fyrir
lífið og kann að meta að búa á íslandi þar
sem ekki ríkir stríð. Að sama skapi harmar
hún stríð ísraelsmanna og Palestínumanna
og tekur málstað Palestínumanna: „Nú
stríðir mitt fólk við fólkið í Palestínu og ég
er ekki hreykin af því. Ég hefði haldið að þeir
gyðingar sem lifðu stríðið af þekktu öðrum
betur raunir og þjáningar."(54)
Elísabet miðlar þeirri visku til Karenar að ekki
sé ráðlegt að breyta öðru fólki. Þegar Karen
finnur barn úti í snjónum sem borið hafði
verið út leitar hún til Elísabetar sem í stað
þess að kalla til yfirvöld bíður átekta, grunar
að einhver eigi í „skelfilegum vanda" (112).
Á sama hátt bregst Ragnhildur skólastjóri við
sprengingum þriggja drengja í skólanum:
„Hún bað okkur öll að vera góð hvert
við annað og skilja erfiðleika hvers annars
og allt svoleiðis, og mér fannst það nú
frekar skrítið."(47) Einn sprengjuvarganna
er bróðir Baddiar bestu vinkonu Karenar.
Faðir þeirra Baddíar er samkvæmt lýsingum
drykkjumaður og heimilisaðstæður erfiðar
þannig að smám saman áttar Karen sig á
líðan þeirra og skynjar hversu heppin hún
er. Eftir því sem á líður söguna lætur flugan
æ minna á sér kræla og þegar Karen ergir
sig yfir einhverju, t.d. fjarveru foreldranna,
sér hún að sér: „Svo byrjaði ég aft'ur að
skammast mín. Ég mundi hvað Elísabet
hafði sagt. Auðvitað voru þetta engin
stórvandræði. Og unnu mamma og pabbi
ekki einmitt svona mikið til þess að okkur
krökkunum gæti liðið vel?" (68)
Allir eru öðruvísi
Sagan heitir Öðruvísi dagar. Karen finnst hún
vera öðruvísi en hinir í fjölskyldunni en kemst
að því að enginn er eins og maður heldur,
allir eru öðruvísi. Elísabet er útlendingur og
öðruvísi bæði af þeim sökum og vegna þess
hve húsið hennar er gamaldags og hlýlegt.
Matta eignast kærasta í sögulok sem heitir
Gummi og er öðruvísi þar sem hann er með
dökkt litarhaft, ættleiddur frá Sri Lanka.
Elísabet og Gummi eru þó ósköp „venjuleg"
að öðru leyti. Sagan tekur því markvisst
á fordómum og hvetur til umræðna og
fræðslu um stríð fyrr og nú.
Atburðarás sögunnar er spennandi og allt
fer vel að lokum. Guðrún á einstaklega gott
með að lýsa hugarheimi barna, ímyndunarafli
og einlægum tilfinningum. Karen fyllist gleði
af væntumþykju og hrifningu á því sem
henni finnst fallegt. Eins verður hún mjög
hrædd og ímyndar sér allt hið versta vegna
leyndarmálsins sem hún deilir með Elísabetu.
Þegar lögreglan kermur í skólann heldur hún
fyrst að þeir séu komnir til að taka sig fasta.
Þegar hún kemst að því að erindi þeirra er
umferðarfræðsla er léttirinn „ólýsanlegur":
„Það er gjörsamlega ólýsanlegt hvað mér
léttí. Það var eíns og ég hefði verið tekin
beinfrosin upp úr frystikistu og færð inn
í hlýjuna. Og ég fann að ég þiðnaði með
ofurhraða."(bls. 82)
Karen er að sjálfsögðu haldin óstöðvandi
löngun til að kjafta frá en stenst freistinguna.
Hún þroskast við raunina og kemur sjálfri sér
og öðrum á óvart. Ævintýri Karenar verða til
þess að foreldrar hennar hægja á sér, dvelja
meira heima og í sögulok borðar fjölskyldan
saman á hverju kvöldi. Elísabet og Karen eru
vinkonur en auk þess hefur Elísabet tekið
að sér stúlku með barn og kynnst fjölskyldu
Karenar þannig að líf hennar hefur tekið
stakkaskiptum. Kuldaleg stofan á heimili
Karenar hefur breyst í hlýlegan samastað
fjölskyldunnar og í stað „pissugulra"
felligluggatjalda blasir fallegt útsýnið við,
vogurinn, fjöllin og himinninn. Umbreytingin
er táknræn, fjölskyldan sér nú hvað skiptir
mestu máli.
Öðruvísi dagar er skemmtileg bók sem
miðlar kærleiks- og friðarboðskap sem ekki
ervanþörf á. Myndirðnnu Cynthia Leplareru
fallegar og miðla vel stemmningu sögunnar.
Og ekki má gleyma vísum Marteins bróður
Karenar sem lífga upp á söguna og hittu svo
sannarlega í mark hjá 8 ára dóttur minni,
sérstaklega þessi:
Bera borðar ber
eins og vera ber
en er ekki ber.
Ber eru ber.
En Bera er í fötum
ber ber heim í fötum
eins og Beru ber. (14)
Höfundur er framhaldsskólakennari