Börn og menning - 01.09.2012, Síða 17
Uppgerð og alvara
17
★ ★ ★ ★
hugvitsainlega samið verk,
sannfærandi í skemmtun og al]>reyingu ...“
I’BB / FKÉI TAl'lMINN
á yfirborðsmennsku afþreyingariðnaðarins,
grimmd stríðsrekstrar og misskiptingu gæða
beinist öðru fremur að samtímanum.
Gott eða illt?
fyrsta bókin í þríleiknum, Hungurleikarnir,
fylgir alþekktri formgerð. Hún hverfist um
keppni sem setur frásögninni skýran ramma
°g í bókarlok standa Katniss og Peeta, félagi
hennar úr Tólfta umdæmi, bæði uppi sem
sigurvegarar í Hungurleikunum eftir að hafa
reynst ráðsnjallari en bæði keppinautarnir og
yfirvöldin sem stjórna leiknum. Önnur bókin,
Eldar kvikna, fer rólega af stað eins og títt
eru um miðjubækur í þríleik en þegar á líður
hitnar í kolunum. Yfirvöld ákveða að halda
ovenjulega Hungurleika þar sem sigurvegar
ór fyrri leikum eigast við og Katniss og Peeta
neyðast til að halda aftur inn á leikvanginn.
Flestir lesendur búast sennilega við því
að frásagnarmynstrið úr fyrstu bókinni sé
að endurtaka sig í lítillega breyttri mynd
en þær væntingar eru sprengdar I loft upp
begar Katniss og félagar hennar eyðileggja
'eikvanginn og uppreisnarmönnum tekst
að bjarga flestum þeirra í burtu. Samhliða
Þessu uppbroti eru mörkin milli góðs og
'^s 9erð óskýrari en áður og hvort tveggja
ðýpkar söguna umtalsvert. ( Hermiskaða,
þriðju bókinni, er Katniss komin í skipulagt
('ð andófsfólks en baráttan reynist ekki eins
svarthvít og búast hefði mátt við.
„Bregst ekki vonum lesenda.“
PUBI.ISHF.US WF.EKI.Y
ELDAR KVIKNA
SUZANNLí COLLINS
í ótalmörgum bókum og bíómyndum,
ekki síst þeim sem ætlaðar eru yngra fólki,
er skýr markalfna milli góðs og ills. Einstaka
persóna siglir kannski undir fölsku flaggi en
þegar hulunni er svipt af raunverulegum
markmiðum hennar kemur hið sanna innræti
jafnframt í Ijós. Annaðhvort eru persónur
góðar eða vondar, það er ekkert til sem heitir
bæði-og.
í Hungurleíkabókunum er heimurinn
flóknari. í Hermiskaða, lokabindi þríleiksins
lendir Katniss til dæmis í þeirri klemmu að þótt
hún tilheyri hópi með sama markmið og hún,
að steypa stjórnvöldunum f Kapítól af stóli,
falla henni ýmsar baráttuaðferðirnar illa. í Ijós
kemur að það ekki er endilega jafnaðarmerki
milli þess að vera andvígur óréttlæti og að
vera vel innrættur. Katniss reynir líka á eigin
skinni að uppreisnarhópurinn grundvallast
ekki síður á kúgun en opinbera stjórnarfarið
og ítrekað er ætlast til þess að hún uppfylli
hlutverk sem aðrir hafa úthlutað henni.
Staðan er kunnugleg því breytingin frá
havaríinu kringum Hungurleika er þrátt fyrir
allt ekki svo mikil, Katniss þarf sífellt að
þykjast: „Þau hafa til taks heilan hóp af fólki
til að flikka upp á mig, klæða mig, skrifa
ræðurnar mínar, skipuleggja allt þegar ég
kem fram opinberlega - eins og það hljómi
ekki hræðilega kunnuglega - og ég þarf ekki
að gera annað en að leika hlutverkið mitt.
(Hermiskaði, bls. 15.)
★ ★ ★ ★
„Collins er snjall og hugkvæmur hölundur ...“
PBB / FRÉTT'ATÍMINN
HERMISKAÐI
SUZANNE COLLINS
Kyngervi og annar tilbúningur
Katniss er mögnuð kvenhetja og óvenjuleg
að mörgu leyti. Það er t.d. afar hressandi
að lesa um unglingsstúlku sem er kaldrifjað
hörkutól, þrautseig, úrræðagóð og með öllu
áhugalaus um útlit sitt. Katniss hefur t.d.
engan áhuga á að plokka augabrúnirnar eða
raka lappirnar og gerir nett grín að því hvernig
teymið sem sér um útlit hennar í tengslum
við Hungurleikana virðist upplifa hárin á
fótleggjunum á henni sem „þjóðarvá". Eftir
fyrstu leikana hafði hún orðið „svo ánægð
þegar þau fóru að sjást aftur. Það var eins
og merki um að allt gæti orðið eðlilegt á ný"
(Eldar kvikna, bls. 53).
Hún bítur þó á jaxlinn og lætur sig hafa
það að vera vandlega snyrt og klædd
sérvöldum fatnaði, bæði í tengslum víð
Hungurleikana og í stríðinu við stjórnvöld,
enda er markmiðið skýrt. Aldrei fer á milli
mála að hún lítur á allan þennan umbúnað
sem hluta af blekkingaleik. Katniss íklæðíst
kyngervinu eins og hverjum öðrum búningi.
Hún er sífellt að leika hlutverk og ítrekað
kemur fram að hún er fullkomlega meðvituð
um það.
Þykjustuleikurinn kemur einnig fram á
öðru sviði þar sem vikið er frá algengu
mynstri unglingabóka því að Katniss er ekki
síður óvenjuleg fyrir að vera laus við það
markmið að eignast kærasta. Unglingabækur
hafa löngum verið ástarsagnamiðaðar. Helga