Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 12

Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 12
12 Börn og menning „svakalega flott og kúl bekkpressa" (125) sem pabbi hafði vitanlega gefið honum til að stæla sig og styrkja. / Dagbók Kidda klaufa: Ekki í herinni verður pabbi mjög upptekinn af hreyfingu en Kiddi útskýrir þennan skyndilega áhuga svona: Yfirmaður hans pabba heitir Valdimar en svo skemmtilega vill til að hann á þrjá duglega stráka, sem allir eru klikkaðir í íþróttum. Pabbi sér þá æfa úti á lóð í hvert skipti sem hann keyrir í vinnuna. Pabbi verður því þunglyndur í hvert sinn sem hann sér mig og syni sína (25-26). Stuttu seinna skráir pabbi Kidda í fótbolta því honum finnst sonurinn of linur og telur nauðsynlegt að herða hann. Kiddi herðist lítið sem ekkert og þegar hann stynur þvi upp að hann vilji hætta hvæsir pabbi: „Sonur minn gefst ekki upp!" Fótboltaferlinum lýkur á niðurlægjandi hátt fyrir pabba þegar mynd þirtist af Kidda í bæjarblaðinu þar sem hann hefur yfirgefið markið í miðjum fótboltaleik til að þefa af blómum rétt utan vallarins. Eina lausnin sem pabbi sér til að sonurinn verði ekki eins og soðið spagettí er að senda hann í herskóla: Pabbi sagði að þetta væri mér fyrir bestu og þessi herskóli væri staðurinn til að breyta mér í alvöru karlmann. Þar yrði ég laminn til hlýðni og kæmist ekki upp með neinn aumingjaskap (159). I veikri von um að sleppa við herskólann skráir Kiddi sig í skátana og líkar bærilega, sérstaklega stendur hann sig vel í handavinnu. Það er þó ekki fyrr en Kidda tekst að bjarga pabba úr smábarnaafmæli að pabbi verður stoltur af syni sínum. Kiddí endar fyrir slysni uppi í tré með súkkulaðislettur á buxnarassinum en pabbí heldur að Kiddi hafi sett þetta á svið til að bjarga sér úr hinu kvenlega og ofurvæmna smábarnaafmæli. Blessaður klaufinn Bækurnar um Kidda klaufa eru skondnar léttlestrarbækur sem hvorki er ætlað að geyma mikinn né djúpan boðskap og þær, eins og svo margar aðrar drengjabækur, er hægt að gagnrýna sundur og saman fyrir skort á hinu og þessu. Það sem þær hins vegar sýna eru áskoranir táningsdrengs í nútímasamfélagi, drengs sem reynir sífellt að standa undir misvísandi væntingum foreldra sinna, auk þess að ganga í augun á vinum sínum og skólafélögum. Kiddi klaufi er langt í frá „hinn fullkomni drengur" og að margra mati mikill gallagripur. Aðdráttarafl Kidda liggur, fyrir utan uppsetningu bókanna og húmorinn, líklega í því að flestir strákar geta frekar séð sig í blessuðum klaufanum en í sögum af hefðbundnum dáðadrengjum. Höfundur er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.