Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 29
Framlag IBBY til þjóðar ó ólestri
29
félagsins um að semja smásögu fyrir alla
aldurshópa og Ríkisútvarpið gefið vilyrði fyrir
því að útvarpa sögunni á Rás 1.
Mikilvægustu samstarfsaðilar okkar í þessu
verkefni voru þó skólarnir sem tóku að sér að
miðla sögunni til nemenda annaðhvort með
því að lesa hana upp eða gefa þeim færi á
að hlusta á hana í útvarpinu. Okkur í stjórn
IBBY fannst það stórkostleg tilhugsun að allir
nemendur á íslandi væru samtímis að hlusta
á sömu sögu í skólunum og jafnframt ætti
allt fullorðna fólkið kost á því að leggja við
hlustir með því að kveikja á útvarpinu. Það
væri náttúrulega bara heimsmet!
í kjölfar sögu Kristínar Helgu, Hörpuslag,
sem hún las sjálf í útvarpinu 2010, fylgdi
saga frá Ragnheiði Gestsdóttur ári síðar.
Hún hét Eins og í sögu. Nú er þriðja sagan
í burðarliðnum en hér verður að sjálfsögðu
ekki gefið upp nafn höfundar hennar.
Sögugjöfunum hefur verið vel tekið og
langflestir skólar virðast taka þátt en hver
hefur sinn háttinn á eins og gengur og gerist.
if
/ Garðaskóla er mjög öflug íslenskudeild sem heldur uppi skemmtilegri
lestrarmenningu. Þar eru teknar frá stundir sem unglingarnir geta varið i
lestur bóka að eigin vali. Nemendur i Garðaskóla eru ekki sáttir við umræðuna
um litinn lestur unglinga, enda lesa þeir heilmikið að sögn Sigurrósar
Gunnarsdóttur, fagstjóra í íslensku. Á degi barnabókarinnar var hlustað
á Hörpuslag um gjörvallan Garðaskóla, jafnt I dönskutíma, stærðfræði,
myndmennt og iþróttum.
í grunnskóla Snæfellsbæjar hlustuðu nemendur i 1.-4. bekk á Hörpuslag eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur i útvarpinu og höfðu gaman af. Þetta var eins
og i gamla daga þegar allir hlustuðu á útvarpssöguna.
I Laugarnesskóla söfnuðust yngstu nemendurnir saman og hlustuðu
gagnteknir á Eins og i sögu eftir Ragnheiði Gestsdóttur.