Börn og menning - 01.04.2003, Side 33
Milljón holur
31
tilbreytingarsnauða veruna við Grænavatn.
Stanley, sem fær viðurnefnið Hellisbúinn,
sannfærist hins vegar fljótlega um að annað
liggi að baki mokstrinum. Hann þykist viss
um að í raun og veru sé verið að leita að
einhverju í vatnsbotninum - spurningin er að
hverju? Stanley finnur einn daginn silfurhlut
með áletrun þegar hann er að grafa holu
og þá færist líf og fjör í búðarstjórann sem
hann sér í fyrsta skipti koma út úr bústað
sínum. Búðarstjórinn reynist vera eina
konan á svæðinu. Hún geymir leyndarmál
staðarins og hún ein veit eftir hverju er verið
að grafa.
Starfsmennirnir í Grænavatnsbúðunum
virðast fæstir hafa raunverulegan áhuga
á velferð drengjanna en eru þeim mun
fúsari að beita þá tilgangslausu harðræði
og valdníðslu. Þar fer búðarstjórinn fremst
í flokki en sé hún ónéðuð að óþörfu beitir
hún eitruðum aðferðum. Stanley verður
eitt sinn vitni að því er hún lítillækkar einn
umsjónarmanninn og hann hefnir sín á
Stanley með því að takmarka við hann
vatnsskammtinn sem var naumur fyrir.
Grænavatnsbúðirnar eru á ógirtu svæði
því þaðan hefur enginn reynt að strjúka
enda næsta vatnsból í margra daga
göngufjarlægð og piltarnir vita að þeirra biði
ekkert annað en verða skriðdýrafóður innan
þriggja daga.
En svo gerist það eínn daginn að Zero,
munaðarlaus og einrænn strákur strýkur, og
öllum virðist standa á sama. Búðarstjórinn
gefur fyrirskipun um að pappírum um hann
skuli eytt enda komi enginn til með að spyrja
um hann. En Stanley stendur ekki á sama
því með þeim Zero hefur myndast sérstakt
samband sem byggist á vinnuskiptum.
Stanley kennir Zero að lesa og skrífa en Zero
hjálpar Stanley að moka holur í staðinn. Á
þriðja degi frá stroki Zero ákveður Stanley
að bjarga honum og rænir vatnsbílnum. En
hann kann ekki að keyra og ekur rakleiðis
ofan í næstu holu. Þá tekur hann é rás út
í auðnina með tóman vatnsbrúsa. Hann
finnur brátt Zero nær dauða en Iffi en hvað
geta þeir tekið til bragðs? Frekar vilja þeir
deyja en fara aftur í búðirnar og sannarlega
virðist ekkert geta komið í veg fyrir að þeir
farist úr vatnsskorti.
Fortíðin
En það hefur ekki alltaf ríkt þurrkur við
Grænavatn því fyrir margt löngu var þar stórt
stöðuvatn og gróður allt í kring. (búarnir lifðu
í sátt og samlyndi og þar bjó kennslukonan
Kata sem ekki einungis kenndi börnunum
heldur var einnig með fullorðinskennslu á
kvöldin. Ríkasti en jafnframt heimskasti karl
bæjarins bað kennslukonuna að giftast sér en
hún hafnaði honum. Síðar varð hún ástfángin
af Lauka-Sam, blökkumanní sem seldí lauka
sem taldir voru hafa lækningamátt, og
sást til þeirra kyssast. Á þessum tíma ríkti
kynþáttaaðskilnaðarstefna í Bandaríkjunum
og bæjarbúar drápu blökkumanninn, í nafni
Guðs, en Kötu tókst að sleppa. Eftir þetta
voðaverk féll ekki deigur dropi af himnum,
þorpið lagðist í auðn og ríki karlinn varð
fátækur. Kata gerðist hins vegar hættulegur
útlagi, rændi fólk og drap það stundum.
Langafi Stanleys hafði einmítt orðið á vegi
Kötu og hún rænt eigum hans en hann
komst lífs af.
Forlög og örlög fléttuð inn í
nútímann
Bókin byrjar raunsæislega en forlög, örlög og
álög spila stóra rullu í verkinu og flétta saman
nútíð og fortíð. Að kunna skil á fortíðinni er
forsenda þess að lifa af í nútíðinni. Nafnið
Stanley Yelnats má lesa afturábak og áfram
og eins fer sagan fram og aftur í tíma. Það
verður Stanley til lífs að hann þekkir sögu
forfeðra sinna og uppgötvar að hann er
á slóðum langafa síns. Það verður til þess
að hann fínnur ásamt Zero leið til að lifa
af en spurning er hvort þeir komist aftur
til byggða? Saman takast drengirnir tveir á
við hið ómögulega og tengjast órjúfanlegum
böndum enda liggja rætur þeirra saman í
fortíðinni.
Zero reynist í raun sá sem stal
íþróttaskónum en lét þá á bílþak þaðan
sem þeir duttu í fangið á Stanley. Zero var
hins vegar handtekinn fyrir að stela nýju
pari af íþróttaskóm og hafnaði þess vegna
í Grænavatnsbúðunum. Örlögín spunnu
vef sinn þannig að þeir hittast og saman
finna þeir leið til að komast af og afhjúpa
leyndarmál Grænavatns. En þar með er
ekki öll sagan sögð: Með því að bjarga lífi
Zero tekst Stanley einnig að aflétta bölvun
stgaunakerlingarinnar þannig að lánið fer nú
að snúast fjölskyldu hans í hag.
Spenna og skemmtun
Bókin er mjög spennandi og skemmtileg
aflestrar. Við fylgjumst með Stanley,
þybbnum, vansælum og óheppnum dreng
sem snýr eigin ógæfu í gæfu fyrir sig og
aðra. Hann tekst á við nýtt umhverfi og
umbreytir því svo að skyndilega fer að
rigna við Grænavatn! Á köflum er þó
túlkað fullmikið fyrir lesendur samanber
þegar lesandi er spurður beint „Nú er það
þitt að svara: Hverjum refsaði Guð?" (bls.
110) Náttúran hefur veríð notuð til að sýna
svarið, það hafði ekki rignt á Grænavatni
eftir morðið á Lauka-Sam og því óþarfi að
spyrja.
Örfáar konur koma við sögu. Búðarstjórinn
er þeirra fyrirferðarmest, illskeytt kvendi sem
hefur allt annað ( huga en velferð og þroska
drengjanna sem þangað koma í betrunarvist.
Forfeður hennar koma einnig við sögu og
skópu örlög Grænavatns. Fortíðinni tilheyra
sígaunakonan sem lagði álög á langalangafa
Stanleys og Kossa-Kata Barlow, útlaginn
sem rændi langafa hans. Mystískar konur
sem réðu örlögum margra. Lögfræðingur
föður Stanleys er þó nútímakona sem er
tákn réttlætis, mannúðlegra gilda og reynist
raunverulegur bjargvættur.
Textinn er þýður aflestrar, náttúra og
önnur tákn sem notuð eru skiljast vel.
Þýðendur eru Sigfríður Björnsdóttir og
Ragnheiður Erla Rósarsdóttir en óvenjulegt
er að þýðendur vinni slíkt verk (samvinnu.
Ekki var gerður samanburður við frumtexta.
Bókin er skemmtileg og kemur oft á
óvart. Ljúfur húmor fléttast áreynslulaust
inn í frásögnina. Milljón holur er holl og góð
lesning fyrir jafnt unga sem eldri.
Höfundur er með B.A. í almennri
bókmenntafræði