Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 28

Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 28
Börn og menning Guðlaug Richt A Framlag IBBY til þjóðar í ólestri t óð» Á undanförnum árum hefur komið æ betur ðl ( Ijós að bókaþjóðin er í ólestri eins og hópur rithöfunda orðaði það svo hnyttilega síðastliðinn vetur í þjóðarákalli sínu gegn ólæsi. Stjórn IBBY á (slandi hefur um árabil fylgst grannt með því hvernig lestraráhugi og lestrarfærni íslenskra ungmenna hefur smám saman dalað og reynt að leggja sitt af mörkum til að snúa þróuninni við. Nú er svo komið að einn helsti verkefnaliðurinn í starfi félagsins er helgaður lestrarhvatningu. Það segir sig sjálft að félagið sem slíkt er ekki í beinu sambandi við hópinn sem hvetja á til lesturs og þarf því að treysta algjörlega á gott samstarf við ýmsa aðila í samfélaginu; skólayfirvöld, kennara, fagfólk í skólasöfnum, útgefendur, höfunda, myndskreyta og marga fleiri. Það er gaman að segja frá því að erindum okkur er undantekningarlaust tekið af miklum velvilja og er það ómetanleg hvatning fyrir okkur að halda áfram á sömu braut. Árið 1994 hófst samstarf IBBY við Mál og menningu um útgáfu bóka sem var ætlað að vekja áhuga ungmenna á sagnaarfi þjóðarinnar, nánar tiltekið þjóðsögum og goðsögum. Þetta ár var fyrsta bókin, Ormagull, gefin út en þar skrifuðu fjórtán höfundar smásögur sem tengdust íslenskum þjóðsögum. bt*ú f ‘ >v‘: o Stgvrúr Röðin kom að norrænu goðafræðinni árið 2003 en þá kom út smásagnasafnið Auga Óðlns sem hefur að geyma sjö sögur eftir úrvals rithöfunda og myndskreyta. Hún hlaut svo góðar viðtökur, ekki síst hjá kennurum, að ákveðið var að ausa aftur úr goðsagnabrunninum árið 2006 og komu þá út níu smásögur í bókinni Hell brú. Hell brú var unnin með þeim óvenjulega hætti að fyrst voru myndirnar teiknaðar en sagan skrifuð á eftir. Myndlistarmenn völdu sér efni i goðafræðinni og túlkuðu það í mynd. Síðan fengu þeir rithöfunda í lið með sér sem lögðu til texta eins og myndirnar blésu þeim í brjóst. Allar bækurnar þrjár hafa komið að góðum notum í skólastarfi þar sem oft vantar hentugt lesefni til að vinna með, ekki síst smásögur. Brynja Baldursdóttir kennslustjóri íslenskudeildar Fjölbrautaskólans í Garðabæ segir að Heil brú hafi nýst mjög vel við kennslu í bókmenntafræði (fyrsta bekk. Þar á bæ hefur bókin verið notuð nánast síðan hún kom út og eru nemendur látnir lesa flestar ef ekki allar sögurnar. í skólanum ríkir almenn ánægja með Heila brú enda höfðar goðafræðin til unga fólksins nú sem endranær og kennurum finnst bókin bráðskemmtilegt og handhægt kennslutæki. (Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eru sögurnar notaðar til að kenna grundvallarhugtök í bókmenntafræði auk þess sem nemendur kryfja efni þeirra til mergjar. Heimsmet í hlustun? Stjórn IBBY þótti orðið nokkuð Ijóst að félagið gæti best beitt sér ( lestrarhvatningarmálum með því að hvetja höfunda til að skrifa stuttar ogaðgengilegarsögurfyrirungafólkið.Þannig hafa stærstu lestrarhvatningarverkefni IBBY undanfarin tvö ár falist í því að færa þjóðinni frumsamda smásögu að gjöf í tilefni af alþjóðlegum degi barnabókarinnar sem er 2. apríl. Hugmyndin fæddist þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut Sögusteinsverðlaun IBBY og verið var að bollaleggja hvernig mætti fylgja verðlaunum eftir og vekja athygli barna á bókum höfundarins. Eins og títt er um góðar hugmyndir tók hún flugið og fyrr en varði hafði Kristín Helga tekið áskorun

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.