Börn og menning - 01.09.2012, Page 20

Börn og menning - 01.09.2012, Page 20
20 Börn og menning starfsmánuðina en meginþunginn hefur þó verið á eflingu lestrarmenningar barna. Ástæðan fyrir því að ráðist var í stofnun setursins var einmitt minnkandi bóklestur barna og unglinga sl. áratugi. Nú lesa allt að 28% íslenskra grunnskólabarna aldrei bækur sér til ánægju en bókleysingjar voru aðeins 11% árið 1968. Þessi þróun er mikið áhyggjuefni því skýrt samband er milli ánægju af lestri bóka og árangurs í lesskilningi og þar með bóknámi. Börn sem alast upp við bóklestur og innan um bækur eru mun líklegri en önnur börn til að verða bókaormar. Það er t.d. skýrt samband milli lestraráhuga 11-12 ára barna og notkunar barnabóka í uppeldi þeirra fyrir skólaaldur. (Áhugasamir geta gluggað í grein mína í vorhefti Tímarits Máls og menningar 2012 þar sem er samantekt um rannsóknir á þessu sviði). Það er því afar mikilvægt að gera barnabækur sýnilegri í samfélaginu og efla áhuga barna og unglinga á bóklestri, ekki er eingöngu um áhugamál barnanna að ræða heldur einnig möguleika þeirra ( námi og hreinlega samkeppnisstöðu þjóðarinnar. Sem beturfer virðist lestraráhugi krakkanna okkar fara vaxandi á ný, það sýna til dæmis rannsóknirnar ESPAD 2011 (sam-evrópsk), og Börn og sjónvarp 2009 (íslensk), auk þess sem árangur í lesskilningi fer einnig batnandi eftir samfellt hnignunarskeið, ef marka má PISA prófin 2009. Viðsnúningurinn virðist hefjast í miðri kreppunni enda er víst fátt svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott. Fólk virðist í það minnsta hafa meiri tíma fyrir börnin og þeim líður betur. Ég gæti trúað að börnin uni sér þess vegna betur heima, ( kyrrð og ró, og líti þar af leiðandi oftar í bók. Mér finnst einnig eins og fullorðið fólk verði sífellt meðvitaðra um mikilvægi bóklestrar fyrir börn. Að minnsta kosti (menntuðu) konurnar eins og við sáum við á málþinginu „I alvöru talað" í Norræna húsinu í janúar. Sýningar og almenningsfræðsla Staðan er ekki góð þótt hún sé að skána en vitundarvakningin er svo sannarlega hafin. Barnabókasetrið varð að veruleika því loksins voru aðstæður réttar. Setrið fékk eina og hálfa milljón króna frá mennta- og menningarmálaráðherra é stofnfundinum en án þeirra peninga hefði það aldrei náð að dafna. Við höfum bætt við rúmri milljón síðan í ýmsum styrkjum. Peningarnir nýtast vel og við finnum mikinn meðbyr. En hvað höfum við verið að bardúsa? Byrjum á því sem snýr að samfélaginu og eflingu lestrarmenningar barna og ungmenna. Sýningin „Yndislestur æsku minnar" ferðaðist víða um Akureyri. Hún bjó á bókasafninu frá stofnfundinum í febrúar en flutti upp í Hlíðarfjall þegar Andrésar Andar leikarnir á skíðum hófust. Þaðan fór hún í sundlaugina og var þar mestallt sumarið. Sýningin samanstendur af veggspjöldum með myndum af fjölbreyttum hópi fólks sem segir frá eftirminnilegri barnabók. Þarna eru skólastjórar, rithöfundar, ráðherra, fótboltamenn, mótorsportistar og fleiri og fleiri. Markmiðið er að sýna að allir elska barnabækur, eins og börnin myndu segja. Nostalgían, hlýju minningarnar um lestur bernskunnar, höfðar til foreldranna - og ekki siður ömmu og afa og þannig er reynt að virkja fjölskyldurnar til lestrar og hvetja til lestrarvakningar inni á heimilunum. (Það er einmitt þar sem lestraráhuginn hefst, það er orðið löngu tímabært að hætta að kenna skólunum um minnkandi lestraráhuga barnanna.) Það var Nanna Lind Svavars- dóttir starfsmaður Amtsbókasafnsins sem tók myndirnar og hannaði veggspjöldin. Starfsfólk Amtsbókasafnsins varð vart við aukinn áhuga á barnabókum ( kringum

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.