Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 9

Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 9
Viðtal við Juttu Bauer 9 hann: „Nei, Marcus, það get ég ekki gert fyrir þig!" En nú erum við samt að ganga frá bókinni og þeir eru með þetta til skoðunar. Ég breytti dýrinu með því að taka af því eyrun og bæta við svolitlum rauðum lit. Ég er mjög ánægð með niðurstöðuna sjálf en ég er ekki viss um að Svíarnir verði sáttir við hana. Það væri áhugavert að vita hvað vísan hefur dreifst víða og hvernig hún hefur þróast milli landa. í vísunni eins og hún er venjulega sungin á íslensku er það jólasveinn sem býr í kofanum og það er spurning hvernig hefði mátt útfæra það myndrænt; jólasveinn í rauðum búningi eða einn af gömlu íslensku jólasveinunum? Vinur minn I Barcelona skrifaði ritdóm í tímarit um bókina en vissi ekki að hún v*ri byggð á vísunni enda hafði enginn sagt honum það! Ég benti honum svo á Það þegar við hittumst og hann var alveg gáttaður: „Þetta hefðum við þurft að vita! Á Spáni kunna öll börn þessa vísu!" Einhvern Veginn hafði þetta ekki komist til skila og Þýðandi bókarinnar áttaði sig ekki á því. Én án þessarar vísunar gengur sagan ekki almennilega upp. I tengslum við barnabókahátíð í Þýskalandi var leikkona fengin til að leika söguna og bað var byggt hús úr pappa úti í garði alveg e'ns og það sem er í bókinni. Þetta var alveg beillandi. Þarna voru um hundrað börn með foreldrum sínum; allir sátu í grasinu, leikkonan sagði söguna og söng lagið og bömin sungu með. Svo fékk hún börnin til að leika dýrin og þau fóru öll inn í húsið og dáðust að því, bönkuðu á dyrnar og tóku þátt í þessu af lífi og sál. Þetta var dásamleg blanda af frásögn og sönglagi og myndefni, en líka áþreifanlegum hlutum eins og húsi og mat og hlutum og hreyfingu. Mjög einfalt en alveg stórfenglegt fyrir ung börn vegna þess að þau skilja að bókinni er ætlað að sýna okkur veruleikann, og það er mjög mikilvægur áfangi á þeirri leið sem lestur er og það að njóta góðra bóka. Það hlýtur að vera athyglisvert að sjá hvernig aðrir túlka verkin þín og búa til eitthvað nýtt upp úr þeim. Þú hefur komið verkunum í heiminn en svo taka aðrir við og nýta þau á sinn hátt. Já, þau taka breytingum og öðlast sitt eigið líf; það er áhugavert. (fyrsta skipti sem til stóð að sviðsetja Litadrottninguna (á þýsku Die Königin der Farben) kom leikhússtjórinn til mín til að biðja um leyfi. Mér stóð hins vegar ekki á sama um að einhverjir aðrir færu að krukka í söguna mína—gera úr henni eitthvert „kitsch" til dæmis—svo að ég bannaði honum að víkja við nokkru orði í textanum. Hann fór og hugsaði með sér: „Konan er vitlaus; hvernig á það að ganga?" Þetta var óþolandi, fannst honum, og hann er enn að segja þessa sögu: hvað ég var óþolandi í upphafi! En þetta varð til þess að hann notaði látbragðsleik mikið í sýningunni vegna þess að hann mátti ekki nota mörg orð. Núna hefur sýningin hins vegar verið sett upp víða um heim og hann er mjög ánægður með niðurstöðuna. Hann hefur fengið alls konar verðlaun fyrir sýninguna! Er það ekki einmitt oft það þannig að þegar mönnum eru settar takmarkanir kemst sköpunargleðin á flug? Ég var svolítið að hugsa um það í dag undir fyrirlestrunum á Mýrarhátíðinni hvers vegna sú hefð að segja sögur væri svona sterk á íslandi. ímyndunaraflið er mjög virkt— sögurnar, bókmenntirnar—og ég held að þetta tengist kannski því sem ég finn sjálf fyrir hér: allt er svo tært og svo skírt utandyra. Jafnvel húsin eru byggð í hagnýtum og látlausum stíl.. Ég eyði miklum tíma í Mexíkó og öðrum spænskumælandi löndum. Markaðirnir þar eru fullir af munaðarfullum hlutum sem metta hugann. Hér er þetta öðruvísi og þess vegna er mikið rými hér fyrir ímyndunaraflið. Einn fyrirlesarinn talaði um það áðan að hún hefði ekki kunnað nöfnin á ýmsum ávöxtum þegar hún var lítil og að þá hefði hún getað velt fyrir sér hvaða nöfn þeir gætu borið. Við þessar aðstæður hefur maður rými til að hugsa um hlutina; það er mjög áhugavert finnst mér. Þetta er Ifka ástæðan fyrir því að ég einfalda myndirnar mínar svona mikið: þær eru dálítið eins og landslagið á (slandi! Bara ein vera, kannski skuggi eða kofi einn. Búið! Þetta er líka það sem ég kenni nemendunum mínum: „Einfalda, einfalda, einfalda! Ef þú þarft ekki á því að halda skaltu henda því út!" Ég geri þetta til þess að gefa ímyndunaraflinu rými. Ef ég teikna allt inn- ský, fjöldann allan af trjám-og fylli myndina upp, þá er ekkert rými eftir.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.