Börn og menning - 01.04.2003, Blaðsíða 37
fréttir af landsbyggðinni
35
stjórni umræðunum til að byrja með og finni
til upplýsingar um höfundana og gagnrýnina,
en síðar taki krakkarnir að sér stjórnina, til
skiptis undir handleiðslu umsjónarmanns.
Þetta framtak hefur mælst vel fyrir og verður
gaman að sjá hvernig þetta þróast á næstu
vikum og mánuðum.
Ýmislegt fleira er í boði fyrir börn og
unglinga á Amtsbókasafninu og má sem
dæmi nefna að Norrænu bókasafnavikunni,
Alþjóða bangsadeginum og degi bókarinnar
eru gerð sérstök skil ár hvert með fjölbreyttri
dagskrá.
Greinarhöfundur er umsjónarmaður barna-
og unglingastarfs Amtsbókasafnsins á
Akureyri.
Myndin er tekin fyrir utan Hús skáldsins
Sigurhæðir sumarið 2001. Með krökkunum
á myndinni eru Margrét Björgvinsdóttir og
Erlingur Sigurðarson
Barnabókaverðlaun fræðsluráðs
Þann 22. apríl sl. veittu fræðsluyfirvöld í
Reykjavík árleg barnabókaverðlaun sín í
Höfða. Verðlaunin eru veitt annars vegar
fyrir frumsamið verk og hins vegar fyrir
þýðingu. Tilgangur verðlaunanna er að
örva metnaðarfullar ritsmíðar og þýðingar
fyrir börn og vekja athygli á því sem vel
er gert á þessum vettvangi í íslenskri
bókaútgáfu. Verðlaunin hlutu að þessu
sinni Kristín Steinsdóttir fyrir bókina Engill
I vesturbænum sem gefin er út af Vöku-
Helgafelli og myndskreytt af Höllu Sólveigu
Þorgeirsdóttur en Sigrún Sigvaldadóttir sá
um grafíska hönnun. Sigfríður Björnsdóttir
og Ragnheiður Erla Rósarsdóttir hlutu
verðlaun fyrir þýðingu á bókinni Milljón
hotur eftir Louis Sachar sem gefin er út hjá
Máli og menningu.
í dómnefnd sátu Katrín Jakobsdóttir
formaður, Hanna Birna Kristjánsdóttir og
Eiríkur Brynjólfsson.
Við óskum Kristínu, Sigfríði, Ragnheiði Erlu
og útgefendum innilega til hamingju.
Dimmalimm
Dimmalimm verðlaunin eru viðurkenning
fyrir myndskreytingar í barnabókum en til
þeirra var stofnað af menningarmiðstöðinni
Gerðubergi, Félagi íslenskra teiknara,
Myndstefi, Félagi íslenskra bókaútgefenda
og menntamálaráðuneyti. Um vegleg
peningaverðlaun er að ræða en þau voru
afhent í fyrsta skipti um miðjan desennber sl.
Fyrst til að hljóta verðlaunin var Halla Sólveig
Þorgeirsdóttir fyrir myndlýsingar í bók
Kristínar Steinsdóttur, Engill í vesturbænum,
útgefandi Vaka-Helgafell.
I niðurstöðu dómnefndar segir m.a.:
„Dómnefndin hreifst af ríkulegu ímynd-
unarafli Höllu Sólveigar og fjölbreyttum
vinnubrögðum, þar sem koma við sögu hrein
og klár teikning, málaralist, Ijósmyndun,
klippimyndatækni, skrautskrift og leturgerð.
Allar þessar aðferðir notar Halla Sólveig til
að auka nýjum víddum við þá sögu sem
Kristín Steinsdóttir hefur ritað, gera hugsanir
sýnilegar, tilfinningar Ijóslifandi og hið
ósegjanlega skiljanlegt. Að auki hefur hún til
að bera óborganlega kímnigáfu."
Halla Sólveig Þorgeirsdóttír fæddist 1970.
Hún stundaði nám í MHÍ, Grafíkdeild 1990-
1992 og lauk BFA-prófi í myndskreytingum
árið 1994 frá Hartford Art School í
Bandaríkjunum. Halla Sólveig starfar
sjálfstætt sem teiknari og hefur myndskreytt
fyrir ýmsar auglýsingastofur og bókaútgáfur,
þar á meðal barnabækur. Árið 2000 koma
út eftir hana ásamt Sindra Freyssyni bókin
Hundaeyjan sem vakti athygli margra fyrir
sérstæð efnistök og myndlýsingar.