Börn og menning - 01.04.2003, Side 40

Börn og menning - 01.04.2003, Side 40
38 Börn og menning Þegar mamma kemur heim... (Nár mor kommer hjem...) Danmörk, 1998 Leikarar: Kasper Emanuel Stæger, Clara Johanne Simonsen, Pernille Kaae Hoier, Ann Eleonora Jorgensen, Lars Kaalund, Birthe Neumann, Bjarne Henriksen. Leikstjóri: Lone Scherfig Handrit: Lone Scherfig og Jorgen Kastrup, byggt á skáldsögu eftir Mörthu Christensen. Kvikmyndataka: Dirk Bruel Tónlist: Kasper Winding Söguhetjur myndarinnar Þegar mamma kemur heim... eru Kasper 11 ára, Sara 8 ára og Julie 5 ára. Linda, mamma barnanna, er hreint engin fyrirmyndarmóðir. Einn daginn kemur lögreglan og handtekur hana fyrir búðarþjófnað. Einhver gæti haldið að börnin yrðu leið og hrædd að vera ein heima og þurfa að sjá um sig sjálf. En það er nú öðru nær. Systkinin sjá fyrir sér fjörugt Iff þar sem þau ráði sjálf hvenær þau fara að sofa og hvað þau hafi í matinn. Draumur um ruslfæði og nammi á hverjum degi lætur á sér kræla. Frumburðurinn Kasper tekur að sér að vera höfuð fjölskyldunnar og „sjá fyrir" þeim. I hvert sinn sem fulltrúi barnaverndarnefndar bankar uppá tekst krökkunum með ótrúlegri kænsku að telja honum trú um að þau séu í umsjá fullorðinna. Hann fer þó með tímanum að gruna að ekki sé allt með felldu. Það verður líka sífellt erfiðara fyrir Kasper að útvega mat fyrir þau og hungrið sverfur að. Sjálfsagt hafa flestir krakkar velt því fyrir sér hvað það væri þægilegt að lifa lífinu ef fullorðnir væru ekki alltaf að þvælast fyrir með sín leiðinlegu boð og bönn. Þegar mamma kemur heim... sýnir að það getur verið heilmikið fjör en hefur sína galla líka. Myndin fjallar á Ijúfan og húmorískan hátt um sjálfsbjargarviðleitni, ábyrgð og samheldni án þess að falla í þá gryfju að predika. Hún er vel leikin og faglega unnin að öllu leyti, enda hreppti hún fjölda verðlauna á sínum tíma og var vel tekið jafnt í heimalandinu sem erlendis. Þegar mamma kemur heim... er önnur bíómynd danska leikstjórans Lone Sherfig í fullri lengd, en margir muna eflaust eftir mynd hennar ítölsku fyrir byrjendur frá árinu 2000. Hún varð mjög vinsæl hér á landi og hreppti meðal annars Silfurbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Lone Sherfig er fædd árið 2. maí árið 1959 í Kaupmannahöfn. Hún fór í kvikmyndanám við dönsku kvikmyndaakademíuna og útskrifaðist þaðan árið 1984. Síðan hefur hún gertfjórar kvikmyndir í fullri lengd og unnið við fjölda sjónvarpsmynda og framhaldsþátta. Verk hennar einkennast af sterkri persónusköpun og leiftrandi kímni. Þegar mamma kemur heim... er byggð á skáldsögu eftir skáldkonuna Mörthu Christensen en hún er ein af ástsælustu skáldum Dana. Önnur bók sem hún skrifaði endaði líka á hvíta tjaldinu í frábærri mynd sem heitir Dansað við Regitze.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.